Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1980, Blaðsíða 29
Verslunarskýrslur 1979
27*
Innflutningur til þessa fyrirtækis á árinu 1979 nam alls 20 922,5 millj. kr. Þar af
voru 2 551 millj. kr. fjárfestingarvörur, annars vegartil uppsetningarhreinsitækja
og hins vegar til stækkunar á kerskála nr. 2. Bætast viö 40 ker, þannig að þau verða
alls 320 að tölu í álverinu.
Ríkisstjórnin gerði á árinu 1975 samning við bandaríska fyrirtækið Union
Carbide Corporation um stofnun hlutafélags til byggingar og rekstrar járnblendi-
verksmiðju á Grundartanga í Skilmannahreppi í Borgarfjarðarsýslu, sbr. lög nr.
10 26. apríl 1975. Voru á því ári hafnar framkvæmdir til undirbúnings mann-
virkjagerð á Grundartanga, en með samningi 9. júlí 1976 gekk bandaríska fyrir-
tækið úr Járnblendifélaginu og framseldi hlutabréf sín í því til ríkisstjórnarinnar.
Var þá framkvæmdum hætt í bili. Jafnframt fóru fram viðræður við Elkem-Spig-
erverket A/S í Osló, og leiddu þær til samningsgerðar—sem þó var ekki endanleg
— hinn 8. desember 1976. Gerðist þetta fyrirtæki hluthafi í íslenska járnblendi-
félaginu h.f., með 45% hlutafjáreign, á móti 55% hlutafjáreign ríkissjóðs. Sett
voru nýlög, nr. 18 ll.maí 1977, um járnblendiverksmiðju í Hvalfirði, og um leið
var gengið endanlega frá samningi við hinn norska meðeiganda. Vinna til bygg-
ingar mannvirkja á Grundartanga hófst aftur síðla árs 1976. Fyrri ofn verksmiðj-
unnar var tekinn í notkun í apríl 1979. Fyrsti útflutningur á kísiljárni átti sér stað í
júlí 1979, til Vestur-Þýskalands. Gert er ráð fyrir, að síðari ofn hennar verði
tilbúinn til starfrækslu í september 1980. Árleg framleiðslugeta hvors ofns er
25 000 tonn af kísiljárni (ferrosilikoni). — Frá og með maí 1977 er innflutningur
til járnblendiverksmiðjunnar gerður upp mánaðarlega á sama hátt og það, sem
flutt er inn af Landsvirkjun, íslenska álfélaginu og Kröfluvirkjun. Innflutningur til
járnblendiverksmiðjunnar nam 3 727,1 millj. kr. á árinu 1979. Sömu eða svipað-
ar reglur gilda lögum samkvæmt um niðurfellingu gjalda á innflutningi til íslenska
járnblendifélagsins og gilda um það, sem flutt er inn af fyrr nefndum 3 aðilum,
sem hafa sérstöðu í þessu sambandi.
Hér fer á eftir skýrsla um innflutning 1979 til Landsvirkjunar, Kröfluvirkjunar
og íslenska járnblendifélagsins, og er hann greindur á vörudeildir og eftir löndum.
Fyrst er, fyrir hvern aðiia um sig, tilgreind nettóþyngd innflutnings í tonnum,
síðan fob-verðmæti og loks cif-verðmæti, hvort tveggja í millj. kr. Aftan við
„önnur Iönd“ er hverju sinni tilgreind tala þeirra, fyrst fyrir Landsvirkjun, síðan
fyrir Kröfluvirkjun og loks fyrir íslenska járnblendifélagið.
Aftan við hið sameiginlega yfirlit Landsvirkjunar, Kröfluvirkjunar og íslenska
járnblendifélagsins er sundurgreining á heildarinnflutningi til íslenska álfélagsins
1979. Er sú skýrsla sett upp á sama hátt og skýrslan næst á undan.