Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1980, Side 36
34*
Verslunarskýrslur 1979
í töflu VI á bls. 244 er verðmæti útflutnings skipt eftir vinnslugreinum hvert
áranna 1975—79. Er hér um að ræða sérstaka flokkun útflutnings, sem gerð hefur
verið ársfjórðungslega frá og með ársbyrjun 1970. Hefur þessi flokkun verið birt í
Hagtíðindum fyrir hvern ársfjórðung, en í verslunarskýrslum er hún aðeins birt
fyrir heil ár.
Eins og greint var frá í 1. kafla inngangsins, er útflutningurinn í verslunarskýrsl-
um talinn á söluverði afurða með umbúðum, fluttur um borð í skip (fob) í þeirri
höfn, er þær fara fyrst frá samkvæmt sölureikningi útflytjanda. Þessi regla getur
ekki átt við ísfisk, sem íslcnsk skip selja í erlendum höfnum, og gilda því um
verðákvörðun hans í verslunarskýrslum sérstakar reglur. Til ársloka 1967 var,
auk löndunar- og sölukostnaðar o. fl., dregin frá brúttósöluandvirði ísfisks
ákveðin fjárhæð á tonn fyrir flutningskostnaði, en þessu var hætt frá og með
ársbyrjun 1968. Á árinu 1979 fylgdi Fiskifélag íslands þessum reglum við út-
reikning á fob-verði ísfisks (og kolmunna í bræðslu) út frá brúttósöluandvirði
hans, og var hann tekinn í útflutningsskýrslur samkvæmt því (hundraðstölur
tilgreindar hér á eftir miðast allar við brúttósöluandvirði):
Danmörk, Brelland og V-Pýskaland: Á öllum ísfiski: Löndunarkostnaður kr.
9,60 á kg, hafnargjöld o. fl. 5,3% (5,4% í nóvember), sölukostnaður 2% í
Danmörku og V-Þýskalandi, 3% í Bretlandi, tollur 2% á ísuðum karfa, 3,7% á
ísuðum þorski, ýsu og ufsa og 15% á öðrum ísfiski. Á kolmunna í bræðslu: 5%
hafnargjöld o. fl. í Danmörku. Fœreyjar: Á ísfiski: Löndunarkostnaður kr. 0,80 á
kg, tollur 2%, sölukostnaður 2%, hafnargjöld o. fl. kr. 10 000 í hverri söluferð. Á
kolmunna í bræðslu: Hafnargjöld o. fl. 5%.
Það skal tekið fram, að fiskiskip, sem selja ísfisk erlendis, nota stóran hluta af
andvirðinu til kaupa á rekstrarvörum, vistum o. fl., svo og til greiðslu á skips-
hafnarpeningum, en slíkt er ekki innifalið í áður nefndum frádrætti til útreiknings
á fob-verðmæti. Skortir því mjög mikið á, að gjaldeyri svarandi til fob-verðs sé
skilað til bankanna.
Útflutningsverðmœti 8 skipa, sem seld voru úr landi 1979 (í nr.
93.20.00—93.90.00 í töflu V), nam alls 1 366 625 þús. kr. Hérfer á eftir skráyfir
skip seld úr landi 1979, en þau eru öll talin með útflutningi desembermánaðar:
Rúmlestir Útflutn.verðm.
brúttó þús. kr.
Barði NK-120 til Frakklands, skuttogari 328 380 000
Muninn GK-342 til Svíþjóðar, fiskibátur 53 73 915
Hamravík KE-75 til Noregs, fiskiskip 192 124 039
Guðmundur Pétur ÍS-1 til Svíþjóðar, fiskiskip 249 259 350
Sólrún ÍS-399 til Svíþjóðar, fiskiskip 249 263 981
Harðbakur EA-3 til Bretlands, síðutogari til niðurrifs .. 732 25 944
Snæfugl SU-20 til Suður-Afríku, fiskiskip 252 153 813
Helgafell til Líbanons, farskip 1 975 85 583
Samtals 4 030 1 366 625
Áárinu 1979 voru Iflugvélar seldar úr landi,að verðmæti alls 118 848 þús. kr.,
báðar taldar með útflutningi desembermánaðar, ein til Bandaríkjanna að verð-
mæti 26 256 þús. kr. og ein til Kanada að verðmæti 92 592 þús. kr.
í 6. yfirliti er sýnd hlutfallslegskipting á verðmæti útfluttra afurða eftir uppruna,
þ. e. í meginatriðum eftir atvinnuvegum. Frá ársbyrjun 1970 kom til framkvæmda
endurskoðuð og bætt flokkun á útfluttum afurðum eftir uppruna. Hafa niður-
stöður hennar verið birtar í 6. yfirliti í Verslunarskýrslum síðustu ára, ásamt með