Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1980, Qupperneq 38
36*
Verslunarskýrslur 1979
neytið, sjávarútvegsráðuneytið og iðnaðarráðuneytið, og auk þess var flokkun
þessi borin undir þær stofnanir hinna þriggja aðalatvinnuvega, sem hér eiga hlut
að máli. — Frá og með árinu 1977 er lagmeti (nr. 18 í töflu III) flokkað með
iðnaðarvörum, en ekki sjávarvörum. Hafa tölur 6. yfirlits um útfluttar afurðir af
fiskveiðum og af iðnaði verið færðar til samræmis við þessa breytingu árin
1971—76, en eldri tölur yfirlitsins eru látnar standa óbreyttar.
í 7. yfirliti er sýnt, hvernig magn og verðmæti útflutnings 1979 skiptist á
mánuði.
Vörusala íslensks markaðar h.f. íslenskur markaður h.f. hóf í ágúst 1970
verslun með íslenskan varning í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Stærstu hlut-
hafar í þessu fyrirtæki eru Samband ísl. samvinnufélaga (28,6%) og Álafoss h.f.
(24,3%). Glit h.f., Osta- og smjörsalan og Sláturfélag Suðurlands eiga hvert um
sig 10% hlutafjárins, en aðrir hluthafar, um 20 talsins, eru aðallega framleiðendur
iðnaðarvöru. Aðalviðskiptamenn íslensks markaðar eru flugfarþegar, sem eru á
förum úr landi, en auk þess er nokkuð um, að kaupendur panti vörur og fái þær
sendar í pósti. Hvorki vörusala á staðnum né póstsending til útlanda er tekin í
útflutningsskýrslur. Að meðaltali hefur um 90% sölunnar verið í erlendum
gjaldeyri, og hefur sú sala numið sem hér segir (í þús. kr.). 1971: 69 274, 1972:
72 194, 1973: 82 725, 1974: 88 018, 1975: 158 784, 1976: 226 820, 1977:
314 535, 1978: 608 138 og 1979: 831 982.
Sundurgreining söluandvirðis eftir vörutegundum 1977—79 fer hér á eftir, í
þús kr. Númer samkvæmt flokkunarskrá útflutnings (sjá töflu V) er tilgreint í
sviga:
1977 1978 1979
Grásleppuhrogn niðurlögö (18.31) 4 665 8 329 12 057
Annað lagmeti úr sjávarafurðum 2 615 4 672 6 764
Reyktur fiskur ót. a. (49.29) 609 1 088 1 575
Kindakjöt fryst (51.10) 2419 4 319 6 251
Ostur (57.10) 3 019 5 390 7 802
Aðrar landbúnaðarafurðir 509 907 1 314
Reyktur lax (79.41) 2 942 5 253 7 603
Vörur úr loðskinnum (80.10) 12 631 19 168 13 574
Gærur fullsútaðar (81.10) 5 082 10 439 13 386
Ullarteppi (83.10) 11991 31 035 61 596
Vettlingar prjónaðir (84.10) 39 994 82 998 108 128
Peysur prjónaðar (84.40) 76 937 143 603 198 773
Ytri fatnaður, prjónaður og ofinn (84.50 og 88.10) . 87 038 188 087 249 180
Skrautmunir og húsbúnaður úr postulíni (89.58) ..... 13 080 20 975 32 625
Silfur- og gullsmíðavörur (89.80.10) 16 465 30 150 33 943
Islenskar iðnaðarvörur ót. a 10 933 16 720 24 891
Ýmsar vörur 23 606 35 005 52 520
Alls 314 535 608 138 831 982
5. Viðskipti við einstök lönd.
External trade by countries.
í töflum II og IV er innflutningurinn sundurgreindur á lönd, í fyrr nefndu
töflunni eftir rúmlega 230 vöruflokkum nýendurskoðaðrar vöruskrár hagstofu
Sameinuðu þjóðanna, en í síðar nefndu töflunni eftir hverju einstöku tollskrár-
númeri.