Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1980, Qupperneq 304
Hagstofa íslands
gefur út eftirtalin rit:
1. Hagskýrslur íslands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar eru
birtar ýtarlegar skýrslur um efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar (Verslunarskýrsl-
ur, Búnaðarskýrslur, Sveitarsjóðareikningar, Mannfjöldaskýrslur, Alþingiskosningar,
Dómsmálaskýrslur o. fl.). í I. útgáfuflokki Hagskýrslna, sem hófst 1914, voru 132 rit, í
II. útgáfuflokki, sem hófst 1951 hafa komið út 72 rit. — Áskrifendum Hagskýrslna er
tilkynnt útkoma rita jafnóðum og þau rit koma út, og þeir eru beðnir að senda greiðslu.
Að henni móttekinni eru rit send þeim í pósti.
2. Hagtíðindi, mánaðarrit. Þar eru birtar mánaðarlegar eða ársfjórðungslegar skýrslur um
utanríkisverslun, fiskafla, þróun peningamála, framfærsluvísitölu og aðrar vísitölur, og
árlegar skýrslur um ýmisleg efni, sem ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af
Hagskýrslum. — Árlegt áskriftargjald Hagtíðinda er 2800 kr.
3. Statistical Bulletin var sameiginlegt rit Hagstofunnar og Seðlabanka íslands, á ensku og
ætlað útlendingum, sem fengu það ókeypis. Það var 4ra blaðsíðna mánaðarrit frá júní
1931 til desember 1962, en síðan 16 blaðsíðna ársfjórðungsrit. Efni þess var sumpart
tekið úr Hagtíðindum og sumpart fengið frá Seðlabankanum. Þá er Seðlabankinn í
febrúar 1980 hóf útgáfu nýs ársfjórðungsrits á ensku, Economic Statistics, var ákveðið
að leggja Statistical Bulletin niður, og kom síðasta blað þess út í maí 1980.
4. íbúaskrá Reykjavíkur kemur út á hverju vori. I henni eru allir íbúar Reykjavíkur
næstliðinn 1. desember samkvæmt þjóðskrá, með þeim upplýsingum, sem hún hefur að
geyma um hvern mann. íbúaskrá Reykjavíkur 1. desember 1979 er 1300 bls., og verð
33.000 kr. í bandi. Upplag þessarar bókar er mjög takmarkað, enda við það miðað, að
hún seljist upp.
5. Fyrirtækjaskrá. í ritinu Skrár yfir fyrirtæki á íslandi 1969 var birtur frumstofn skrár
Hagstofunnar um fyrirtæki (þar eru með bændur, útgerðarmenn, iðnmeistarar o. s. frv.)
að meðtöldum stofnunum og félagssamtökum. Viðaukar við þetta rit voru gefnir út
1972 og 1973. f júní 1976, ágúst 1978 ogágúst 1979hafa — íframhaldi af fyrri útgáfum
— komið út heildarskrár aðila í fyrirtækjaskrá, sem hafa sérstakt auðkennisnúmer í
henni, það er annað númer en nafnnúmer samkvæmt þjóðskrá. Einstaklingar, sem reka
starfsemi á eigin nafni, eru þannig ekki í þessum útgáfum. Atvinnufyrirtæki, stofnanir
og félagasamtök í 1979-skránni, sem er miðuð við júlí, eru um 14 000 að tölu. Verð
þess heftis er 2500 kr.
6. Skrár yfir dána, með fæðingardegi, dánardegi, heimili og fleiri upplýsingum um dána,
koma út árlega í fjölrituðu hefti. Skrár yfir dána eftirtalin ár kosta sem hér segir:
1968—77 10 hefti hvert á 700 kr., 1978 1100 kr. Skrár yfir dána 1965—67 (eitt hefti)
eru upp gengnar.
7. Bifreiðaskýrsla kemur út árlega í fjölrituðu hefti. I því eru um 20 töflur með fjölþættum
upplýsingum um bifreiðaeign landsmanna. Hagstofan tók við þessu verkefni af Vega-
gerð ríkisins frá og með Bifreiðaskýrslu 1. janúar 1972. — Bifreiðaskýrsla 1. jan.
1972—78 kostar 1000 kr. hver um sig, Bifreiðaskýrsla 1. jan. 1979 1200 kr.
8. í ritinu Skrá um stofnanaheiti, sem kom út, fjölritað, á árinu 1972, er dönsk og ensk
þýðing á heiti stofnana, embætta, félagssamtaka og starfsgreina. Uppsláttaratriði í riti
þessu eru um 1500 að tölu. V enjulegar orðabækur eru haldlitlar í þessu efni, og er þessu
riti ætlað að bæta úr þeirri vöntun. Verðið er 900 kr.
Afgreiðsla ofangreindra rita er í Hagstofunni, Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8—10 (3. hæð),
101 Reykjavík. Sími 26699. Póstgíróreikningur Hagstofunnar er nr. 26646. Rit eru send
gegn póstkröfu, sé þess óskað, þó ekki rit það, er um ræðir í lið 4.