Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1981, Blaðsíða 35
Verslunarskýrslur 1980
33*
Innflutningur vamarliðseigna. Við lok heimsstyrjaldarinnar var sett á fót
nefnd, er keypti fyrir hönd ríkissjóðs ýmsar eignir setuliðanna tveggja, sem þau
fluttu ekki úr landi. Nefndin sá og um sölu slíkra eigna til innlendra áðila. Arið
1951 hófust sams konar kaup af bandaríska liðinu, sem kom til landsins sam-
kvæmt varnarsamningi íslands og Bandaríkjanna í maí 1951. Síðar hafa hér bæst
við kaup á bifreiðum o. fl. frá einstökum varnarliðsmönnum, svo og kaup frá
íslenskum aðalverktökum á tækjum o.fl., sem þeir hafa flutt inn tollfrjálst vegna
verka fyrir varnarliðið. Eru hvor tveggja þessi kaup meðtalin í þeim tölum, sem
hér fara á eftir. — Vörur þær, sem hér um ræðir, fá ekki tollmeðferð eins og aðrar
innfluttar vörur, og er þar af leiðandi ógerlegt að telja þær með innflutningi í
verslunarskýrslum. Rétt þykir að gera hér nokkra grein fyrir þessum innflutningi,
og fer hér á eftir yfirlit um heildarupphæð þessara kaupa hvert áranna 1951—80 (í
þús kr.):
1951 204 1957 2 401 1963 6 335 1969 10 570 1975 51 263
1952 77 1958 5 113 1964 4 141 1970 19 319 1976 64 085
1953 664 1959 9 797 1965 4 283 1971 18 119 1977 98 439
1954 1 731 1960 16 825 1966 4 123 1972 19 342 1978 133 243
1955 2 045 1961 8 029 1967 5 345 1973 24 575 1979 232 434
1956 2 439 1962 4 473 1968 9 158 1974 34 940 1980 514 888
í kaupverðmætinu er innifalinn kostnaður við viðgerðir o. fl. til aukningar á
söluverðmæti o. fl. Sundurgreining kaupverðmætisins eftir vöruflokkum 1979 og
1980 fer hér á eftir (í þús kr.):
1979 1980
Fólksbílar (1979: 199, 1980: 173) ........................................ 92 387 255 597
Vöru-og sendiferðabílar (1979: 31, 1980:42) .............................. 10 909 32 786
Aðrirbilar ............................................................... 40 699 2 033
Vörulyftur, dráttar- og tengivagnar ....................................... 2 932 2 790
Vinnuvélar ........................................................... 837 25 843
Aðrar vélar og tæki .................................................. 386 16 890
Varahlutir í bíla og vélar, einnig hjólbarðar ............................ 10 067 14 783
Skrifstofu- og búsáhöld, heimilistæki og húsgögn ......................... 31 341 17 914
Fatnaður .................................................................. 8 056 15 943
Matvæli, niðursoðin, sælgæti og gosdrykkir ............................... 14 854 93 408
Ýmsar vörur ............................................................... 6 046 21 021
Vörur keyptar innanlands vegna söluvarnings, svo og viðgerðir ............ 13 790 15 796
Bankakostnaður ....................................................... 130 84
Alls 232 434 514 888
4. Útfluttar vörur.
Exports.
í töflu V (bls. 244—259) er sýndur útflutningur á hverri einstakri vörutegund
eftir löndum. Röð vörutegunda í þessari töflu fylgdi áður vöruskrá hagstofu
Sameinuðu þjóðanna, en frá og með 1970 er röð vörutegunda í þessari töflu
samkvæmt sérstakri vöruskrá Hagstofunnar fyrir útflutning. Um þetta vísast til
nánari skýringa í 1. kafla þessa inngangs og við upphaf töflu V á bls. 244.
í töflu I á bls. 2—3 er sýnd þyngd og verðmæti útflutningsins eftir vörudeildum
núgildandi vöruskrár hagstofu Sameinuðu þjóðanna. í töflu III á bls. 20—27 eru
verðmætistöflur útflutnings svarandi til 2ja fyrstu tölustafa hinnar 6 stafa tákntölu
hvers vöruliðs í vöruskrá Hagstofunnar fyrir útflutning, með skiptingu á lönd.
3