Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1988, Blaðsíða 14
12
Verslunarskýrslur 1987
Samkvæmt viðskiptakjarauppgjöri Þjóðhagsstofnunar úr verslunarskýrslum
hækkaði cif-verð innfluttrar vöru um 6,6% frá árinu 1986 til ársins 1987.
Verðmæti vöruinnflutnings cif jókst í krónum um 33,4% og að teknu tilliti til
verðbreytinga hefur því innflutningurinn cif aukist að raungildi (þ. e. innflutn-
ingsmagnið) um 25,1% frá 1986 til 1987. Hvað útflutning varðar, jókst
heildarverðmæti hans um 18,0%, útflutningsverð er talið hafa hækkað um
12,6% og útflutningsmagnið er því talið hafa aukist um 4,8%. Sé álútflutningi
sleppt er verðbreytingin talin hafa numið 13,1% og aukning vörumagnsins
3,9%. Á mælikvarða cif-verðs innfluttrar vöru og fob-verðs útfluttrar vöru hafa
viðskiptakjörin við útlönd (þ. e. verðhlutfall útfluttrar og innfluttrar vöru)
batnað um 5,6% á árinu 1987 frá því sem var árið áður. Sé bæði útflutningi og
innflutningi á vegum álverksmiðjunnar sleppt eru viðskiptakjörin hins vegar
talin hafa batnað um 5,8%. Cif-verð innflutnings hækkaði heldur minna en fob-
verð á árinu 1987. Á mælikvarða fob-verðs fyrir bæði útflutning og innflutning
bötnuðu viðskiptakjörin því heldur minna en að framan greinir eða sem nam
5,2% í heild og 5,6% að viðskiptum álverksmiðjunnar slepptum.
Til frekari upplýsingar eru hér á eftir sýndar verðvísitölur og vörumagnsvísi-
tölur helstu vöruflokka útflutnings og innflutnings á árinu 1987 miðað við árið
áður (verð og magn 1986 = 100).
Innflutningur cif
Ncysluvörur og ncysluhrávörur ....
Fjárfestingarvörur og-hrávörur ....
Eldsneyti og olíur.................
Hrávörur til stóriöju .............
Aðrar rekstrarvörur................
Innflutningur alls ................
Alls án rekstrarvöru til álverksmiðju
Útflutningur fob
Sjávarafuröir alls ................
Þ.a. afurðir hraöfrystingar ...
Þ.a. afuröir saltfiskvcrkunar ...
Þ.a. mjöl ög lýsi .............
Landbúnaðarafurðir alls............
Iðnaðarvörur alls .................
Þ.a. ál .......................
Þ.a. kísiljárn ................
Þ.a. kísilgúr..................
Þ.a. aðrar iðnaðarvörur .......
Aðrar vörur .......................
Útflutningur alls..................
Útflutningur alls án áls ..........
Verð- Vörumagns-
vísitölur vísitölur
109,3 128,4
108,9 125,3
93,4 111,5
96,8 106,8
103,6 118,7
106,6 125,1
106,9 125,6
114,4 101,8
114,2 94,6
128,2 116,6
97,9 78,8
106,8 115,0
107,9 111,3
107,7 114,3
100,7 109,7
99,6 99,1
119,3 102,4
105,3 146,2
112,6 104,8
113,1 103,9
Síðan 1935 hefurþyngd alls innflutnings og útflutnings verið talin saman. Fyrir
1951 var þyngd innflutnings talin nettó, frá ársbyrjun 1951 og til aprílloka 1963
var hún talin brúttó, en síðan 1. maí 1963 aftur nettó. í töflunni hér á eftir hefur
innflutningurinn á tímabilinu 1951 til aprílloka 1963 verið umreiknaður til nettó-
þyngdar, svo að þyngdartölur allra áranna séu sambærilegar. Er sá umreikning-
ur byggður á áætlun að nokkru leyti.