Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1992, Side 11
Verslunarskýrslur 199!
9
áður var getið, færist þá á útgjaldahlið þjónustureiknings
þannig að niðurstaðan á viðskiptareikningi (sem er samtala
vöru- og þjónustureiknings) verður hin sama óháð því hvorri
aðferðinni er beitt. Tölur um vöruskiptajöfnuð breytast hins
vegar að mun. Þetta kemur fram í 2. yfirliti sem sýnir
vöruskiptajöfnuðinn, þ.e. útflutning umfram innflutning, þar
sem verðmæti útflutnings og innflutnings er hvort tveggja
reiknað á fob-verði. Til þess að gefa betri vísbendingu um
stærð vöruskiptajafnaðarins er jafnframt sýnt hlutfall hans af
landsframleiðslu samkvæmt tölum Þjóðhagsstofnunar.
I 2. yfirliti kemur fram að vöruskiptajöfnuðurinn við
útlönd hefur verið hagstæður fjögur af þeim tíu árum, sem hér
eru sýnd. Tvö þessara ára, 1986 og 1989, var umtalsverður
afgangur eða sem nam 2,4% af landsframleiðslu. Á hinn
bóginn var halli á vöruskiptajöfnuðinum sex þessara ára,
mestur4,8% af landsframleiðslu árið 1982.
2. yfirlit. Vöruskiptajöfnuður 1982-1991
Tahle 2. Balance of trade 1982-1991
í millj. kr. Million ISK Útflutt Exports fob Innflutt Imports fob Vöruskiptajöfnuður Balance oftrade
Á gengi hvers árs At current exchange rates Á gengi ársins 199111 At constant 1991 rate of exchange Hlutfall af lands- framleiðslu % Per cent ofGDP
1982 8.478,8 10.299,0 -1.820,2 -9.472,1 -4,78
1983 18.633,0 18.183,9 449,1 1.274,9 0,68
1984 23.557,0 23.931,2 -374,2 -913,3 -0,43
1985 33.749,6 33.766,4 -16,8 -32,1 -0,01
1986 44.967,8 41.101,0 3.866,8 6.418,3 2,45
1987 53.053,1 55.260,2 -2.207,1 -3.533,4 -1,07
1988 61.666,7 62.243,2 -576,5 -807,9 -0,23
1989 80.071,7 73.128,7 6.942,9 7.734,4 2,27
1990 92.625,1 88.084,8 4.540,3 4.540,3 1,30
1991 91.560,4 94.797,4 -3.237,0 -3.237,0 -0,85
11 Miðað við meðalgengi á viðskiptavog. At trade weighted average effective rate of exchange.
Verð- og magnbreytingar 1990-1991 Price and volume
changes 1989-1990. 3. yfirlit sýnir samanburð á utanríkis-
verslunartölum á föstu gengi árin 1990 og 1991. Hér er um
sams konar töflu að ræða og Hagstofan sendir ffá sér í
hverjum mánuði til upplýsingar um framvindu helstu flokka
innflutnings og útflutnings í samanburði við næstliðið ár.
Venja hefur verið að umreikna tölur fyrra árs til meðalgengis
lfðandi árs til þess að eyða áhrifum gengisbreytinga á
verðmætistölur svo samanburður milli ára verði marktækari
en ella. Þessa þurfti raunar ekki með á árinu 1991 þar sem
meðalgengi krónunnar var óbreytt frá árinu á undan.
í 3. yfirliti kemur fram að verðmæti útflutnings dróst
saman um 1% frá árinu 1990 til ársins 1991 en verðmæti
innflutnings jókst um nær 8%. Sem fyrr segir var meðalgengi
krónunnar hið sama árið 1991 og árið næsta á undan og eru
breytingar útflutnings- og innflutningsverðmætis í erlendum
gjaldeyri því hinarsömu og í krónum, þ.e. hinar sömu og fram
koma í 3. yfirliti. Samkvæmt útreikningum Þjóðhagsstofnunar
á einingarverðvísitölum á grundvelli verslunarskýrslna
hækkaði útflutningsverð um 7,5% frá árinu 1990 til ársins
1991. Verðbreytingar einstakra vöruflokka voru þó mjög
mismunandi; verð á sjávarafurðum hækkaði um nær 12% en
verð á afurðum stóriðju lækkaði um 13%. Að frátöldum
breytingum á verði áls og kísiljáms hækkaði útflutningsverð
um nær 11% eftir 10% hækkun í erlendum gjaldeyri árið
næsta á undan. Samtals er verðhækkun útflutnings annars en
áls og kísiljárns í erlendri mynt um 22% árin 1990 og 1991
en á sama tíma hefur útflutningsverð stóriðju lækkað um 29%
í erlendri mynt.
Innflutningsverð er talið hafa hækkað um 3% frá árinu
1990 til ársins 1991. Verð á eldsneyti og fjárfestingarvöru
hækkaði nokkm meira eða um 5,5% en verð á neysluvörum
og rekstrarvöm annarri en olíu hækkaði minna.
Sem fyrr segir varð verðmæti vöruútflutnings uin 1%
minna árið 1991 en árið áður en útflutningsverð hækkaði á
sama tíma um 7,5%. Að raungildi dróst því útflutningurinn
saman um nær 8% frá árinu 1990 til 1991. Verðmæti
innflutnings fob jókst um tæplega 8% frá árinu 1990 til ársins
1991, innflutningsverð er talið hafa hækkað um 3% og því er
innflutningurinn talinn hafa aukist að raungildi um nær 5%.
Eftir þeim tölum um breytingar fob-verðs útflutnings og
innflutnings hafa viðskiptakjörin við útlönd batnað um 4,4%
fráárinu 1990 til ársins 1991. Að frátalinni utanríkisverslun
stóriðjuverannabötnuðu viðskiptakjörin við útlönd enn meira
eða um 7,4%.