Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2011, Side 8
8 Fréttir 14. desember 2011 Miðvikudagur
Borguðu á móti ríkinu
n Búslóðin var meira en 75 milljóna virði
S
kafti Jónsson og eiginkona
hans fengu meira en 75 millj-
ónir króna fyrir búslóð sína
sem ríkið bætti þeim. Þetta
kemur fram í svörum ráðuneytisins
við fyrirspurnum DV. Eins og DV hef-
ur greint frá fór gámur sem innihélt
búslóðina í sjóinn með þeim afleið-
ingum að innihald hans eyðilagðist.
„Það sem greitt er frá þriðja að-
ila (tryggingafélagi) kom að fullu til
frádráttar þeim bótum sem greiddar
voru úr ríkissjóði,“ segir í svari Péturs
Ásgeirssonar sviðsstjóra hjá ráðu-
neytinu. Enn fást þó ekki upplýs-
ingar um hvað var í gámnum né af-
rit af skýrslu Könnunar, fyrirtækisins
sem mat virði búslóðarinnar. Ástæð-
an fyrir því er sögð vera að skýrslan
varði persónulega hagi þeirra sem í
hlut eiga.
„Sú fjárhæð sem íslenska rík-
ið greiðir vegna tjónsins byggir því
á gögnum um búslóðina auk þess
sem beitt er afskriftum eða lækkun á
einstaka flokki muna í samræmi við
venjur og dómafordæmi í íslensk-
um skaðabóta- og vátryggingarétti,“
segir Pétur en ekki er að hægt að
skilja þetta öðruvísi en að búslóðin
hafi verið metin á talsvert meira en
þær 75 milljónir sem íslenska rík-
ið borgaði hjónunum í tjónabætur.
Enn er því allt á huldu um nákvæm-
lega hvað íslenskir skattgreiðendur
greiddu sendiráðshjónunum tjóna-
bætur fyrir.
Taka skal fram að vegna greiðsl-
unnar eignast ríkið framkröfurétt á
hendur þriðju aðilum sem kann að
vera fyrir hendi eins og hefðbund-
ið er við bótauppgjör. En það þýð-
ir að hjónin eiga ekki rétt á frekari
greiðslum frá tryggingafélagi, ríkinu
eða öðrum aðila í tengslum við málið
heldur fari allar aðrar greiðslur beint
í ríkiskassann. Það er þó ekki víst að
neinar slíkar greiðslur muni eiga sér
stað.
forstjóri Fjármálaeftirlitsins
Gunnar Andersen
Þessir hafa þegar setið fyrir svörum
d v . i s / b e i n l i n a
15. desember kl. 13:00
verður á Beinni línu fimmtudaginn
Tugmilljóna verðmæti Verðmætin
voru flutt í gámi til Bandaríkjanna en þau
skemmdust þegar sjór lak inn í gáminn.
Mynd Eyþór Árnason
Verslunarstjóri stal úr Bónus:
Fékk vinnu
í Noregi
Óðinn Svan Geirsson, fyrrver-
andi verslunarstjóri í Bónus, er
á leið úr landi því hann hefur
fengið vinnu í Noregi. Óðins
bíður ákæra vegna þjófnaðar úr
Bónus en hann hefur viður-
kennt að hafa stolið matvöru úr
versluninni. Hann greindi frá
því í vikublaðinu Akureyri í síð-
ustu viku að hann hafi verið að
vinna í sínum málum eftir brott-
reksturinn og hafi meðal annars
lagst inn á geðdeild. Hann segir
í samtali við DV að hann sé bú-
inn að ráða sig í vinnu. „Það var
ekkert mál, ég hef unnið þar
áður. Þetta er bara tímabund-
ið,“ segir hann, en DV hafði
heimildir fyrir því að hann hefði
fengið vinnu hérlendis hjá sam-
keppnisaðila Bónuss.
Hann segir að fjölskylda sín
hafi fengið að kenna á afbroti
sínu í sínum störfum. „Sonur
minn var að vinna þarna í öðru
fyrirtæki en honum var meinað
að koma inn á svæði hjá Hag-
kaup og það var talað um að
það væri vegna þessa. Konunni
minni var sagt að ef hún vildi
vinna í sölumennsku þá væri
hún ekki að fara að vinna hjá
þessum fyrirtækjum,“ segir Óð-
inn. Hann segir þó að hlutirnir
gangi betur nú. „Þetta er allt á
réttri leið,“ segir hann.
A
lla tíð höfum við unnið
eins og skepnur og höf-
um aldrei beðið um krónu
gefins,“ segir kona búsett í
Árborg sem sótti um fjár-
hagsaðstoð fyrir jólin til að ná end-
um saman. Hún vill ekki láta nafns
síns getið, segist skammast sín fyrir
aðstæðurnar og upplifa sig niður-
lægða. Aðeins hún og eiginmaður
hennar þekki raunverulegar að-
stæður þeirra. Þau leyni þeim fyrir
vinum, börnum og barnabörnum.
„Við erum óvenju rík af börnum
og barnabörnum og höfum alltaf
unnið mikið. Mín vinna var skor-
in niður í sextíu prósent eftir hrun
og maðurinn minn er nýlega kom-
inn á örorku og getur því ekki unn-
ið,“ segir hún. Hjón með tekjur yfir
200.040 krónur á mánuði eiga ekki
rétt á fjárhagsaðstoð frá Árborg.
„Þetta er hryllilega lágt. Ég sé ekki
hvernig þetta á að duga fyrir neinu.
Þetta dugir varla fyrir afborgunum
af húsinu okkar,“ segir hún en leið-
réttir sig svo: „Ef til vill er réttara að
segja að þetta dugi varla fyrir húsi
bankans.“
sótti of seint um aðstoð
„Hjá sveitarfélaginu var mér bent á
að sækja um aðstoð frá sameiginleg-
um sjóði hjálparstofnana og félaga-
samtaka. Umsóknarfresturinn rann
hins vegar út á föstudag en ég leitaði
aðstoðar á mánudeginum eftir.“
Hún segist einfaldlega ekki hafa
vitað af frestinum og raunar hafi hún
ekki hugsað um að sækjast eftir að-
stoð fyrr en fokið væri í flest skjól.
„Hvernig á maður að vita það svona
snemma í mánuðinum að matarað-
stoð sé nauðsynleg til að ná endum
saman,“ segir konan. Hún kveðst
hissa á stuttum umsóknarfresti enda
telur hún flesta reyna að drýgja tekj-
urnar og reyna að bíða sem allra
lengst með að sækja um aðstoð. Fólk
bíði jafnvel lengur en það ætti að
gera, það hafi hún gert.
Grjónagrautur um jólin
„Ég er Íslendingur og þetta redd-
ast bara. Við verðum þá bara með
grjónagraut um jólin,“ sagði konan
fyrst þegar DV ræddi við hana. Und-
anfarin ár hafa hjónin boðið börn-
unum sínum ásamt mökum þeirra
og barnabörnum í jólamat með
hangikjöti. „Það verður klippt á það
og jólagjafir en það leysir ekki vand-
ann um næstu mánaðamót.“ Konan
segir manninn sinn stoltan, hann
vilji ekki að neinn frétti af aðstæðum
þeirra. Augljóslega sé þeim feluleik
lokið nú þegar útskýra þurfi fyrir öll-
um hvers vegna ekkert hangikjöt sé
á jóladag. Þegar líða fór á daginn var
DV bent á að konunni væri ef til vill
ekki allar bjargir bannaðar. Hvíta-
sunnukirkjan á Selfossi stæði viku-
lega fyrir aðstoð til handa þeim sem
á þyrftu að halda. Ferlið þar sé ein-
falt og þótt söfnuðurinn hafi ótak-
markaða sjóði að ganga í væri allt
gert til að koma til móts við þá sem
þangað leituðu. Svo fór að konan
fékk tíu þúsund krónur í formi inn-
eignar í verslunum Bónus frá söfn-
uðinum. „Ég vil koma á framfæri
þakklæti til þeirra í Hvítasunnu-
kirkjunni. Þetta var engin skrif-
finnska. Þetta var allt mun mann-
eskjulegra en annars staðar.“
Hún segir að þó tíu þúsund krón-
ur hrökkvi skammt hjálpi þær þó
mikið. Máltíðin á aðfangadag væri
í höfn.
Misstu allt í hruninu
Konan segir þau hjón ávallt hafa
unnið hörðum höndum að því að
byggja upp gott heimili fyrir sig og
fjölskylduna. Tæknilega séð hafi þau
misst allt í bankahruninu árið 2008.
„Fyrir hrun áttum við stóran hlut í
húsinu okkar. Við tókum 65 prósenta
lán upphaflega en enduðum ný-
lega með að fara 110 prósenta leið-
ina vegna þess að lánið hækkaði svo
mikið. Í fyrsta skipti núna sjáum við
enga leið úr ógöngunum.“
Breytt greiðslugeta
Um fjörutíu einstaklingar hafa óskað
aðstoðar í þessum mánuði en rúm-
lega sjö þúsund eru með lögheimili
í Árborg. „Ég fæ fullt af fólki til mín
sem er ótrúlega flott og er að standa
sig virkilega vel. Algengast er að
greiðslugeta þeirra hafi breyst og því
sé fólk í vanda,“ segir Hildur Gests-
dóttir, félagsráðgjafi hjá Árborg. Þá
staðfesti hún að hjón mættu aðeins
vera með um tvö hundruð þúsund í
tekjur á mánuði til að eiga rétt á fjár-
hagsstuðningi frá sveitarfélaginu.
Árborg leggi sig alla fram við að af-
greiða beiðnir á sem stystum tíma,
helst innan við viku og fólki sé bent
á hvert það geti leitað meiri aðstoðar.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
„Við höfum
aldrei beðið
n Er í vinnu en nær ekki endum saman n Hjón með tekjur yfir 200
þúsundum á mánuði fá ekki fjárhagsaðstoð n Engar jólagjafir í ár
um krónu“
„Við erum óvenju
rík af börnum og
barnabörnum og höfum
alltaf unnið mikið.
Flókið kerfi Mikil skriffinnska og
flókið kerfi reynist mörgum sem leita
sér aðstoðar erfitt. Myndin Er sViðsETT
selfoss Um fjörutíu manns hafa sótt um aðstoð hjá Árborg í desember.