Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2011, Qupperneq 11
Fréttir 11Miðvikudagur 14. desember 2011
T
veir stjörnulögmenn aðstoða
Egil Einarsson við að verjast
kæru átján ára stúlku sem sak-
aði hann og kærustu hans um
nauðgun. Verjandi hans heit-
ir Helgi Sigurðsson en hann starfar á
sömu stofu og Brynjar Níelsson sem
veitir ráðgjöf í málinu. Brynjar stað-
festi þetta í samtali við DV þar sem
hann sagði að leitað hefði verið til sín
vegna málsins. „Ég hef aðeins komið
að þessu máli, já, þar sem það hefur
verið leitað til mín varðandi ráðgjöf.
Ég er kannski vanari í þessum málum
en flestir aðrir. Ég var bara í útlöndum
þegar þetta kom upp og Helgi er form-
lega með hann ennþá, hvað sem síðar
kann að verða,“ segir Brynjar.
Reyndir menn
Ljóst er að Egill leggur allt undir þeg-
ar kemur að því að verjast kærunni
en samkvæmt heimildum DV kost-
ar hver klukkutími hjá lögmanni um
20–25 þúsund krónur auk þess sem
það heyrir til undantekninga að tveir
lögmenn komi að sama málinu. Þeir
Helgi og Brynjar starfa báðir á lög-
mannsstofunni Lagastoð og eru báðir
afar reyndir lögmenn.
Brynjar er formaður Lögmanna-
félags Íslands. Líkt og hann bendir
sjálfur á eru fáir sem eru eins vanir að
verja meinta kynferðisbrotamenn og
hann. Í gegnum tíðina hefur hann oft
sinnt málum sem hafa verið umdeild
og mikið í umræðunni. Brynjar var
til dæmis verjandi Guðmundar Jóns-
sonar, sem oftast er kenndur við Byrg-
ið, og nýlega tók hann að sér að gæta
hagsmuna Gunnars Þorsteinssonar í
Krossinum svo dæmi séu tekin.
Helgi var hins vegar yfirlögfræðing-
ur Kaupþings um árabil. Áður en hann
lét af störfum þar var greint frá því að
hann hefði fengið 450 milljónir króna
að láni og seinna veitt stjórn bankans
lögfræðiálit um að henni væri heimilt
samkvæmt lögum að fella niður pers-
ónulegar ábyrgðir starfsmanna.
Tekjur Egils
Það er því ljóst að Egill er kominn í
hendur manna sem kunna sitt fag og
víst er að það mun kosta skildinginn.
Egill mun þurfa að standa straum af
þeim kostnaði sjálfur þar sem enginn
sem stendur að útgáfu á efni frá hon-
um styður hann fjárhagslega í þessu
máli. Eins og Ari Edwald, forstjóri
365, segir er „… þetta auðvitað leiðin-
legt mál en þetta er eitthvað sem hann
stendur í á eigin vegum og sínum for-
sendum og verður að ráða fram úr
sjálfur. Það er okkur þannig séð óvið-
komandi.“
Egill stendur líklega undir þessu
fjárhagslega þar sem hreinn hagnaður
félagsins Fjarþjálfun ehf. var 3,7 millj-
ónir króna á árinu 2010 og 4,9 millj-
ónir árið 2009. Á síðustu tveimur árum
greiddi hann sér arð upp á rúmar þrjár
milljónir króna úr félaginu. Þar að auki
var hann með 420 þúsund krónur í
mánaðarlaun samkvæmt tekjublaði
DV. Hann starfar sem einkaþjálfari í
Sporthúsinu og gaf út þriðju bókina
fyrir jólin en fyrri bækur hans seldust
í á sjötta þúsund eintökum. Auk þess
var sjónvarpsþáttasería eftir bókinni
Mannasiðir sýnd á Stöð 2. Þá var hann
einnig meðhönnuður og andlit síma-
skráarinnar, þar sem hann lyfti fim-
leikastúlkum og setti sérstaka heiðurs-
menn á stall.
Enn er þó óvíst hvort málið fari fyrir
dóm og því ófyrirséð hversu háa upp-
hæð þarf að greiða lögfræðingum.
Stúlkan kærð
Daginn eftir að stúlkan lagði fram
formlega kæru sendi Egill frá sér yfir-
lýsingu þar sem hann sagði það refsi-
vert að saka fólk ranglega um lögbrot.
Það væri jafnframt refsivert að hafa
samband við handrukkara í þeim til-
gangi að kúga fé út úr fólki. Þær ásak-
anir sem á hann væru bornar væru
fráleitar. Hann hefði því falið lögmanni
sínum að kæra stúlkuna fyrir rangar
sakargiftir.
Björgvin Björgvinsson, yfirmaður
kynferðisbrotadeildar lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu, segir að sú
kæra sé enn í burðarliðnum. „Hann
hafði orð á því og ég veit ekki betur en
að þetta sé á leiðinni en þetta er ekki
komið,“ segir Björgvin. „Það er þá bara
nýtt mál sem er rannsakað sérstak-
lega.“
Björgvin segir að það sé ekki eins-
dæmi að menn sem eru kærðir fyrir
kynferðisbrot kæri á móti fyrir rangar
sakargiftir. „Þetta kemur reglulega upp
en það er ekki mikið um þetta.“
Sveinn Andri til varnar
Í kjölfarið kom einn af heiðurs-
mönnum Egils í Símaskránni,
Sveinn Andri Sveinsson hæsta-
réttarlögmaður, Agli til varnar
og sagði: „Femínistar hata Egil
Gilz. Móðir stúlkunnar sem kærði
viku eftir atvikið er í þeim hópi og
áhrifamaður í VG. Tilviljun? Kannski.
Ég hef aldrei verið trúaður á tilvilj-
anir.“
Seinna sagði hann í
samtali við bleikt.is: „Ég
hef veitt því athygli
að ummælin í garð
Gillz eru óvenju
rætin og hvöss.
Ádeilurnar frá fem-
ínistum og nokk-
urra innan VG eru
mjög samhljóma
og því spyr maður
sig hvort hér sé um tilviljun að ræða?
Þetta eru það skipulögð tilþrif að mað-
ur leggur bara saman tvo og tvo.“
Lögmaður stúlkunnar greindi hins
vegar frá því að móðir hennar væri
ekki í flokknum. Vísaði hann því einnig
á bug að stúlkan hefði sent handrukk-
ara á Egil eða reynt að kúga út úr hon-
um fé og sagði það af og frá að nokkuð
slíkt hafi átt sér stað á vegum þessarar
stúlku.
Fyrirspurn markaðsráðgjafa
Fleiri komu Agli til varnar. Þeirra
á meðal var Ásgeir Davíðsson, oft-
ast kenndur við Goldfinger, en hann
sendi baráttukveðjur á Facebook. „Eg-
ill minn megi styrkur þinn og konunn-
ar sýna að þú komir sterkari frá þess-
um Nornaveiðum.“
Fleiri hafa sent honum kveðjur á
opinberri Facebook-síðu Gillz undan-
farna daga. Ein segist rosalega sorg-
mædd út af þessu bulli um hann, hún
styðji hann í gegnum súrt og sætt og
setji klærnar í ljóta fólkið.
„Guð, hvað margir
eru öfundsjúkir í
þessu landi.“
Aðrir láta sér
ekki nægja að
senda honum stuðningsyfirlýsingu á
netinu. Kristján Óli Sigurðsson, mark-
aðsráðgjafi hjá 365, sendi blaðamanni
DV þessa fyrirspurn: „Hvenær ætlar
þú að birta nafnið á stúlkunni sem er
að kæra Gillz?“ Aðspurður hvort hon-
um þætti ástæða til þess svaraði hann
því til að það væri jafn mikil ástæða
til að birta nafn hennar og hans: „Þar
sem búið er að kæra hana fyrir rangar
sakargiftir og við því liggur jafn mikil
refsing eins og kæran sem hún leggur
fram.“
Einkaframtak starfsmanns
Þar sem Kristján Óli tengir sig nafni 365
var Ari Edwald spurður að því hvort
þetta væri afstaða fyrirtækisins. Þegar
DV ræddi við Ara þvertók hann fyrir
að fyrirspurn markaðsráðgjafans hefði
nokkuð með fyrirtækið að gera og kom
reyndar af fjöllum. „Ég hef ekki vitað
af þessu. Þetta er einkaframtak starfs-
mannsins og þessi spurning hefur ekk-
ert með fyrirtækið að gera. Hann er
bara að þessu að eigin frumkvæði. Mér
finnst óviðurkvæmilegt að hann sé að
senda þessa spurningu í tölvupósti
merktum fyrirtækinu sem hann vinnur
hjá,“ sagði Ari.
Tökum á þáttaröð sem byggð er á
Lífsleikni Gillz er nýlokið. Ari hefur
lýst því yfir að þáttaröðin skipti engu
máli í samhengi hlutanna og að
sýningu hennar verði frestað
um sinn. „Mér finnst það
bara vera algjört auka-
atriði í þessu máli hvað
við gerum með þessa
þætti.“
Myndbirting
Pressunnar
Eftir að bleikt.is,
vefur fyrir drottn-
ingar, ræddi við
Svein Andra um
skoðanir hans á
málinu greindi
vefurinn frá því að
til væru mynd-
ir af stúlkunni
með parinu.
Nokkrum dögum síðar birti Press-
an mynd af kærustu Egils og meintu
fórnarlambi í málinu að kyssast á
skemmtistaðnum Austur. Myndin
var tekin sama kvöld og stúlkan fór
með þeim heim og sagði Pressan að
myndin hefði verið lögð fram sem
sönnunargagn í málinu. Pressan
baðst afsökunar á myndbirtingunni
og fjarlægði fréttina af vefnum.
Lögmaður stúlkunnar sagði að
myndin hefði enga þýðingu í málinu,
sem fjallar ekki um koss á skemmti-
stað heldur nauðgun í heimahúsi.
Leigubílstjórinn fundinn
Eins og fyrr segir stendur rannsókn
málsins yfir. Lögreglan leitaði leigu-
bílstjóra sem gaf sig fram um helgina
en hann keyrði stúlkuna heim með
parinu.
Samkvæmt heimildum DV
greindi stúlkan lögreglunni frá því
að áreitnin hefði hafist í leigubíln-
um, henni hefði þótt það óþægilegt
en látið sem ekkert væri þar sem hún
taldi sig vera á leið á Players þar sem
hún kæmist í skjól hjá vinkonum sín-
um. Hún hefði ítrekað sagt að þang-
að vildi hún fara en ferðin hefði engu
að síður endað heima hjá Agli.
Björgvin sagði að „leigubílstjór-
inn varpaði ljósi á ákveðna þætti í
málinu“ en vildi þó ekki greina nán-
ar frá því. Samkvæmt heimildum
DV sagðist leigubílstjórinn ekki hafa
heyrt neitt óeðlilegt né séð hvað fram
fór í aftursætinu.
Rannsókn senn lokið
Líkt og fram hefur komið er málið for-
gangsmál hjá lögreglunni og Björg-
vin segir að rannsóknin sé vonandi
á síðasta sprettinum. Málið verði síð-
an sent til ákærusviðs lögreglunnar á
næstu dögum. „Hvort sem það verð-
ur fyrir helgi eða fljótlega eftir það.
Þá tekur ákærusviðið hér við, fer yfir
málið, vegur það og metur.“
Brynjar segir að þangað til verði
„… málið bara að fá að ganga sinn
gang og allir að anda með nefinu á
meðan.“
Stjörnulögmenn
verja egil
n Rannsókn málsins á lokastigi n Brynjar Níelsson aðstoðar lögmann Egils
n Markaðsráðgjafi kemur til varnar n Ari Edwald segir það óviðurkvæmilegt
„Guð, hvað margir
eru öfundsjúkir í
þessu landi.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
Ráðgjafi í málinu Brynjar Níelsson
starfar á sömu stofu og Helgi og hefur verið
honum innan handar í málinu.
Verjandi Egils Helgi Sigurðsson sagðist
ekki gefa það upp hverjir væru skjólstæðingar
hans þegar DV náði af honum tali. „Leigubílstjórinn
varpaði ljósi á
ákveðna þætti í málinu.
Styðja Egil Geiri vorkenndi Agli og talaði um nornaveiðar, Sveinn Andri lét umdeild ummæli
falla á Facebook og Kristján Óli taldi að það ætti að nafngreina stúlkuna.
Segist saklaus
Egill verst ásökunum
af fullum þunga.