Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.01.1983, Page 72
70
2. Skýringar við töflur og helstu nióurstöóur.
2.1. Vinnuaflsnotkun og stærðardreifing.
Upplýsingar um vinnuafl og stæröardreifingu fyrirtækja i þjónustu
eru fengnar úr skrám Hagstofu íslands um slysatryggðar vinnuvikur.
I töflum 1.-5. eru samanteknar upplýsingar um vinnuafls-
notkun ásamt visitölu vinnuafls, fjölda fyrirtækja auk skiptingar
i stærðarflokka, rekstrarform og svæðin "Reykjavik" og "utan
Reykjavikur", sem byggðar eru á skrám um slysatryggóar vinnuvikur
1978. Til þjónustu teljast þá aó jafnaði þær atvinnugreinar,
sem úrtak ÞHS nær til, með þeirri undantekningu að Sérskólar
(atv.gr. 824) eru oft taldir með þótt úrtak ÞHS nái ekki til þeirra.
Hafi fyrirtæki blandaóan atvinnurekstur t.d. þjónusturekstur
og verslun, telst það til viðkomandi þjónustugreinar með þeim
fjölda vinnuvikna, sem skráður er i þeirri grein, en ekki sam-
kvæmt heildarfjölda vinnuvikna i fyrirtækinu. Af þessari ástæðu
getur sama fyrirtækið verið talið oftar en einu sinni innan
þjónustu, þ.e. ef starfsemi þess flokkast undir fleiri en eina
þjónustugrein.
Minnstu fyrirtækjunum hefur fjölgað á árinu 1978. Fyrir-
tæki með einn ársmann eóa minna voru 700 talsins eða 29,1% af
heildarfjölda fyrirtækja 1978, samanborið við 610 eða 27,6% af
fjölda fyrirtækja 1977. Stærðardreifing fyrirtækja i þjónustu
árið 1978 var þannig að flest fyrirtækjanna eöa rúmlega 45% þeirra
hafa 52-103 slysatryggðar vinnuvikur, en aóeins 0,4% fyrirtækja
i þjónustu hafa fleiri en 60 ársmenn á sama tíma.
Félagsrekin fyrirtæki árió 1978 eru 633 talsins eða rúmlega
26% af heildarfjölda fyrirtækjanna og eru þau með 62% af heildar-
vinnuaflinu, en einstaklingsfyrirtæki í þjónustu eru 1774 aó
fjölda til eða tæplega 74% af fjöldanum með 38% af vinnuaflinu
á sama tima.
Fjöldi ársmanna eftir þjónustugreinum árin 1969-1978 er
sýndur i töflu 2.1. og i töflu 2.2. er að finna reiknaða vinnu-
aflsvisitölu, sem ætlað er að sýna hlutfallslegar breytingar
milli ára.
Vió athugun á heildaratvinnu i þjónustu (þar með talin
atv.gr. 824, Sérskólar) kemur i ljós aó á 9 ára timabili hefur
hún aukist um tæplega 50%,eða aó meöaltali um 4,5% milli ára.