Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1920, Blaðsíða 13
23
Btinaðarskýrslur 1918
11
Tiltölulega langi j'rastar hefur löðufengurinn orðið á Vestfjörð-
um, ekki nema rúml. þriðjungur af meðallieyskap undanfarinna ára.
Aftur á móti liefur útheyskapur þar verið með mesta móti, töluvert
meiri en meðalheyskapur undanfarinna ára. Á Suðvesturlandi hefur
útheyskapur líka verið heldur meiri en í meðallagi, en i öðrum
landshlutum hefur hann verið töluvert minni en í ineðallagi.
Uppskera af jarðeplum hefur orðið 26 þúsund tunnur haustið
1918. Er það minna heldur en árið á undan, er uppskeran var talin
30 þúsund tunnur, en samt meira heldur en meðaluppskera 5 áranna
næst á undan (1913 — 57), sem var 24 þúsund lunnur. Uppskera af
rófum og næpum er ekki talin nema rúml. 10 þúsund tunnur 1918.
Er það miklu minna heldur en árið áður, er uppskeran var 16 þús-
und tunnur, og líka minna en meðaluppskeran 5 áranna á undan,
sem var 14 þúsund tunnur.
Mótekja hefur verið miklu meiri haustið 1917 heldur en á
undanförnum árum, 577 þúsund hestar. Á árunum 1913 — 17 var
hún að meðaltall ekki nema 315 þúsund hestar, en 431 þúsund
heslar árið 1917. í öllum sýslum á landinu hefur mótekjan aukist
1918 og sumstaðar mjög mikið. Hrísrif hefur lika verið meira en að
undanförnu, 31 þúsund hestar. Árið 1917 var það 25 þúsund hestar,
en ekki nema 16 þúsund hestar að meðaltali á árunum 1913 — 17.
IV. Jarðabætur.
Amclioralions inlroduiles aux fermes.
Jarðabótaskýrslurnar eru teknar eftir skýrslum búnaðarfjelag-
anna, sem þau senda stjórnarráðinu, en það miðar úthlutunina á
styrk þeim til búnaðarfjelaganna, sem veittur er í fjárlögunum, við
jarðabætur þær, sem unnar hafa verið í hverju búnaðarfjelagi næsta
almanaksár á undan úthlutuninni. í þeim hreppum, sem búnaðar-
fjelög eru i, mun mega gera ráð fyrir, að langmestur hlutinn af
þeim jarðabólum, sem unnar eru, sjeu gerðar innan búnaðarfjelags-
ins, og að skýrsla búnaðarfjelagsins sje þá fullnægjandi skýrsla um
jarðabætur i hreppnum. En í sumum hreppum er ekkert búnaðar-
fjelag, og eins er svo að sjá, sem búnaðarfjelög i sömum hreppum
sendi eigi æfinlega skýrslu. En lítið mun kveða að jarðabótum i
þeim hreppum, þar sem ekkert búnaðarfjelag er til. Og þar sem
búnaðarfjelag er til, en ber sig ekki eftir jarðabótastyrknum með því
að senda skýrslu, mun líkg pbætt að gera ráð fyrir, að sáralitlar