Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1920, Blaðsíða 11
23
Búnaðarskýrslur 1918
9
Á síðari árum hefur skepnueign landsmanna samkvæmt bún-
aðarskýrslunum verið í heild sinni og samanborið við mannfjölda
svo sem hjer segir:
Á 100 manns
Sauðfje Naut Hross Sauðlje Naut Hross
1901 ... .. 482189 25 674 43199 614 33 55
1911 ... .. 574 053 25 982 43 879 671 31 51
1914 ... .. 585 022 25 380 46 644 664 29 53
1915... .. 555 971 24 732 46 618 624 28 52
1916... .. 589 343 26176 49 146 656 29 55
1917 ... .. 603 697 25 653 51 327 661 28 56
1918... .. 644 971 24 311 53 218 702 26 58
Tala sauðfjár og hrossa liefur aldrei verið meiri heldur en
1918, en nautgripatalan var hæst árið 1902, 27 þúsund, (á fyrri
hluta 18, aldar var hún þó nokkru hærri).
Um skepnufjölda landsmanna á umliðnum öldum er yfirlit í
Búnaðarskýrslum 1913, bls. 8*—10*, og vísast hjer til þess. Þó skal
þess getið, að í því er sú villa, að nautgripir 1904 eru taldir 30 498
í stað 25 498.
II. Ræktað land.
Terrain cullivé.
Búnaðarskýrslunum hefur verið harla ábótavant að því er
snertir stærð túna og kálgarða. Oft er sá dálkur algerlega auður og
verður þá að fylla hann samkvæmt eldri skýrslum, ef nokkrar eru,
og stundum breylist stærðin ótrúlega mikið frá ári til árs. Þessi
ringulreið fer þó nú að lagast eftir þvi sem lokið er við að mæla
upp tún og matjurtagarða samkv. lögum 3. nóv. 1915, en þvi á að
vera lokið 1920. Ummálsuppdrætlir af hinum mældu túnum og mat-
jurtagörðum eiga að sendast stjórnarráðinu og hefur hagstofan fengið
þá til afnota, sem komnir eru. En þegar skýrslur þessar voru
samdar voru að eins komnar mælingar úr 47 hreppum að fullu, en
auk þess að nokkru úr 30 hreppum. Er túna- og kálgarðastærðin
í töflunum hjer á eftir tekin eftir þeim allsstaðar þar sem unt hefur
verið. Þar sem túnmælingarnar hafa verið notaðar í töflu IV (bls.
12—18), er sett merkið * við túnstærðina, þegar mælingarnar ná
yfir allan hreppinn, en - þar sem mælingar þær sem komnar eru
ná að eins yfir meiri eða minni hluta af hreppnum. Hefur þá verið
notast við tölurnar úr búnaðarskýrslunum fyrir þann hluta hrepps-
b