Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1929, Page 11
Búnaðarskýrslur 1928
9
og kálgarðastærðin allsstaðar tekin eftir túnmælingunum, þar sem þær
liggja fyrir, en þar sem þær þrýtur er stærðin tekin eftir upplýsingum
þeim um stærðina, sem eru í búnaðarskýrslunum. I þeim hreppum, sem
túnmæiingar eru ókomnar úr, vísast í neðanmálsgrein til þess árs búnað-
arskýrslnanna, sem stærðin er tekin eftir. Þar sem mælingar þær, sem
komnar eru. ná aðeins yfir nokkurn hluta af hreppnum, er merkið * sett
við túnstærðina og er þá það sem á vantar tekið eftir búnaðarskýrsl-
unum. Samkvæmt skýrslunum, eins og þær birtast hjer, er túnstærðin
22 966 hektarar, en kálgarðar 492 hektrrar.
III. Jarðargróði.
Produits des récoltes.
Samkvæmt búnaðarskýrslunum hefur heyskapur að undanförnu verið:
TaBa Úthey
1901-05 meðaltal.... 609 þús. hestar 1 252 þús. hestar
1906-10 — .... 623 — — 1 324 — —
1911 — 15 — .... 667 — — 1 423 — —
1916-20 — .... 597 — — 1 472 — —
1921—25 — 751 — — 1 327 — —
1923-27 — .... 823 — — 1 352 — —
1927 864 — — 1 385 — —
1928 769 1 317 — '—
Árið 1928 hefur töðufengur orðið ll°/o minni en næsta ár á undan.
Samanborið við meðaltal 5 næstu áranna á undan (1923—27) varð hann
7 o/o minni. Aftur á móti varð útheyskapur aðeins 5 °/o minni heldur en
næsta ár á undan (1927) og 3 °/o minni en meðaltal áranna 1923—27.
2. yfirlit (bls. 10) sýnir heyskapinn í hverjum landshluta fyrir sig.
I öllum landshlutum hefur töðufengur orðið minni árið 1928 heldur
en meðaltal áranna 1923 — 27, nema á Suðvesturlandi. Þar hefur hann
orðið svipaður. Utheyskapur hefur líka víðast orðið minni en meðaltal
áranna 1923—27, nema á Vestfjörðum hefur hann orðið svipaður og á
Suðurlandi heldur meiri.
Uppskera af jarðeplum varð óvenjulega mikill 1928, 42V2 þús.
tunnur. Árið næst á undan var hún þó líka 42]/2 þús. tunnur, en meðal-
uppskera 5 næstu áranna á undan (1923—27) var aðeins 32 þús. tunnur.
— Uppskera af rófum og næpum varð árið 1928 15 þús. tunnur.
Árið á undan var hún 17 þús. tunnur, en meðaltal áranna 1923—27 var
aðeins 11 þús. tunnur.