Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1934, Síða 11
Búnaðarskýrslur 1932
9
hefur því þess verið óskað, að tilgreind væri venjuleg þyngd í hreppnum
á hestinum af hverri tegund. Þetta hefur verið gert allvíða, en mikið
vantar samt á, að það hafi verið gert allsstaðar. Samkvæmt þessum upp-
lýsingum hefur því síðan 1930 hestum af öllum tegundum allsstaðar
verið breytt i 100 kg hesta, en þar sem upplýsingar hefur vantað um
um hestþyngdina hefur verið farið eftir upplýsingunum fyrir nágranna-
hreppana eða þá sem næstir voru með slíkar upplýsingar. Samkvæmt
þessu reyndist meðalþyngd á hesti í búnaðarskýrslunum 1930 þessi:
Taða................................... 86 kg
Uthey af áveifu- og flæðiengi ......... 93 —
Annað úthey............................ 76 —
Úthey yfirleitt........................ 80 —
Svörður og mór ........................ 83 —
Hrís og skógarviður.................... 86 —
Verða þessi þyngdarhlutföll notuð, þar sem hestum frá fyrri árum
er breytt í 100 kg hesta.
Samkvæmt búnaðarskýrslunum hefur heyskapur að undan-
förnu verið (allsstaðar breytt í 100 kg hesta).
Taöa Úthey
1901—05 meðaltal . . . 524 þús. hestar 1 002 þús. hestar
1906—10 — 536 — — 1 059 — —
1911 — 15 — 574 — — 1 138 — —
1916-20 — 513 — — 1 176 — —
1921—25 — 647 — — 1 039 — —
1926—30 — 798 — — 1 032 — —
1927-31 — 812 — — 1 033 — —
1931 — 841 — — 1 039 — —
1932 — 1 045 — — 1 090 - —
Árið 1932 hefur töðufengur orðið 24 °/o meiri en næsta ár á undan.
Samanborið við meðaltal 5 næstu áranna á undan (1927—31) varð hann
jafnvel 29 °/o meiri. Aftur á móti var útheyskapur ekki nema 5 °/o meiri
heldur en næsta ár á undan (1931), en þá var hann svo að segja alveg
jafn meðaltali áranna 1927 — 31.
2. yfirlit (bls. 10) sýnir heyskapinn í hverjum landshlula fyrir sig.
í öllum landshlutum hefur töðufengur orðið töluvert meiri árið
1932 heldur en næsta ár á undan, og útheysskapur líka heldur meiri
allsstaðar nema á Suðurlandi.
Uppskera af jarðeplum 1932 varð meiri en í meðallagi, 44V2 þús.
tunnur. Árið næst á undan var hún 35 þús. tunnur, og meðaluppskera
5 næstu áranna á undan (1927—31) var 41 þús. tunnur. — Uppskera