Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1934, Blaðsíða 13
Búnaðarskyrslur 1932
11
sundurliðaðar eins og skýrslur trúnaðarmanna Búnaðarfélagsins, en skýrsl-
urnar um jarðabætnr í hverjum hreppi (tafla VIII., bh. 44—57) hafa
verið dregnar nokkuð saman, svo að þær eru ekki eins mikið sundur-
liðaðar.
Jarðabæturnar voru fyrst ekki mældar fyr en árið eftir að þær
voru unnar, og þess vegna gátu jarðabótaskýrslurnar ekki fylgst með
búnaðarskýrslunum fyrir sama árið, heldur urðu samferða árinu á eftir,
en á þessu hefur verið gerð sú breyting, að þær eiga að mælast sama
árið sem þær eru unnar. Fyrst er breytingin komst á voru því tveggja
ára jarðabætur mældar í einu. Var það sumstaðar gert 1929 (fyrir 1928
og 1929), en víðast hvar 1930 (fyrir 1929 og 1930), og teljast því jarða-
bótaskýrslur þær, sem fylgdu búnaðarskýrslunum 1930, fyrir árin 1929 og
1930. Tölurnar eru þó heldur of lágar sem tveggja ára tölur, en töl-
urnar 1928 aftur á móti heldur of háar sem eins árs tölur.
Skýrslurnar fyrir 1931 og síðan eru í nokkuð breyttu formi frá því
sem áður var. Aðalbreytingin er sú, að þær jarðabætur, sem heyra undir
II. kafla jarðræktarlaganna, og styrks njóta úr landssjóði samkvæmt hon-
um, eru teknar sérstaklega fyrst, en aðrar jarðabætur þar á eftir. Þá eru
líka sumar jarðabætur sundurliðaðar nokkuð nánar eða öðruvísi heldur
en áður.
Síðustu árin hefur tala búnaðarfélaga, tala jarðabótamanna
og tala dagsverka unnin af þeim við jarðabætur verið sem hér
segir:
Dagsverk
Félög ]aröabótamenn alls á mann
1925 ................. 176 2 797 354 000 127
1926 ................. 196 3 365 426 000 126
1927 ................. 204 3 939 503 000 128
1928 ................. 214 5 238 698 000 133
1929—30 ............... 214 4 985 746 000 149 (75)
1931 ................. 216 4 960 760 000 153
1932 ................. 217 5 516 634 000 115
Frá þvi jarðræktarlögin komu til framkvæmda var mikil aukning á
tölu jarðabótamanna fram til 1928. Síðan var hún nokkru lægri 3 næstu
árin, en aftur langhæst 1932. Dagverkatalan í heild sinni er þó lægri
það ár heldur en nokkur undanfarin ár og dagsverkatala á mann tölu-
vert lægri heldur en næsta ár á undan (1931).
Safnþrær og áburðarhús, sem gerð voru 1932, voru alls
9 187 teningsmetrar að rúmmáli. Er það heldur minna en næsta ár á
undan.
Eftir byggingarefni skiftast þau þannig: