Hagskýrslur um landbúnað

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1934, Qupperneq 13

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1934, Qupperneq 13
Búnaðarskyrslur 1932 11 sundurliðaðar eins og skýrslur trúnaðarmanna Búnaðarfélagsins, en skýrsl- urnar um jarðabætnr í hverjum hreppi (tafla VIII., bh. 44—57) hafa verið dregnar nokkuð saman, svo að þær eru ekki eins mikið sundur- liðaðar. Jarðabæturnar voru fyrst ekki mældar fyr en árið eftir að þær voru unnar, og þess vegna gátu jarðabótaskýrslurnar ekki fylgst með búnaðarskýrslunum fyrir sama árið, heldur urðu samferða árinu á eftir, en á þessu hefur verið gerð sú breyting, að þær eiga að mælast sama árið sem þær eru unnar. Fyrst er breytingin komst á voru því tveggja ára jarðabætur mældar í einu. Var það sumstaðar gert 1929 (fyrir 1928 og 1929), en víðast hvar 1930 (fyrir 1929 og 1930), og teljast því jarða- bótaskýrslur þær, sem fylgdu búnaðarskýrslunum 1930, fyrir árin 1929 og 1930. Tölurnar eru þó heldur of lágar sem tveggja ára tölur, en töl- urnar 1928 aftur á móti heldur of háar sem eins árs tölur. Skýrslurnar fyrir 1931 og síðan eru í nokkuð breyttu formi frá því sem áður var. Aðalbreytingin er sú, að þær jarðabætur, sem heyra undir II. kafla jarðræktarlaganna, og styrks njóta úr landssjóði samkvæmt hon- um, eru teknar sérstaklega fyrst, en aðrar jarðabætur þar á eftir. Þá eru líka sumar jarðabætur sundurliðaðar nokkuð nánar eða öðruvísi heldur en áður. Síðustu árin hefur tala búnaðarfélaga, tala jarðabótamanna og tala dagsverka unnin af þeim við jarðabætur verið sem hér segir: Dagsverk Félög ]aröabótamenn alls á mann 1925 ................. 176 2 797 354 000 127 1926 ................. 196 3 365 426 000 126 1927 ................. 204 3 939 503 000 128 1928 ................. 214 5 238 698 000 133 1929—30 ............... 214 4 985 746 000 149 (75) 1931 ................. 216 4 960 760 000 153 1932 ................. 217 5 516 634 000 115 Frá þvi jarðræktarlögin komu til framkvæmda var mikil aukning á tölu jarðabótamanna fram til 1928. Síðan var hún nokkru lægri 3 næstu árin, en aftur langhæst 1932. Dagverkatalan í heild sinni er þó lægri það ár heldur en nokkur undanfarin ár og dagsverkatala á mann tölu- vert lægri heldur en næsta ár á undan (1931). Safnþrær og áburðarhús, sem gerð voru 1932, voru alls 9 187 teningsmetrar að rúmmáli. Er það heldur minna en næsta ár á undan. Eftir byggingarefni skiftast þau þannig:

x

Hagskýrslur um landbúnað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um landbúnað
https://timarit.is/publication/1125

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.