Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1935, Side 62
Hagstofa íslands
gefur út eftirfarandi rit:
I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ýtarlegar skýrslur um þau
efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í
sjálfstæðum heftum og fást þau keypt einstök. Af Hagskýrslun-
um er út komið:
Verslunarskýrslur 1912—1933.
Búnaðarskýrslur 1912—1933.
Alþingiskosningar 1908—1934.
Fiskiskýrslur og hlunninda 1912—1932.
íslensk mannanöfn 1. des. 1910.
Barnafræðsla 1909—1920.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um sambandslög 1918.
Mannfjöldaskýrslur 1911—1930.
Skýrslur um skipakomur 1913—1917.
Manntal á íslandi 1. des. 1920.
Sparisjóðir 1911—1925.
Dómsmálaskýrslur 1913—1925.
Menn geta gerst áskrifendur að Hagskýrslunum með þvi að snúa
sjer beint til Hagstofunnar. Áskriftargjald er 5 krónur um árið.
II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um
innflutning og útilutning, smásöluverð og ýmislegt íleira, sem
ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslunum.
Ennfremur bráðabirgðaskýrslur um ýmislegt, sem siðar koma
um ýtarlegri skýrslur. Af Hagtiðindum eru komnir út 19 ár-
gangar (1916—1934). Áskriftargjald er 1 króna og 50 aurar
um árið.
III. Árbók Hagstofu íslands. Er þar birtur útdráttur úr þeim tal-
fræðiupplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess farið
sé mikið út í einstök atriði. Ennfremur eru þar allmargar töflur
með alþjóðlegum yfirlitum. Af árbókinni er út kominn 1. árg.
1930. Kostar 3 krónur.
IV. Manntal á íslandi árið 1703 tekið að tilhlutun Árna Magnús-
sonar og Páls Vidalin. Er það prentað í heild sinni og kemur
út eitt hefti á ári. Komin eru út 11 hefti. Byrjað var á Gull-
bringusýslu og er komið alt Vestur-, Norður- og Austurland
og út i Vestur-Skaftafellssýslu. Hvert hefti kostar 3 krónur, en
menn geta gerst áskrifendur að öllu ritinu og greiðist þá hvert
hefti við móttöku.