Hagskýrslur um landbúnað - 01.02.1935, Blaðsíða 13
Húnaða rskýrslur 1Í)H4
II
IV. Jarðabætur.
Améliomtions fbnciércs.
Með jarðræktarlögunum frá 20. júní 1920, sem gengu í giltli i. júlí
það ár, var Búnaðarfélagi íslands falin framkvænid, eða umsjón með
framkvæmd, þeirra ræktunarmála, sem Ián eða styrkur er veittur til úr
ríkissjóði. — Trúnaðarmenn Búnaðarfélagsins mæla allar jarðabætur á
landinu og eru VI.—VIII. tafla hér i skýrslunum (hls. 35—57) teknar
eftir skýrslum þeirra um þær mælingar. í skýrslum mælingamanna eru
yfirleitt taldar allar jarðabætur, að svo miklu leyti sem um þær hefur
verið kunnugt eða til þeirra hefur náðst. Yl'irlitsskýrslurnar fyrir alt
landið og sýslurnar (tafla VI—VII, bls. 35—43) eru gerðar jafnnákvæmar
og sundurliðaðar eins og skýrslur trúnaðarmanna Búnaðarfélagsins, en
skýrslurnar um jarðabætur í hverjum hreppi (tafla VIII, hls. 44—57)
hafa verið dregnar nokkuð saman, svo að þær eru ekki eins mikið
sundurliðaðar.
Jarðabæturnar voru fyrst ekki mældar fyr en árið eftir að þær voru
unnar, en á þessu hefur verið gerð sú breyting, að þær eiga að mælast sama
árið sem þær eru unnar. Fvrst er hreytingin komst á voru því tveggja
ára jarðabætur mældar í einu. Var það sumstaðar gert 1929 (fyrir 1928
og 1929), en víðast hvar 1930 (fyrir 1929 og 1930), og teljast því jarða-
bótaskýrslur þær, sem fylgdu búnaðarskýrslunum 1930, fyrir árin 1929 og
1930. Tölurnar eru þó heldur of lágar sem tveggja ára tölur, en tölurnar
1928 aftur á móti heldur of háar sem eins árs tölur.
Skýrslurnar fyrir 1931 og siðan eru í nokkuð breyttu 1‘ormi frá því
sem áður var. Aðalbreytingin er sú, að þær jarðabætur, sem heyra undir
II. kafla jarðræktarlaganna, og styrks njóta úr ríkissjóði samkvæmt hon-
um, eru teknar sérstaklega fyrst, en aðrar jarðabætur þar á eftir. Þá eru
líka sumar jarðabætur sundurliðaðar nokkuð nánar eða öðruvísi heldur
en áður.
Síðustu árin hefur tala búnaðarfélaga, tala jarðabóta-
manna og tala dagsverka unnin af þeim við jarðabætur verið sem
hér segir:
Uagsverk
l'élög .larðabótnincnn alls á niann
1925 .............. 17(5 2 797 354 þús. 127
1926 ................. 196 3 365 426 — 126
1927 ................. 204 3 939 503 — 128
1928 ................. 214 5 238 698 — 133
1929—30 ............... 214 4 985 746 — 149 (75)
1931 .................. 216 4 960 76(1 153
1932 .................. 217 5 516 634 115
1933 ................. 216 5 098 524 103
1934 ................. 217 4 801 669 — 139
Frá því jarðræktarlögin komu til l'ramkvæmda var mikil aukning á
tölu jarðabótamanna frain lil 1928. Síðan hefur hún verið svipuð, nema