Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1938, Side 18
16
Búnaðarskýrslur 1937
Samkvæmt II. kafla jarðræktarlaganna veitist styrkur
úr ríkissjóði til bj'ggingar á b u r ð a r h ú s a, til t ú n - og g a r ð r æ k t a r
(þar með talið framræslu og girðinga) og til hlöðubygginga. Styrk-
urinn nemur ákveðinni upphæð fyrir ákveðið magn jarðabóta og húsa-
bóta. Þetta gildir þó aðeins um þau býli, sem fengið hafa síðan 1923
samtals 1 000—4 000 kr. i jarðarbótastyrk. Ef þau hafa fengið minna en
1000 kr„ greiðist 20% hærri styrkur, en ef þau hafa fengið yfir 4 000 kr„
greiðist 20% minni styrkur fyrir hvert verk, og ef þau hafa fengið 5 000
kr„ greiðist enginn styrkur. Undantekning frá styrklækkun er þó gerð um
nýbýli, sem reist eru áður en nýbýlalögin frá 1936 gengu í gildi, og há-
markið fyrir þau fært upp í 7 000 kr. Af styrk hvers jarðarbótamanns
skal legg'ja 5% í sjóð þess búnaðarfélags, sem hann er meðlimur í. Styrk-
urinn fyrir jarðabætur 1937, miðað við verkið án hækkunar eða lækkunar,
var alls 497 þús. kr„ þar af 97 þúsund til áburðarhúsa, 310 þúsund til
túnræktar og garðræktar, og 90 þús. til hlöðubygginga. En vegna ákvæð-
anna um áður fenginn styrk, var styrkupphæðin hækkuð um 45 þús.
kr„ en lækkuð um 4 þús. kr„ svo að greiddur styrkur varð alls 538 þús.
kr. Af þessari upphæð runnu svo 27 þús. kr. til búnaðarfélaganna. Hvernig
tala styrkþega og styrkupphæðin skiftist á sýslurnar sést á 3. yfirliti, sein
gert hefur verið af Búnaðarfélagi íslands.
í jarðræktarlögunum er svo ákveðið, að leiguliðar á þjóðjörðum
og k i r k j u j ö r ð u m megi vinna af sér jarðarafgjaldið með jarða-
bótum á leigujörð sinni. Eftirfarandi yfirlit, sem gert er af Búnaðarfé-
laginu, sýnir hve margir búendur í hverri sýslu notuðu sér þessi ákvæði
árið 1937, og hve mikil upphæð gekk á þann hátt til landskuldargreiðslu.
Tala býla
Gullbringu- og Kjósarsýsla...........
Borgarfjarðarsýsla ..................
Mýrasýsla............................
Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla . . . .
IJalasýsla ..........................
Barðastrandarsýsla ..................
ísafjarðarsýsla .....................
Húnavatnssýsla.......................
Skagafjarðarsýsla ...................
Evjafjarðarsýsla ....................
Suður-Þingeyjarsýsla ................
Norður-Þingeyjarsýsla ...............
Norður-Múlasý'sla ...................
Suður-Múlasýsla .....................
Austur-Skaftafellssýsla..............
Vestur-Skaftafellssýsla..............
Vestmannaeyjar ......................
Rangárvallasýsla.....................
Arncssýsla ..........................
13
20
21
7
15
34
28
45
29
(>
3
34
4
10
9
7
2 585 kr.
872 -
427 —
2 295 —
196 —
616 -
1 932 -
537 —
1 228 —
2 735 -
2 128 -
815 —
1 573 —
1 784 —
420 —
2 062 -
480 —
3 164 —
4 678 -
Samtals 1937
1936
1935
1934
1933
321 30 527 kr.
365 53 458 -
333 42 792 -
328 44 091 —
331 43 671 —