Hagskýrslur um fiskveiðar

Issue

Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1919, Page 8

Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1919, Page 8
6 Fiskiskýrslur 1916 18 Árið 1909 var þilskipaflotinn, sem haldið er úti til veiða, minstur á síðari árum, bæði að tölu og lestarúmi. Síðan gekk skipatalan upp og niður i nokkur ár, en 1915 og 1916 fjölgaði þeim mikið og áttu mótorskipin mestan þáttinn í því. Meðalstærð fiskiskipanna hefir verið svo sem hjer segir: 1907 1912 .... 1908 .... 50.3 — 1913 ,... 64.4 — 1909 .... 48.9 - 1914 .... 67.g — 1910 .... 52.3 — 1915 .... 68.4 — 1911 .... 56 3 — 1916 ,... 57.1 — Fram að 1909 breytist slærðin lítið, en síðan fara skipin að stækka, botnvörpungum fjölgar en seglskipum fækkar. 1916 minkar ineðalstærðin mikið og stafar það af því, að svo mörg mótorskip bættust við það ár. Arið 1916 voru gerðir hjer út 21 bolnvörpungar, eða einum fleiri en árið á undan (1915). Af botnvörpungunum, sem gengu árið á undan, var einn seldur til útlanda (Great Admiral), en aftur á' móti bættust við 2 nýir botnvörpungar á árinu 1916 (Þór og Þor- steinn Ingólfsson). Með mótorskipum eru taldir mótorbátar, sem eru stærri en 12 tonn. Slíkum bátum hefir mjög fjölgað á síðustu árum. Árið 1915 liefur tala mótorskipanna nærri tvöfaldast og 1916 hefur hún aftur rúmlega tvöfaldast. Fyrir 1904 var allur þilskipaflotinn tóm seglskip, en nú eru þau ekki orðin nema tæpur helmingur af skipatölunni, og að eins tæpl. Vs af lestarúminu kemur á þau. Árið 1916 skiftist fiskiflolinn þannig hlutfallslega eftir tegundum skipanna. Tals Tonn Seglskip 47.3°/o 32.6 > Mótorskip 39.5— 17.7— Rotnvörpuskip 10.3- 45.3— Önnur gufuskip 2.9- 4.4 — Samtals.. lOO.o— lOO.o— Svo sem sjá má af töflu I (bls. 1) er langmest fiskiskipaútgerð frá Reykjavík. Árið 1916 gengu þaðan 50 skip eða framundir V1 hluti fiskiskipanna, en töluvert meir en helmingur af lestarúmi fiski- skipanna kom á Reykjavikurskipin, enda eru langflestir botnvörp- ungarnir gerðir þar út. Eftiifarandi yfirlit sýnir, hvernig skipin skiftust árið 1916 eftir því hvaða veiði þau stunduðu.

x

Hagskýrslur um fiskveiðar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um fiskveiðar
https://timarit.is/publication/1127

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.