Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1923, Blaðsíða 14
12
Fiskiskýrslur 1920
bls. 11*—12*, sbr. Fiskiskýrslur 1915, bls. 9*. Þó hefur kolinn, sem
aflaðist á botnvörpunga 1912—20 ekki verið tekinn með í yfirlitið,
enda þykir liklegast, að koli sá, sem aflast hefur árin þar á undan,
hafi að mestu eða öllu fallið úr skýrslum þá.
Árið 1920 nam afli sá, sem yfirlitið nær yfir, rúml. 2 8 mil-
jónum fiska alls á þilskip og báta. Gr það að tölu til tæpum 2
miljón fiskum fleira heldur en aflaðist næsta ár á undan, árið 1919,
og tæpum 5 miljón fiskum fleira heldur en aflaðist að meðaltali
næstu 5 árin á undan, 1915—19.
Þilskipaaílinn hefur orðið meiri heldur en nokkru sinni áður,
um 31/* miljón fiskum meiri heldur en meðaltal næstu 5 ára á
undan (1915 — 19). Bátaaflinn hefur lika orðið um l2/3 miljón fisk-
um meiri heldur en meðaltal næstu 5 áranna á undan, en þó l2/3
milj. minni heldur en árið 1918.
í 4. yfirliti (bls. 11*) er sýnd þyngd aflans árið 1920 miðað
við nýjan flattan fisk. Þifskipaaflanum, sem gefinn hefur verið upp
i öðru ástandi, hefur því verið breytt i nýjan fisk flattan og af-
höfðaðan eftir þeim hlutföllum, sem skýrt er frá í Fiskiskýrslum
1915, bls. 9*. Nýi fiskurinn, sem getið er um í skýrslum botnvörp-
unga, mun hvorki vera flattur nje afhöfðaður, og hefur honum því
(að undanskildu heilagfiski, skötu og öðrum fisktegundum) verið
breytt í nýjan fisk flattan, með því að draga þriðjung frá þyngd
hans. Því af bátaaflanum, sem gefið hefur verið upp í lölu, hefur
einnig verið breytt í þyngd samkvæmt hlutföllum þeim, sem tilfærð
eru í Fiskiskýrslum 1913, bls. 11*—12*, i sambandi við hlutföllin
milíi fullverkaðs fisks og nýs.
Þyngd aflans 1920 hefur þannig orðið 70 miljón kg eða um 5
miljón kg meiri heldur en árið á undan. Aflinu skiftist þannig hlut-
fallslega niður á þilskipin og bátana síðustu árin:
1918 1917 1918 1919 1920
Botnvörpuskip ... 31.0 «/o 24.9 > 10.7 °/o 17.o «/o 30.7 o/o
Önnur þilskip .... 21.4 — 23.4 — 26.5 — 30.8 — 19.c —
Mótorbátar (minni en 12 tonna) 29.o — 28.6 — 34.5 — 31.i — 30.5 -
Róðrarbátar l8.o — 23.i - 28.3 - 21.i — 19.2 —
Samtals .. lOO.o °/o lOO.o «/» lOO.o •/» 100.o °/o lOO.o o/o
Eftirfarandi hlutfallstölur sýna, hvernig aflinn 1920 skiftist hlut-
fallslega eftir þyngdinni á einstakar tegundir fiska á botnvörpuskip-
unum, öðrum þilskipnm, mótorbátum og róðrarbátum.