Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1923, Blaðsíða 8
G*
Fiskiskýrslur 1920
Meðalstærð flskiskipanna hefir verið svo sem hjer segir:
1911 1616
1912 .... 68.o — 1917 .... 55.5 —
1913 .... 64.4 — 1918 .... 43.8 —
1914 .... 67.6 — 1919 ,... 45.4 —
1915 ,... 68.1 — 1920 .... 72.4 —
Fram að 1912 fara skipin mjög stækkandi, botnvörpungum
fjölgar og seglskipum fækkar. 1912—15 breytist meðalstærðin lítið,
en 1915—18 fer hun aftur á móti siminkandi og stafar það af
fjölgun mótorskipanna og sölu botnvörpunganna haustið 1917. [Árið
1919 hækkar meðalslærðin aftur dálítið, en mjög mikið árið 1920
vegna þess að svo margir botnvörpungar bætast þá við.
Árið 1920 voru gerðir hjer út 28 botnvörpungar eða 15 fleiri
en næsta ár á undan. Af bolnvörpungum þeim, sem hjer stunduðu
veiðar árið 1919, gengu 2 eigi til fiskveiða árið 1920 (fslendingur
og Varanger), og 2 voru seldir til útlanda (Skallagrimur og Snorri
Sturluson), en aftur á móti bættust við 19 árið 1920 sem allir voru
keyptir frá útlöndum (Apríl, Ari, Austri, Draupnir, Ethel, Geir, Gylfi,
Hilmir, Ingólfur Arnarson, Kári Sölmundarson, Leifur heppi, Maí,
Njörður, Skallagrímur, Skúli fógeti, Snorri Sturluson, Walpole, Þór-
ólfur og Þorsteinn Ingólfsson). Með mótorskipum eru taldir mótor-
bátar, sem eru stærri en 12 tonn. Slfkum bátum hefur mjög fjölgað
á siðari árum. Seglskipum hefur aftur á móti fækkað mjög, i sum
hefur verið seltur mótor, svo að þau flytjast yfir í mótorskipadálk-
inn, en önnur dottið úr sögunni. Fyrir 1904 var allur þilskipaflotinn
seglskip, en nú eru þau ekki neme Vs af skipatölunni. Árið 1920
skiftist fiskiflotinn þannig hlutfallslega eftir tegundum skipanna.
l'als Toun
Seglskip 20.o °/u 8.7 “o
Mótorskip 63.5 — 25.o -
Botnvörpuskip 14.s — 63.s —
Önnur gufuskip l.i - 1.6 —
Samtals .. lOO.o n/o 100.O °/o
Svo sem sjá má af töflu I (bls. 1) er langmest fiskiskipaútgerð
frá Reykjavík. Árið 1920 gengu þaðan 38 skip eða um V® hluti
fiskiskipanna, en 61 °/o af lestarúmi fiskiskipanna kom á Reykja-
víkurskipin, enda eru langflestir botnvörpungarnir gerðir þar út.
Eftirfarandi yfirlit sýnir, hvernig skipin skiftast árið 1920 eftir
þvi hvaða veiði þau stunduðu.