Hagskýrslur um fiskveiðar

Issue

Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1923, Page 8

Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1923, Page 8
G* Fiskiskýrslur 1920 Meðalstærð flskiskipanna hefir verið svo sem hjer segir: 1911 1616 1912 .... 68.o — 1917 .... 55.5 — 1913 .... 64.4 — 1918 .... 43.8 — 1914 .... 67.6 — 1919 ,... 45.4 — 1915 ,... 68.1 — 1920 .... 72.4 — Fram að 1912 fara skipin mjög stækkandi, botnvörpungum fjölgar og seglskipum fækkar. 1912—15 breytist meðalstærðin lítið, en 1915—18 fer hun aftur á móti siminkandi og stafar það af fjölgun mótorskipanna og sölu botnvörpunganna haustið 1917. [Árið 1919 hækkar meðalslærðin aftur dálítið, en mjög mikið árið 1920 vegna þess að svo margir botnvörpungar bætast þá við. Árið 1920 voru gerðir hjer út 28 botnvörpungar eða 15 fleiri en næsta ár á undan. Af bolnvörpungum þeim, sem hjer stunduðu veiðar árið 1919, gengu 2 eigi til fiskveiða árið 1920 (fslendingur og Varanger), og 2 voru seldir til útlanda (Skallagrimur og Snorri Sturluson), en aftur á móti bættust við 19 árið 1920 sem allir voru keyptir frá útlöndum (Apríl, Ari, Austri, Draupnir, Ethel, Geir, Gylfi, Hilmir, Ingólfur Arnarson, Kári Sölmundarson, Leifur heppi, Maí, Njörður, Skallagrímur, Skúli fógeti, Snorri Sturluson, Walpole, Þór- ólfur og Þorsteinn Ingólfsson). Með mótorskipum eru taldir mótor- bátar, sem eru stærri en 12 tonn. Slfkum bátum hefur mjög fjölgað á siðari árum. Seglskipum hefur aftur á móti fækkað mjög, i sum hefur verið seltur mótor, svo að þau flytjast yfir í mótorskipadálk- inn, en önnur dottið úr sögunni. Fyrir 1904 var allur þilskipaflotinn seglskip, en nú eru þau ekki neme Vs af skipatölunni. Árið 1920 skiftist fiskiflotinn þannig hlutfallslega eftir tegundum skipanna. l'als Toun Seglskip 20.o °/u 8.7 “o Mótorskip 63.5 — 25.o - Botnvörpuskip 14.s — 63.s — Önnur gufuskip l.i - 1.6 — Samtals .. lOO.o n/o 100.O °/o Svo sem sjá má af töflu I (bls. 1) er langmest fiskiskipaútgerð frá Reykjavík. Árið 1920 gengu þaðan 38 skip eða um V® hluti fiskiskipanna, en 61 °/o af lestarúmi fiskiskipanna kom á Reykja- víkurskipin, enda eru langflestir botnvörpungarnir gerðir þar út. Eftirfarandi yfirlit sýnir, hvernig skipin skiftast árið 1920 eftir þvi hvaða veiði þau stunduðu.

x

Hagskýrslur um fiskveiðar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um fiskveiðar
https://timarit.is/publication/1127

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.