Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1930, Qupperneq 15
Fiskiskyrslur 1928
13
skipum ekki nema ty4°/o. Þó má vera, að þær fisktegundir séu nokkru
lakar framtaldar heldur en þorskfiskurinn, sem öll veiðin miðast við.
I 4. yfirliti sést, að aflaþyngdin í heild sinni hefur verið 15°/o meiri heldur
en 1927. Ef einnig er tekið tillit til tölu skipanna, sem þessar veiðar hafa stund-
að, hefur að jafnaði komið á hvert skip sú aflaþyngd sem hér segir 1926—28.
1926 1927 1928
Botnvörpuskip .... 982 þús. kg 1 561 þús. kg 1 594 þús. kg
Önnur þilskip ... . 112 — — 164 — — 189 — —
Mótorbátar...... 50 — -- 61 — — 60 — —
Róörarbátar........ 13 — — 14 — — 13 — —
Útgerðarmenn þilskipanna gefa upplýsingar um verð þilskipaafl-
ans auk þyngdarinnar, en þar sem þeir mega gefa upp fiskinn hvort
heldur verkaðan, saltaðan eða nýjan, en honum er öllum í skýrslunum
hér breytt í nýjan fisk flattan, þá verður einnig að draga verkunarkostn-
að frá verði þess fisks, sem gefinn er upp verkaður. Verð það, sem þá
kemur út, er að finna fyrir hvern útgerðarstað og Iandið í heild sinni í
töflu VI hér á eftir (bls. 17). Afli þilskipanna af þorskveiðunum eins og
hann kemur frá hendi fiskimannanna (nýr eða saltaður) verður samkvæmt
því árið 1928 25.4 miljóna króna virði, þar af afli botnvörpunga 18.0
milj. kr., og afli annara þilskipa 7.4 milj. kr.
Um verð bátaaflans eru engar skýrslur, en ef bátaaflanum er öll-
um breytt í fisk upp úr salti og gert ráð fyrir sama verði á honum sem
á þilskipafiski upp úr salti, þá verður niðurstaðan sú, að þorskafli bát-
anna hafi alls verið 9.5 miljóna króna virði árið 1928, þar af afli
mótorbáta 7.9 milj. kr. og afli róðrarbáta 1.6 milj. kr.
Verð aflans skiftist þannig á einstakar fisktegundir árið 1928 þegar
gert er ráð fyrir sama verði á bátafiskinum upp úr salti sem á þilskipafiski:
Þilskip Bátar Alls
Þorsbur........ 16 002 þús. kr. 5 736 þús. kr. 21 738 þús. kr.
Smáfiskur...... 3 882 — — 2 879 — — 6 761 — —
Vsa............... 1 009 — — 475 — — 1 484 — —
Ufsi.............. 3 364 — — 38 — — 3 402 — —
Langa............... 269 — — 69 — — 338 — —
Keila................ 42 — — 40 — — 82 — —
Heilagfiski .... 225 — — 29 — — 254 — —
Koli ............... 478 — — » — — 478 — —
Steinbílur..... 56 — — 188 — — 244 — —
Skata................ 13 — — 12 — — 25 — -
Aðrar tegundir 83 — — 29 — — 112 — —
Samtals 1928 25 423 þús. kr. 9 495 þús. kr.1 34 918 þús. kr.
1927 20 322 — — 6 855 — — 2 27 177 — —
1) Þar af 7903 þús. kr. á mótorbáta, en 1587 þús. kr. á róörarbáta. — 2) Þar af 5290 þús. kr. á
mótorbáta, en 1565 þús. kr. á róðrarbáta.