Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2008, Page 7
Fréttir
„yfirleitt alltaf verið
akandi og ekki drukkinn“
helgi. Heimildir herma að hann hafi
tekið meirihlutaskiptin nærri sér til-
finningalega. Hraðinn við skiptin
var mikill og vökunæturnar langar.
Eftir vendingarnar lá Ólafur í póli-
tísku blóði sínu þegar Óskar Bergs-
son gekk til liðs við nýjan meirihluta
undir forystu Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur. Sama kvöld og samkomulag-
ið var innsiglað sagði Hanna Birna
að persóna Ólafs hafi hvergi komið
nærri því að upp úr slitnaði. Síðar
sagði hún í Kastljósi að kjaftasögur
um Ólaf hafi verið bornar undir sig.
Hún vildi þó ekki tjá sig frekar um
hvað fólst í þessum sögum. Heim-
ildir DV herma þó að borgarfulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins hafi litið sög-
urnar alvarlegum augum og þær
hafi vegið þungt þegar kom að því
að slíta samstarfinu við Ólaf.
Aftur í framboð
Þrátt fyrir hin pólitísku skakka-
föll sem Ólafur hefur gengið í gegn-
um síðustu daga segist hann hvergi
nærri vera hættur í stjórnmálum og
ekki á leiðinni úr borgarstjórn í bráð.
Hann lætur af borgarstjóraembætt-
inu í þessari viku og um helgina birti
Fréttablaðið nýja skoðanakönnun,
þar sem hann mældist með þriggja
prósenta fylgi, sem myndi engan
veginn duga til endurkjörs í borg-
arstjórn. Í síðustu kosningum fengu
frjálsyndir og óháðir rúmlega tíu
prósenta fylgi.
Ólafur lýsti því hins vegar yfir um
helgina að hann hefði ekki áhyggj-
ur af skoðanakönnunum. Hann hafi
áður náð miklu betri árangri í kosn-
ingum heldur en skoðanakannanir
gáfu tilefni til. Hann hefur sagt það
líklegt að hann muni bjóða sig fram
aftur eftir í næstu borgarstjórnar-
kosningum. Þangað til muni hann
veita nýja meirihlutanum sterkt að-
hald í borgarstjórn.
valur@dv.is, valgeir@dv.is
Óskar Bergsson Kominn í fjórða
meirihlutann á tveimur árum.
Mynd dv / sigtryggur
Viltu slást í hópinn?
Karlakór Reykjavíkur getur alltaf bætt við sig söngmönnum og nú í haust
verða haldin raddpróf fyrir þá sem hafa áhuga á að taka þátt. Prófið er ekki
flókið þar sem prófað er raddsvið og tónheyrn. Kunnátta í tónlist og nótna-
lestri er kostur en alls ekki skilyrði.
Ef þú hefur áhuga á að koma í raddpróf skaltu hafa samband með því að
senda okkur línu í netfangið kor@karlakorreykjavikur.is fyrir 31. ágúst
næstkomandi.
Vetrarstarfið
Stærsti viðburður á fyrri hluta starfsársins eru árlegir aðventutónleikar í Hallgrímskirkju
í desember n.k. Einnig eru ráðgerðar styttri tónleikaferðir innanlands. Eftir áramót snýr
kórinn sér að fullum krafti að því að æfa fyrir 83. vortónleika sína sem haldnir verða í
Langholtskirkju í apríl 2009. Til viðbótar við þetta kemur kórinn fram við ýmis tækifæri
s.s. á árshátíðum fyrirtækja, afmælum og þess háttar.
Karlakór Reykjavíkur var stofnaður 1926 og hefur starfað
samfleytt síðan. Kórinn býður upp á krefjandi og skemmti-
leg viðfangsefni í tónlist og skemmtilegt félagsstarf í góðum
félagskap. Kórinn fer til útlanda í söngferðir að jafnaði
annað til þriðja hvert ár auk þess að halda tónleika innan-
lands. Fastir punktar í starfseminni eru jólatónleikar í
Hallgrímskirkju í desember og tónleikar í Langholtskirkju
á vorin. Kórinn æfir tvisvar í viku, tvo tíma í senn, og fara
æfingar fram í Gerðhömrum, félagsheimili kórsins að
Grensásvegi 13
Karlakór Reykjavíkur
Gerðhömrum Grensásvegi 13,
108 Reykjavík
Pósthólf 8006, 128 Reykjavík
www.KarlakorReykjavikur.is