Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2008, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2008, Blaðsíða 20
mánudagur 18. ágúst 200820 Sport Glæsimark Torres Fernando torres kom Liverpool til bjargar þegar hann skoraði sig- urmark þess á 83. mínútu gegn sunderland með gullfallegu skoti fyrir utan teig. „Við fengum færi fyrir utan markið hjá torres. Hann er lykilmaður og ekkert óeðlilegt að hann klári svona leiki. Það er mikilvægt fyrir liðið að hafa svona leikmenn innanborðs,“ sagði rafa Benitez stjóri Liverpool eftir leikinn. roy Keane stjóri sunder- land tók tapið á sig. „Við vorum orðnir þreyttir síðustu 15-20 mín- úturnar sem ég tek fulla ábrygð á. Við hefðum átt að leika erfiðari leiki á undirbúningstímabilinu,“ sagði Keane auðmjúkur. ÚRSLIT Chelsea fór frábærlega af stað í ensku deildinni þegar liðið gjör- sigraði Hermann Hreiðarsson og félaga hans í Portsmouth, 4-0, á Brúnni í gær. Silfurmeistararnir bæði í deild, deildarbikar og Evrópubikar voru einstaklega sannfærandi og líta vel út. Eng- landsmeistarar Manchester United þurftu að sætta sig við þreytu- legt jafntefli á Old Trafford gegn Newcastle United. Nasri byrjar vel ungstirnið samir nasri byrjar vel með arsenal en hann skoraði sigur- markið gegn WBa í opnunarleik tímabilsins á 4. mínútu. „Við stjórnuð- um leiknum allan tímann og voru bara að bíða efir öðru marki,“ sagði arsene Wenger stjóri arsenal eftir leikinn. WBa átti aðeins eitt gott færi þegar Johan djourou bjargaði á línu. „arsenal var frábært í leikn- um og við áttum í miklum vandræðum varnarlega sérstaklega hægra megin. Ég held þó að við eigum eftir að gera fína hluti í deildinni ef við berjumst jafnmikið og við gerðum í þessum leik,“ sagði tony mowbray stjóri WBa tiltölulega sáttur eftir leikinn. enska úrvalsdeildin Arsenal - WBA 1–0 1-0 Samir Nasri (4.). Bolton - Stoke 3–1 1-0 Grétar Rafn Steinsson (34.), 2-0 Kevin Davies (41.), 3-0 Johan Elmander (44.), 3-1 Ricardo Fuller (90.). Everton - Blackburn 2–3 0-1 David Dunn (21.), 1-1 Mikel Arteta (44.), 2-1 Yakubu (64.), 2-2 Rouqe Santa Cruz (66.), 2-3 Andrej Ooijer (90.). Hull - Fulham 2–1 1-0 K.H. Seol (8.), 1-1 Geovanni (23.), 2-1 Caleb Folan (81.). Middlesbrough - Tottenham 2–1 1-0 David Wheater (71.), 2-0 Mido (87.), 2-1 Robert Huth (90, sjálfsmark.). West Ham - Wigan 0–2 1-0 Dean Ashton (4)., 2-0 Dean Ashton (10.), 2-1 Zaki (48.). Sunderland - Liverpool 0–1 0-1 Fernando Torres (81.). Chelsea - Portsmouth 4–0 1-0 Joe Cole (13.), Nicola Anelka (26.), 3-0 Frank Lampard (44,víti.), 4-0 Deco (89.). Man. City - Aston Villa 2–4 1-0 John Carew (46.),1-1 Elano (64, víti.), 2-1 Gabriel Agbonlahor (69.), 3-1 Gabriel Agbon- lahor (74.), 4-1 Gabriel Agbonlahor (76.), 4-2 Vedran Corluka (90.). Man. United - Newcastle 1–1 0-1 Obafemi Martins (22.), 1-1 Darren Fletcher (24.). sTaðaN lið l U j T m st 1. Chelsea 1 1 0 0 4:0 3 2. aston V. 1 1 0 0 4:2 3 3. Bolton 1 1 0 0 3:1 3 4. Blackb. 1 1 0 0 3:2 3 5. Hull 1 1 0 0 2:1 3 6. middles 1 1 0 0 2:1 3 7. West Ham 1 1 0 0 2:1 3 8. arsenal 1 1 0 0 1:0 3 9. Liverpool 1 1 0 0 1:0 3 10. man. u 1 0 1 0 1:1 1 11. newcas. 1 0 1 0 1:1 1 12. Everton 1 0 0 1 2:3 0 13. Fulham 1 0 0 1 1:2 0 14. tottenh. 1 0 0 1 1:2 0 15. Wigan 1 0 0 1 1:2 0 16. sunderl. 1 0 0 1 0:1 0 17. WBa 1 0 0 1 0:1 0 18. man. C 1 0 0 1 2:4 0 19. stoke 1 0 0 1 1:3 0 20. Prtsmth. 1 0 0 1 0:4 0 MOLAR DraUmabyrjUN HUll Hull, sem ekki hefur verið spáð góðu gengi í ensku úrvalsdeildinni í ár, fékk draumabyrjun á mótinu þegar það lagði Fulham, 2-1, í fyrsta leik sínum á heima- velli. Fjórir nýjir leikmenn sem Phil Brown keypti fyrir tímabilið voru í byrjunarliðinu og þar á meðal geovanni sem kom frá manchest- er City í sumar. Hann skoraði glæsilegt jöfnunarmark Hull eftir að Ki-Hyeun hafði komið gestun- um yfir. Varamaðurinn Caleb Folan tryggði nýliðunum svo sigurinn á 81. mínútu. „Það sáu allir hversu frábær andi er í þessu félagi í þessum leik. Lík- amlegt ástand manna er frábært og það sást í seinni hálfleik,“ sagði Phil Brown stjóri Hull eftir leik. „Fyrir leikinn ræddum við um að Fulham hefði ekki gengið vel á úti- velli hingað til og við ákváðum að nýta okkur veikleika þeirra,“ sagði Brown. sigurmark Hull kom eftir skelfileg varnarmistök Pauls Konchesky. „Hann gerði þannig mistök að hann áttar sig alveg á þeim sjálf- ur,“ sagði roy Hodgson stjóri Ful- ham. „Í seinni hálfleik negldi Hull bara boltanum fram og við fórum að gera það líka.“ Grétar rafn skoraði eitt af mörkum ársins í opnunarleik Bolton: „ERFIÐUSTU SEX VIKUR SEM ÉG HEF UPPLIFAГ „Þetta var líklegra með þeim fal- legri sem ég hef skorað,“ sagði Grét- ar Rafn Steinsson glettinn við DV um stórkostlegt mark sitt gegn Stoke í fyrsta leik tímabilsins í enska bolt- anum. Mark Grétars var það fyrsta af þremur í 3-1 sigri Bolton á nýliðun- um. „Það hefur aðeins verið minnst á þetta mark við mig, en það mikil- væga var alltaf að ná í öll þrjú stigin sem voru í boði,“ sagði Grétar sem var ánægður með spilamennsku liðsins. „Það gekk allt upp sem við ætl- uðum okkur. Við vörðumst af krafti og náðum að mæta öllum þessum háu boltum sem Stoke hafði upp á að bjóða og tókum þá boltann niður og spiluðum honum á milli okkar. Þetta var mjög sannfærandi og það fór ekki jafnmikill kraftur í þetta og við höfð- um búið okkur undir,“ sagði Grétar. Grétar kom til Bolton í janúar í fyrra og var því að upplifa sitt fyrsta undirbúningstímabil í enska boltan- um. Fótboltafræðin þar í landi og í Hollandi þaðan sem hann kom eru töluvert frábrugðnar. „Þetta er allt annað á Englandi. Hér er meira um hlaup og meira reynt að fara með leikmenn yfir líkamleg mörk. Leikmenn eiga virkilega að finna fyrir hlutunum. Í Hollandi átti maður meira að fara í gegnum þetta á tækninni. Ég hef gengið í gegnum ýmis konar og löng undirbúnings- tímabil á Íslandi, þetta hjá Bolton eru erfiðustu sex vikur sem ég hef upplif- að. Það var sagt að þetta yrðu sjö til tíu dagar sem yrðu erfiðir og svo væri far- ið í leikina. Við byrjuðum hinsvegar ekkert að slaka á fyrr en á mánudag- inn síðasta. En eins og ég segi, þá er ég ýmsu vanur eftir Óla Þórðar til dæm- is, en að troða öllum þeim fræðum í sex vikur er helvíti mikið,“ sagði Grét- ar Rafn kátur að lokum. tomas@dv.is Það var aldrei spurning í hvað stefndi á Brúnni í gær þar sem Chelsea tók á móti Portsmouth. Heimamenn settu gestina undir pressu frá fyrstu mín- útu og voru búnir að skora eftir að- eins tólf mínútna leik. Joe Cole batt þá endahnútinn á fallega sendingu Michaels Ballack sem þurfti að fara út af í fyrri hálfleik vegna meiðsla. Nicola Anelka var búinn að bæta við öðru marki Chelsea eftir slakan varn- arleik Portsmouth-manna skömmu síðar og staðan var 3-0 í hálfleik eft- ir að Frank Lampard hafði skorað úr víti. Portsmouth sem sýndi mjög sterkan varnarleik í fyrra virtist hafa gleymt öllu því sem gerði liðið gott í fyrra. Samstaðan, baráttan og dugn- aðurinn voru hvergi til staðar og virk- aði eins og menn væru farnir að líta örlítið of stórt á sig. Róin á miðjunni er farin eftir brotthvarf Sulleys Munt- ari til Inter og gætu þau skipti kostað Portsmouth mikið í ár. Ekkert verður þó tekið af Chelsea sem lék fallegan fótbolta út í gegn og handbragð Scol- aris sem tók við liðinu fyrir tímabilið sást bersýnilega. komum þeim á óvart Luis Felipe Scolari, knattspyrnu- stjóri Chelsea, var eðlilega kátur með sinn fyrsta sigur í ensku úrvals- deildinni. „Ég held að eigandinn sé ánægður núna eins og stuðnings- mennirnir. Hann er náttúrulega bara einn stuðningsmaður til viðbótar,“ sagði Scolari um Roman Abramovich sem var sáttur með sitt lið. „Ég held að Portsmouth hafi ekki búist við þessari pressu sem við settum á þá í byrjun. Chelsea lék ekki svona á síð- asta tímabili,“ sagði Scolari en koll- egi hans, Harry Redknapp hjá Ports- mouth, talaði minna um leikinn og meira um fámennan hóp sinn. „Við höfum verið að reyna að styrkja hópinn en þurftum að selja Pedro Mendes til Rangers til að fá meiri pening. Hvað fær maður góð lán? Ég væri til í að reyna fá lán en það er erfitt.“ Þreyttir meistarar Englandsmeistarar Manchester United hefja tímabilið eins og í fyrra. Með jafntefli á heimavelli. Í gær náði Newcastle, sem hingað til hefur þurft að sæta alls kyns rassskellum á Old Trafford, í gott stig sem leikmenn og stjórnarmenn liðsins fögnuðu eins og þeir hefðu unnið deildina. Nýju mennirnir Jonas Guiterrez og Coll- occini voru mjög góðir í liði New- castle en það var Obafemi Martins sem kom gestunum yfir á 22. mín- útu, áður en Darren Fletcher jafnaði skömmu síðar. „Það er frábært að ná í stig hér í fyrsta leik,“ sagði Steven Tayl- or miðvörður Newcastle sem átti skínandi leik. „Við töpuðum sam- tals 11-1 í fyrra fyrir United þannig að ég tek þessu stigi fagnandi. Við lékum líka vel og áttum jafnvel meira skilið.“ TÓmas ÞÓr ÞÓrðarsoN blaðamaður skrifar: tomas@dv.is BLÁIR BYRJA VEL skýjum ofar david James horfir á anelka koma Chelsea í 2-0. myndir / gEtty imagEs Hefur upplifað margt grétar rafn kippir sér ekki upp við smá hlaup á sumrin. byrjar vel Fabricio Colloccini lék vel á Old trafford í sínum fyrsta leik með newcastle.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.