Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2008, Blaðsíða 25
Á laugardagseftirmiðdaginn opnaði
myndlistamaðurinn og alþingismaðurinn
Hlynur Halls sýninguna Tillit - Rucksicht
- Regard í NÝLÓ á Laugaveginum. Um var
að ræða eins konar yfirlitssýningu á meðal
annars myndböndum, línuteikningum og
sprey-verkum. Fjölmargir mættu á sýningu
Hlyns sem er hluti af afmælisdagskrá Ný-
listasafnsins sem fagnar 30 ára afmæli sínu
á árinu. Margir heiðruðu kappann með
nærveru sinni; Eygló Harðardóttir mynd-
listarmaður, Christan Schoen forstöðu-
maður Kynningarmiðstöðvar íslenskr-
ar myndlistar (CIA), Hannes Sigurðsson,
forstöðumaður Listasafnisns á Akureyri,
Halldór Björn Runólfsson forstöðumaður
Listasafn Íslands og Hafþór Yngvi Ragn-
arsson forstjóri Listasafns Reykjavíkur.
Allir aðal boss-arnir í bransanum. Einnig
sáust myndlistarkonurnar Ásta Ólafsdótt-
ir, Didda Hjartardóttir Leaman, Elísabet
Indra Ragnarsdóttir og Birta Guðjóns-
dóttir. Nú Björn brunamálastjóri Karls-
son leit við eins og prófessor Goddur, Elín
Hansdóttir og Steingrímur Eyfjörð. Boð-
ið var upp á Budweiser á flöskum, kannski
ekki mjög listrænn drykkur en þó eitthvað
hrátt við hann.
Kíkti á „performance“ hjá Sigtryggi
Berg Sigmarssyni í Gallery Lost Horse við
Skólastræti sem haldin var vegna sýningar-
loka og virtist byggjast á tilvistarkvöl enda
vitnaði Sigtryggur í Ingmar Bergmann
sem sagði eitt sinn að hann gæti ekki horft
á myndirnar sínar því hann yrði svo þung-
lyndur og listamaðurinn hvatti því við-
stadda óspart til að kaupa myndirnar sínar.
Eiginlega grátbað um það.
mánudagur 18. ágúst 2008 25Flugan
Veðurbarðir Vestur-
bæingar hressir á
hVerfismarkaði
Það var slegist við vindhviður og rigning-
ardropa í útsýnisfluginu yfir Frostaskjóli á
laugardaginn en þar var haldinn heimilislegur
hverfismarkaður sem Vesturbæingar (og annað
málsmetandi fólk) var búið að hlakka lengi til að
njóta. Margir frægir voru búnir að boða komu
sína en meðan býfluga var stödd þar í verstu
vindhviðunum sá hún bara bregða fyrir nokkr-
um óþekktum og veðurbörnum nágrönnum.
Náði þó að næla mér í sæta silfurskó og glingur.
Býflugan Laugavegsgæs Vakti mikla athygli á
Laugaveginum fyrir stórvaxið tól nokkurt
og uppskar mikla undrun ferðamanna.
Lögreglunni var þó ekki
skemmt Enda kannski ekki
beinlínis þekkt fyrir góðan
húmor ... Þeir vildu koma í
veg fyrir að tólið sveiflaðist
niður Laugaveginn.
Þeir félagar Ólafur F. og Jakob F.
sá fyrrnefndi lítur til himins á meðan
Kobbi glottir með dökk sólgleraugu.
Skoppa og Skrýtla
sprelluðu á skólavörðu-
stígnum og knúsuðu
þennan aðdáanda.
Opnun Skólavörðustígsins
Eggert flotti, feldskeri, og
Ólafur F. magnússon sem opn-
aði formlega götuna ástsælu.
Mundi eða Guðmundur Hall-
grímsson, kynnti nýju vorlínuna sína
á skemmtistaðnum NASA á föstu-
dagskvöldið; The Fisherman´s In-
vasion. Eins og við er að búast af
Munda, sem fer ávallt ótroðnar slóðir,
var tískusýningin mjög óhefðbundin.
Býfluga skreyttist sínu framúrstefnu-
legasta dressi og flögraði niður á
NASA en var nokkuð brugðið í brún
þegar hún sá heljarinnar slökkvi-
liðsbíll og stóran dælutrukk fyrir
utan. Fyrst hélt okkar stelpa að ver-
ið væra að kæla æstan múginn nið-
ur en við nánari eftirgrennslan kom í
ljós að Mundi makalausi hafði kom-
ið risastóru fiskabúri fyrir á staðnum
- ekki að spyrja að hugMundafluginu.
Mynduðust sprungur í glerið og búrið
fór að leka. Til allrar lukku voru menn
snöggir að bjarga málunum og þurrka
gólfin svo þessi óvænti fiskfarsi hafði
engin áhrif á sjóvið. Gestir voru gáfu-
mannaelítan með dassi af tískufríkum,
mynd- og tónlistarfólki. Fönkí blanda.
Þeirra á meðal voru til dæmis hjónin
fallegu Kría Birgis hjá Sölku útgáfu og
Darren Foreman leikari og Helgi Örn
Pétursson úr Singapore Sling. Þarna
voru líka Svanur Kristbergsson, eig-
andi Kaffibarsin, og Jói franski úr Li-
borius. Myndlistarmennirnir Birta
Guðjónsdóttir, Ásmundur og Snorri
Ásmundssynir, Eling Klingenberg
og Sigtryggur Sigmarsson úr hljóm-
sveitinni Evil Madness. Veglegu blaði
var dreift sem var með ansi skondnum
myndum af fatalínunni og sérlega vel
til fundinn gaurinn sem er aðalfyrir-
sætan. Hefði líka verið töff að notast við
Georg Lárusson forstjóra Landhelgis-
gæslunnar en það er einmitt varðskip
Gæslunnar sem prýðir forsíðuna. Og
náttúrulega um „innrás“ að ræða. Flík-
ur Munda fást nú þegar í Bandaríkj-
unum, Evrópu og Asíu og fjallað hefur
verið um hann meðal annars í heims-
þekktu tímaritunum Elle og V-Magaz-
ine. Mundi er að meika það. En ekki
NASA ... ekki meðan þeir selja gin og
tónik á 2.200 glasið.
fegurðarsamkeppni
borgarstjóra
Á leiðinni heim af NASA, rétt fyrir utan
Sjávarkjallarann, rak býfluga vængina mjúk-
lega utan í jakkafataklæddan og ómótstæðileg-
an Þórólf Árnason, fyrrverandi borgarstjóra
Reykjavíkur og núverandi forstjóra SKÝRR.
Karlmennskan og sjarmurinn drýpur af þessum
herramanni í hverju spori og var býflugan að
því komin að grátbiðja Þórólf um að gerast aftur
borgarstjóri. Hann er alla vega lang fallegastur
af öllum sem hafa sinnt því embætti að ein-
hverju marki. Fegurð og líkamlegt atgervi er svo
sem ekkert verri mælikvarði en hvað annað, og
umhugsunarvert að einfalda bara borgarstjóra-
málin með slíkum hætti. Fegurðarsamkeppni,
takk. Ekkert múður, ekkert klúður.
flugan fór víða um helgina:
listrænn þingmaður
opnar sýningu
fiskfarsinn í hug-
mundafluginu
Á NASA mundi hönnuður með afa
sínum Eiríki Óskarssyni.