Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2008, Blaðsíða 2
„Mér líður bara frábærlega að vera
kominn heim,“ segir Fannar Gunn-
laugsson sem var látinn dúsa í 8 fer-
metra fangaklefa í Nevada í Banda-
ríkjunum í hátt í fimm vikur. Hann
segir að miðað við dvölina líði hon-
um eins og kóngi hérna. Fannar
kom til landsins á laugardagsmorg-
un og býr hjá ömmu sinni og afa.
Hann var enn að jafna sig á tíma-
mismuninum þegar hann ræddi
við DV í gær.
Búinn á því
Fannar segist andlega búinn á
því og í raun enn að átta sig á hvað
hann er búinn að ganga í gegn-
um. Fangelsisdvölin var hin versta.
Hann eyddi 20 til 23 tímum á dag
inni í litlum klefanum, fékk að
borða tvisvar á dag óboðlegan mat,
fékk enga hreyfingu og missti allt í
allt 15 kíló á fimm vikum. Hann seg-
ir fangelsisdvölina ekki líka neinu
því sem hann hefði getað ímyndað
sér fyrirfram.
Hreyfingarleysið erfitt
Fannar segist hafa átt mjög erf-
itt meðan hann var í fangelsi og var
orðinn mjög þunglyndur. Innilok-
unin og hreyfingarleysið var hon-
um afar erfitt. Fannar kannast ekki
við að hafa verið hræddur meðan á
fangelsisvistinni stóð en oft spurði
hann sig hvað hann væri eigin-
lega að gera þarna inni því honum
fannst þetta svo fáránleg aðstaða.
„Það sem var erfiðast við þetta
var að vita ekki hvenær ég fengi að
fara út úr þessu fangelsi. Ef maður
hefði haft smá hugmynd um það
hefði það sennilega gert dvölina
ögn bærilegri.“
Gera það sem þeim sýnist
„Ég var kominn með atvinnu-
leyfi sem átti að gilda fram í febrúar
á næsta ári á meðan ég var að bíða
eftir græna kortinu,“ segir Fannar.
Aðdragandi handtökunnar var sá
að hann giftist bandarískri konu í
janúar árið 2007, áður en 90 daga
landvistarleyfi hans rann út. Hann
sótti seinna um græna kortið og gaf
þá upp öll nauðsynleg gögn. Hann
var síðan boðaður á fund og hand-
mánudagur 8. september 20082 Fréttir
Fannar Gunnlaugsson sem fangelsaður var fyrir rúmum fimm vikum í Nevadafylki í Bandaríkjunum fyrir að skila umsókn um græna kortið tveimur dögum of
seint er laus og kominn til Íslands. Hann missti hvort tveggja vinnuna og heimilið meðan hann sat í bandarísku fangelsi. Honum finnst gott að vera kominn heim
til Íslands og ætlar að byggja sig upp áður en hann reynir að komast til Bandaríkjanna aftur að hitta dóttur sína sem hann hefur ekki séð í hálft ár.
Búinn að missa allt
ÁSDÍS BJÖRG JÓHANNESDÓTTIR
blaðamaður skrifar: asdis@dv.is
„Það sem var erfiðast við þetta
var að vita ekki hvenær ég fengi
að fara út úr þessu fangelsi. Ef
maður hefði haft smá hugmynd
um það hefði það sennilega
gert dvölina ögn bærilegri.“
Fannar ásamt dóttur sinni Kom til
landsins á laugardagsmorgun eftir að
hafa dúsað í fimm vikur við slæman kost í
fangelsi í nevada í bandaríkjunum. Hann
segist búinn á því en bjartsýnn á
framhaldið. Hann langar út aftur að hitta
fjölskyldu og dóttur.
Ungur maður liggur enn þungt haldinn á gjörgæslu með höfuðáverka:
Bænastund í Fossvogskapellu
Bænastund fyrir ungan mann,
sem fannst meðvitundarlaus og
með mikla höfuðáverka í Hátúni á
laugardagsmorgun, fór fram í Kap-
ellunni í Fossvogi í gær. Ættingjar
og vinir komu saman og báðu fyrir-
manninum sem liggur þungt hald-
inn á gjörgæsludeild Borgarspítal-
ans.
Rannsókn lögreglu hefur hvorki
útilokað að maðurinn hafi lent í
slysi né að ráðist hafi verið á hann.
Samkvæmt upplýsingum frá rann-
sóknardeild lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu hafa engin vitni eða
sjónarvottar gefið sig fram vegna
atviksins. Lögregla auglýsti eftir
vitnum í gær, en talið er að maður-
inn hafi slasast á milli klukkan sex
og hálf átta á laugardagsmorgun.
Lögreglan hefur fengið mjög fáar
ábendingar en hún hefur haft sam-
band við fjölskyldu og vini vegna
málsins. Samkvæmt upplýsingum
frá ættingjum mannsins er lögregl-
an farin að hallast að því að frek-
ar hafi verið um slys að ræða en að
hann hafi orðið fyrir árás.
Lögreglan heldur meðal annars
þeim möguleika opnum að hann
hafi hugsanlega fallið til jarðar,
skammt frá þeim stað þar sem hann
fannst. Lögreglan segir engin verk-
summerki á staðnum benda frekar
til þess að ráðist hafi verið á hann.
Spurningar hafi kviknað í upphafi
rannsóknar, en ekkert sé hægt að
útiloka.
Samkvæmt upplýsingum frá
lækni á gjörgæsludeild Borgar-
spítalans í Fossvogi er líðan hans
óbreytt og honum haldið sofandi í
öndunarvél. Maðurinn hefur farið í
tvær aðgerðir á höfði og ólíklegt að
hann mundi gangast undir fleiri að-
gerðir í bili. Hann er sagður mikið
slasaður.
valgeir@dv.is
Borgarspítali
maðurinn fannst
meðvitundarlaus í Hátúni
á laugardag. Hann liggur á
gjörgæsludeild.
Sambýlismaður
neitar sök
Karlmaðurinn sem úrskurð-
aður var í gæsluvarðhald á
föstudaginn vegna gruns um
hrottafengna líkamsárás á sam-
býliskonu sína hefur verið í yfir-
heyrslum lögreglu um helgina.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu hefur maðurinn ekki játað
að hafa ráðist á eiginkonuna.
Konan var var aðfaranótt mið-
vikudags færð í skyndi í bráðaað-
gerð vegna heilablæðingar sem
var tilkomin vegna höfuðhöggs
sem hún hafði hlotið.