Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2008, Blaðsíða 20
mánudagur 8. september 200820 Fókus
Brennan (Will Ferrell) og Dale (John
C. Reilly) eru þroskahamlaðir fá-
bjánar sem standa á fertugu en kom-
ast upp með að hegða sér eins og
12 ára alla daga. Brennan býr einn
með föður sínum og Dale kemst að
sama skapi upp með sinn barnaskap
í skjóli nett meðvirkrar en glæsi-
legrar móður sinnar. Tilvera beggja
þessara aula hrynur þegar foreldr-
ar þeirra fella hugi saman og eftir að
þau ganga í hjónaband flytur móð-
ir Dales með son sinn inn á heimili
Brennans og föður hans.
Þessir miðaldra stjúpbræður
leggja sjálfkrafa fæð hvor á annan
og ekki bætir það ástandið að fyrst
um sinn þurfa þeir að deila herbergi.
Átök og deilur þessara seinþroska
einstaklinga reyna vitaskuld illa á
þolrif foreldranna og þarf engan
að undra þar sem baráttan byrjar á
sandkassaplaninu og þar halda syn-
ir þeirra sig með tilheyrandi áflogum
og kúka- og pisskjafthætti.
Eins og í öllum dæmigerðum
„buddy“ myndum komast þess-
ir svörnu óvinir vitaskuld að því að
fleira sameinar þá en skilur í sund-
ur og eftir að þeir finna sameigin-
legan óvin í yngri bróður Brennans,
sem er óþolandi fullkominn, mynda
stjúpbræðurnir hernaðarbandalag
sem þróast í nána vináttu.
Þá fyrst byrja þó vandræði „full-
orðna fólksins“ þar sem nýfund-
ið bróðurþelið gerir þá Dale og
Brennan hálfu erfiðari viðureign-
ar og uppátæki þeirra og sameigin-
legar tilraunir til að fóta sig í lífinu
taka hærri toll en hjónaband for-
eldra þeirra þolir. Þegar svo loks allt
er komið í fullkomið óefni rísa aum-
ingjarnir upp, finna til ábyrgðar og
taka út skyndilegan þroska og reyna
af öllum mætti að lagfæra allt það
sem bjánagangur þeirra hefur eyði-
lagt.
Sagan er semsagt ekkert þjökuð
af óþarfa frumleika en það verður
þó ekki af þeim Ferrell og Reilly tekið
að þeir eru drepfyndnir og samleik-
ur þeirra, ásamt góðum stuðningi
frá skemmtilegum aukapersónum,
gerir Step Brothers að vel heppnaðri
„fílgúdd“ gamanmynd. Fyrir Ferr-
ell er myndin einnig risastórt stökk
í rétta átt eftir hina drepleiðinlegu
Semi-Pro en hjá Reilly, sem klikk-
ar aldrei, er hún rökrétt framhald á
þreifingum hans í fíflagangsgaman-
myndum.
Í raun er varla stigsmunur á per-
sónum þeirra hér og í hinni ágætu
Talladega Nights þar sem þeir léku
kappaksturskempur og vini sem
lentu tímabundið upp á kant. Ekk-
ert að því svo sem þar sem Ferrell og
Reilly fer ákaflega vel að leika saman
hálfbjána með mannlegar taugar.
Það sem helst háir þessari mynd
og dregur hana niður er að höfund-
arnir (Ferrell og Reilly ásamt öðr-
um) hafa ekki nógu sterk tök á sög-
unni og þeir freistast til að teygja
hana í fleiri absúrd og fyndnar áttir
en lengd myndarinnar þolir. Þeim
tekst samt, góðu heilli, að hnýta alla
endana saman á mettíma í snagg-
aralegum endi þannig að við skiljum
sátt við apakettina Dale og Brennan
án þess að láta það trufla okkur um
of hversu skyndilega menn sem hafa
verið börn í 40 ár ná að fullorðnast.
Sæt mynd og fyndin og kærkom-
inn fylgifiskur Tropic Thunder og
saman bjarga þær, á síðustu stundu,
annars ófyndnu bíósumri frá algerri
niðurlægingu.
Þórarinn Þórarinsson
á m á n u d e g i
Hvað veistu?
1. Hvaða íslenski líkamsræktarfrömuður fór fyrir dóm fyrir helgi vegna rúðubrots?
2. „Þegiðu nú, guðni!“ var kallað úr ræðupúlti alþingis í nýliðinni viku. Hver mælti?
3. söngkona merzedes Club hætti nýverið í hljómsveitinni. Hvað heitir hún?
Fóstbræðrabylta
Óskar Mikaelsson
próf í fasteigna-,fyrirt.-
og skipasölu, ráðgjafi
atvinnuhúsnæðis.
Björgvin Ó. Óskarsson
Löggiltur leigumiðlari
og eignaskiptalýsandi
Valgeir Kristinsson
Hrl., Lögg. fasteignasali
Löggilt Leigumiðlun Atvinnuhúsnæðis | Fasteignir & Fyrirtæki, Fyrirtækjasala Íslands ehf | Sala - Leiga - Umsýsla - Verðmat | Áratuga reynsla!
Síðumúla 35 l 108 Reykjavík l Sími 517 3500 l www.atv.is l atv@atv.is
FYRIRTÆKJASALA
Fjöldi annara góðra fyrirtækja á skrá.
Endilega leitið nánari upplýsinfa. Sími 517-3500
Dvergshöfði, Rvk, 150 fm.
Til leigu þjónusturými á 2. hæð
sem skiptist í 8 góð herbergi.
Einstök staðsetning með ótví-
ræðu auglýsingagildi. LAUST!
Rauðarárstígur, Rvk,
493 fm. Til sölu / leigu vel
staðsett skrifstofuhúsn. Á 1.
hæð með rými í kj. Allt að 18
skrifstofur, fundarherb., kaffist.
o.fl., Auðvelt að skipta í 2 hluta.
SKILAST Í TOPP STANDI!
Lónsbraut, Hfj,
200 fm. Til leigu 200 fm nýlegt
húsnæði með lofthæð 5,5 mtr.
Tvennar mjög góðar inn-
keyrsluhurðir. Allt makbikað í
kring. Gott leiguverð.
Drangahraun, Hjf, 180 fm.
Til leigu enda-innkeyrslubil.
Háar flekahurðir og mikil
lofthæð. Salur er 120 fm, mil-
ligólf með lagnastokkum og
skrifstofu um 60 fm. Malbikuð
lóð.
Drangahraun, Skrifstofur.
Til leigu um 107 fm skrif-
stofuhæð með allt 5 skrifst.,
flísalagður sérinngangi,
eldhúskrókur, wc með sturtu.
Gluggar á 3 vegu og því bjart.
Laust fljótlega.
Stapahraun, Hfj. 168 fm.
Til leigu innkeyrslubil á 1 hæð
með 3 mtr. hurð og um 5 mtr.
mænishæð, afstúkað kaffihorn
og wc. Malbikuð lóð. 3ja fasa
rafm. LAUST!
Flugumýri, Mos, 968 fm
Til sölu / leigu nýl. hörkugott
iðnaðarhúsnæði með braut f.
brúarkrana (krani getur fylgt).
Húsið samloku-stálgrind, skrif-
stofa, wc. Um 9 mtr. mænishæð.
4x innkeyrsluhurðir. Lóðin
malbikuð. Samþ. 200 fm viðbyg-
gingarréttur. LAUST!
Grandatröð, Hfj, 274 fm.
Til sölu nýlegt og glæsilegt stál-
grindarhús að grunnfl. 201 fm
auk innréttaðs 70 fm samþ. mil-
ligólfs, salur, skrifst., eldhúskr.,
wc. Vegghæð um 5,5 mtr. Laust
fljótlega.
Fiskislóð, Rvk, 690 fm.
Til sölu mjög vel staðsett
stálgrindarhús, samþykkt
111,4 fm innréttað milligólf, 2x
innk.hurðir, lofth. um 7 + mtr.
í mæni. Skrifstofur, matsalur,
opinn vinnurými, búningaaðst.
Lóð malbikuð.
Fákafen, Rvk, 140 fm.
Til leigu einstaklega staðsett
skrifstofuhúsnæði á 2. hæð við
mjög fjölfarna umferðaræð
með mikið auglýsingagildi.
Opið rými, 3x skrifstofur, wc og
eldhúskrókur. LAUST!
Gjáhella, Hfj.
Til sölu/leigu í smíðum, allt
að 2800 fm iðnaðarhúsnæði
á 2 hæðum. Mögul. að fylgi
árs leigusamn. um skrifsto-
fuhæðina sem er 1400 fm.
Innkeyrsluhæðin 1400 fm,,
mjög góð lofthæð. Skilalýsing
og teikningar á skrifstofu.
Tunguháls, Rvk, 530 fm.
Til leigu í nýl. steyptu iðnaðarh.
Lofthæð 4,9 mtr., 2x háar innk.
hurðir. Endabil. Möguleiki er að
skipta húsnæðinu niður. Lóð
Malbikuð. Frábær staðsetning.
Mögul. að fjölga innk.hurðum.
LAUST!
NUDD OG GUFUBAÐSTOFA.
Til sölu þekkt stofa vel staðsett með öllum búnaði. Verð aðeins 2,5
millj.
BAR Í AUSTURBORGINNI
Til sölu bar og skemmtistaður í góðu húsnæði. Topp tækifæri.
FAIR TRADE SÉRVERSLUN – INNFLUTNINGUR
Til sölu eina FAIR TRADE verslunin á landinu, með handunnar
vistvænar vörur frá þróunarríkjunum. Fair Trade er alþjóðlegt hugtak
fyrir þessi viðskipti. Gott vöruúrval. Einstakt tækifæri.
GLÆSILEG TÍSKUVERSLUN Í MIÐBORGINNI
Til sölu glæsileg kvenfataverslun í miðborginni, með heimsþekkt
vörumerki, og í flottu húsnæði. Frábært tækifæri.
GLÆSILEGUR VEITINGASTAÐUR.
Til sölu mjög glæsilegur veitingastaður í nágr. borgarinnar. Sala á 40-
80% hlut kemur til greina. Sérstakur og flottur staður, velstaðsettur.
Leitið upplýsinga.
HEILDVERSLUN Í SPORTVÖRUM.
Til sölu heildverslun með þekkt merki í sportvörum. Er vel staðsett í
góðu húsnæði.Auðveld kaup. Leitið upplýsinga.
FYRIRTÆKI Í AUGLÝSINGAVÖRUM.
Allt eigin innflutningur. Sterk viðskiptasambaönd á innlendum
markaði. Yfir 300 artc. Auðveld kaup með yfirtöku og frábært verð.
TÍSKUVERSLUN Í VERSLUNARMIÐSTÖÐ.
Til sölu falleg tískuverslun með kvenfatnað, skart og fylgihluti, í
þekktri verslunarmiðstöð. Frábært tækifæri á mjög góðu verði.
BAKARÍ OG KONDITORI.
Til sölu gott bakarí í 300 fm húsnæði, vel tækjum búið auk þess
Kondtori í mjög góðu húsnæði á fjölförnum stað. Nánast allt nýr
búnaður. Getur selst í sitt hvoru lagi, eða sem ein heild
.ÚTGÁFA – PRENTVERK - UMBROT - AUGLÝSINGAR
Til sölu þekkt fyrirtæki í góðum rekstri, með góðan tækjakost og í
tryggu húsnæði. Frábært tækifæri og gott verð.
SÉRVERSLUN MEÐ NÁTTÚRULEGAR SNYRTIVÖRUR.
Verslunin LUSH Kringlunni er til sölu. Verslunin sérhæfir sig í sölu hár-
og húðsnyrtivara. Er hluti af alþjóðlegri keðju sem nær til 500 verslana
í 35 löndum. Góð kjör í boði. Frábært tækifæri. Ýmis skipti möguleg.
HÁRSNYRTISTOFA Í KÓPAVOGI – Góð Kjör.
Af sérstökum ástæðum er til sölu þekkt hársnyrtistofa, í nýlegu góðu
húsnæði í Kópavoginum. Er með eigin innflutning. Mjög góð aðstaða
og búnaður. Góð kjör í boði. Leitið nánari upplýsinga.
PÚSTVERKSTÆÐI MIÐSVÆÐIS.
Til sölu þekkt pústverkstæði í 300 fm leiguhúsnæði, mjög miðsvæðis.
4 lyftur og 3 innkeyrsluhurðir og góð bílastæði og aðkoma. Mjög góð
staðsetning.
BÍLAPARTASALA.
Til sölu rekstur þekktrar partasölu. Er í 300 fm velstaðsettu
leiguhúsnæði. Hefur starfað í 27 ár. Staðsetning einstaklega góð. Gott
verð.
Brennan og Dale neyðast til að hætta að vera fertugar gelgjur þegar kostuleg heimskupör þeirra hafa lagt líf foreldra þeirra í rúst.
Svör: 1. Arnar Grant 2. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG („viðmælandinn“ var Guðni Ágústsson) 3. Rebekka Kolbeinsdóttir
kvikmyndir
Step BrotherS
Leikstjóri: adam mcKay
Aðalhlutverk: Will Ferrell, John C. reilly,
mary steenburgen