Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2008, Page 20
miðvikudagur 1. október 200820 Fókus
Maður missir eiginkonu sína í
flugslysi og reynir að grafast fyrir
um ástæður slyssins. Hann kemst
í kynni við flugáhöfn sem lifði af
flugslys og gleymir um stund sorg
sinni. Þó er hann afar tæpur tilfinn-
ingalega, eðlilega. Í kynningartexta
um myndina á heimasíðu RIFF
segir svo: „Skyndilega verða sogar-
atburðirnir kveikja áður óþekktra
blossa af frelsi. Þessi blekking verð-
ur svæfandi gildra þar sem hann
getur endurlifað bestu stundir lífs
síns. Þetta er hversdagslegt líf þar
sem einfaldir hlutir verða sjald-
gæfir og óvenjulegir, þar sem sorg
verður gleði.“
Eins og má ráða af þessum orð-
um er fyrsta mynd Rússans Alex-
anders Mindadze sem kvikmynda-
leikstjóri, Fljúgðu hærra, ekki í
föstum skorðum línulegrar frá-
sagnar. Og reyndar er hún á löng-
um köflum á það miklu iði ef svo
má segja að ég vissi ekki hvort ég
væri að koma eða fara. Hreyfanleg
og svimandi myndatakan gerir líka
sitt hvað það varðar.
Fyrsta setningin í myndinni,
sögð af starfsmanni flugfélagsins
þegar aðstandendur farþega í flug-
ferðinni afdrifaríku drita á hann
spurningum um hvað hafi gerst,
er að mörgu leyti lýsandi fyrir það
sem koma skal: „Við vitum það
ekki.“ Oft er ekki heiglum hent að
greina hverjir eru lifandi og hverjir
framliðnir, hver var um borð í vél-
inni sem fórst og hver ekki. Myndin
gerist á mörkum raunheims og ein-
hvers konar handan- og drauma-
heims. Manni verður hugsað til
Davids Lynch.
Blekkingar og leit að svörum
eru gegnumgangandi í myndinni.
Og snögg skipti eru oft á milli til-
finninga. Farið úr átakanlegu and-
artaki yfir í gleðilegt augnablik í
einu vetfangi, frá lífgunartilraun í
hláturskast, frá því að snæða góð-
an mat og dreypa á góðu víni yfir
í stjórnlausa sorg og reiði. Og fal-
legar senur verða harmþrungnar.
Farþegarnir feigu voru á leið frá
Egyptalandi. Myndbandsupptaka
sem einn þeirra hafði tekið upp
fyrir framan píramídana finnst í
farangri hans. En enginn botn fæst
í upptökuna þar sem konan klárar
aldrei það sem hún vildi segja við
sinn heittelskaða. Píramídarn-
ir í bakgrunninum eru reyndar
merkingarbærir fyrir framvindu
myndarinnar. Hvernig hægt var
að byggja þá á sínum tíma við þær
frumstæðu aðstæður sem þá voru
er álíka mikil ráðgáta og mynd-
in. Og kannski jafnóskiljanlegt og
hvernig hægt er að lifa af flugslys.
Maður situr hugsi eftir að
myndinni lýkur. Þessi frumraun
Mindadzes fer skringilega í mann.
Það er eitthvað heillandi við hana,
hún hrærir í hausi manns. Leikur er
almennt góður og lítið út á tækni-
lega þætti að setja. En margar betri
myndirnar hefur maður samt séð
sem fara með áhorfandann í svona
ólíkindaferðalag.
Kristján Hrafn Guðmundsson
Kung fu-Kvöld
miðasala á kung fu-myndakvöld Páls Óskars Hjálmtýssonar annað kvöld er í fullum
gangi á midi.is. Sýningin, sem fer fram í BæjarBíÓi í Hafnarfirði, er hluti af riFF-
kvikmyndahátíðinni sem nú stendur yfir. Páll óskar ætlar að sýna úrval af klassísk-
um kung fu-myndum frá áttunda áratugnum. Þess ber að geta að þeir sem eiga
hátíðarpassa þurfa að kaupa miða sérstaklega fyrir þessa sýningu.
Indíánaætt-
bálkar og
veggjakrot
Málþing um argentínskar kvikmynd-
ir og þrjár leikstjórasýningar þar sem
áhorfendur geta spurt á eftir eru á
meðal þess sem er á dagskrá RIFF í
dag og kvöld. Leikstjórasýningarnar
sem um ræðir eru í fyrsta lagi heim-
ildarmyndin Þungur róður eftir Ben
Kempas (Iðnó klukkan 17.30). Hún
segir sögu nokkurra indíánaættbálka
í Norður-Kaliforníu sem berjast fyrir
lifibrauði sínu, Kyrrahafslaxinum
svokallaða, þegar byggja á stíflu í
ánni sem þeir lifa í. Bombaðu það!
eftir Jon Reiss (Iðnó klukkan 20)
sýnir hvernig nútímagötulist á rætur
sínar að rekja til veggjakrotara í New
York. Í skugga hinnar helgu bókar í
leikstjórn Arto Halonen (Norræna
húsið klukkan 20) er rannsakað
samband nokkurra stórfyrirtækja við
einræðisríkið Túrkmenistan.
fullkomin
kynning
laxness
Fyrir skömmu var Halldór Laxness –
ævisaga eftir Halldór Guðmundsson
gefin út á ensku. Bókinni hefur verið
afar vel tekið af gagnrýnendum þar
ytra sem keppast við að lofa hana.
Umfjöllun um bókina birtist með-
al annar nýverið á vef dagblaðsins
Irish Times og er gagnrýnandi þess
gríðarlega hrifinn; segir Laxness
lifna við á síðum verksins sem gerist
ekki alltaf, jafnvel ekki í bestu ævi-
sögum. „[Þýðingin] veitir enskum
lesendum fullkomna kynningu á lífi
og verkum framúrskarandi rithöf-
undar sem allir ættu að lesa.“
Rokk í
Óperunni
Janis Joplin-sýningin, sem margir
bíða væntanlega eftir að sjá, verð-
ur frumsýnd í Íslensku óperunni
á föstudaginn. Sýningin heitir
Janis 27 og vísar talan til aldurs
söngkonunnar goðsagnakenndu
þegar hún lést. Verkið, sem er eft-
ir Ólaf Hauk Símonarson, byggist
á stuttu en litríku lífshlaupi Jopl-
in sem lést af völdum fíkniefna-
neyslu árið 1970. llmur Kristjáns-
dóttir og Bryndís Ásmundsdóttir
túlka söngkonuna í sýningunni í
söng og tali í leikstjórn reynslu-
boltans Sigurðar Sigurjónssonar.
Tónlistarstjóri er Jón Ólafsson.
Ínúíata-ættbálkur hittist á mik-
illi gleðistund um hásumar. Það
eru miklir fagnaðarfundir, sögur
eru sagður og mikill matur er ét-
inn enda nóg til á þessum tíma árs.
Ningqiuq er í hópi öldunganna og
finnur á sér að eitthvað slæmt sé í
aðsigi. Leiðir skilja þar sem hún fer
í leiðangur með barnabarni sínu
og ógæfan skellur á öllu þeirra
fólki. Hún talar reglulega við and-
ana um ástandið sem virðist bara
stefna í eina átt.
Hér er á ferðinni verulega at-
hyglisverð mynd um frumbyggja
sem lifa sem hluti náttúrunnar
og eru þar að mörgu leyti þróaðri
en sú menning sem við tilheyr-
um. Hér birtist duglegt fólk sem er
gott við börn sín og lifir einföldu
en brothættu lífi. Óhugnaðurinn
er mjög sannfærandi þar sem þau
standa ein gegn náttúruöflunum
og það eru engar smá prufur sem
þau lenda í. Leikurinn er fölskva-
laus og hin prýðilega tónlist er not-
uð sparlega. Það er mikið gert með
grafíkina í lengsta upphafi á mynd
sem ég hef séð. Hér renna áfram
mjög langar óklipptar senur sem
þyngja myndina meira en þörf er á.
En tökurnar eru flestar mjög flott-
ar og eiga stundum fyllilega rétt á
sér. Sérstaklega þegar maður hef-
ur ánægju af að sjá fötin, bátana,
veiðarnar, matinn, dýrin, náttúr-
una, húðflúrin og aðrar heimild-
ir um líferni og menningu þessa
merkilega fólks. Söng- og sagna-
hefðin er mjög rík meðal ínúíta og
er einnig komið vandlega til skila
hér. Að því gefnu að það veki áhuga
áhorfandans eru þetta augnablik
sem mega svo sannarlega endast
og njóta sín.
Erpur Eyvindarson
Einvígi við náttúruöflin
kvikmyndir
Before Tomorrow
Leikstjórn: marie-Heléne Cousineau &
madeleine ivalu
Sýnd á RIFF
Before Tomorrow „verulega
athyglisverð mynd um frumbyggja
sem lifa sem hluti náttúrunnar og eru
þar að mörgu leyti þróaðri en sú menn-
ing sem við tilheyrum.“
kvikmyndir
fljúgðu hærra
Leikstjórn: alexander mindadze
Aðalhlutverk: aleksandr grishin, vladimir
gusev, maksim bityukov, klavdiya
korshunova
Sýnd á RIFF
á m i ð v i k u d e g i
Flogið
í hringi
Ólíkindaferðalag margar
betri myndirnar hefur maður
samt séð sem fara með
áhorfandann í svona
ólíkindaferðalag.