Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2008, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2008, Page 13
þriðjudagur 21. október 2008 13Fréttir Bresk stjórnvöld hyggjast auka enn á eftirlit með borgurum: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur ver- ið mikið í fréttum, bæði innan lands og utan. Ástæður þess má fyrst og fremst rekja til þess ástands sem ríkir í efnahagsmálum heimsbyggðarinnar, með örfáum utantekningum. Nú hriktir í stoðum Alþjóðagjald- eyrissjóðsins vegna máls sem varðar framkvæmdastjóra sjóðsins, Dom- inique Strauss-Kahn. Hann sætir nú rannsókn vegna meintrar misnotk- unar stöðu sinnar og er honum gefið að sök að hafa átt í kynferðislegu sam- bandi við konu sem gegndi háttsettu embætti hjá sjóðnum. Rannsóknin gæti ekki komið á verri tíma því stofnunin þyrfti að geta beitt sér af fullum þunga til að takast á við efnahagskreppuna og leita leiða til að aðstoða þjóðir heims að stand- ast hana. Runnið undan rifjum Banda- ríkjamanna Franskir stjórnmálamenn og emb- ættismenn brugðust reiðir við orðr- óminum um Strauss-Kahn, en hann birtist fyrst í bandaríska blaðinu Wall Street Journal. Frakkar sökuðu banda- rísk stjórnvöld um skítlegt eðli fyrir að hafa beint augum fréttamanna að inn- anhússrannsókn Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins á málefnum Strauss-Kahns. Samkvæmt Wall Street Journal stóð Strauss-Kahn í sambandi við Pir- oska Nagy, háttsettan embættismann í Afríkudeild sjóðsins sem ólst upp í Ungverjalandi. Sambandinu mun hafa lokið þegar eiginmaður Nagy, Mario Blejer hagfræðingur og fyrr- verandi forseti seðlabanka Argentínu, hnaut um rafrænan póst sem varpaði ljósi á það. Nagy yfirgaf Alþjóðagjaldeyrissjóð- inn og einn þáttur rannsóknarinn- ar snéri að því hvort hún hefði feng- ið hærri lokagreiðslu en manneskja í hennar starfi átti rétt til. Talsmaður sjóðsins Masood Ah- med sagði að allar ásakanir þyrfti að rannsaka, ekki síst þær sem vörðuðu háttsetta stjórnendur. En rannsóknin hefur sætt gagnrýni innan Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins vegna þess að vitn- eskja um hana hafði ekki náð eyrum allra stjórnarmanna þegar Wall Street Journal hóf fyrirspurnir sínar. Undarleg tímasetning Það gætir víða reiði í Evrópu vegna málsins. Einn franskur hagfræðingur og ráðgjafi ríkisstjórnar Frakklands sagði að tímasetning umfjöllunar Wall Street Journal væri athygli verð. „Það er mjög undarlegt að hún komi á sama tíma og fólk er að tala um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og þá forystu sem hann tekur í að skapa nýja skipan efnahagsmála á heimsvísu, sem mun ekki endilega koma auðugum, hægri- sinnuðum Bandaríkjamönnum til góða,“ sagði hagfræðingurinn í viðtali við breska blaðið Observer. Strauss-Kahn er fyrrverandi fjár- málaráðherra Frakklands, háttsettur í franska sósíalistaflokknum og þekktur fyrir hófsamar vinstriskoðanir. Í yfirlýs- ingu sem hann sendi frá sér fyrir helgi sagði hann að atvikið sem átti sér stað í einkalífi hans hefði gerst í janúar og hann hefði aldrei misnotað stöðu sína sem framkvæmdastjóri sjóðsins. Þetta er í annað skipti undanfar- in ár sem stór alþjóðleg fjármálastofn- un lendir í hringiðu hneykslis. Í júní á síðasta ári sagði Paul Wolfowitz af sér sem forseti Alþjóðabankans í kjöl- far hneykslis vegna stöðuveitingar og launhækkunar sem hann samþykkti til handa starfsmanni bankans. Um var að ræða förunaut Wolfowitz til langs tíma. Með ráðum gert Þungavigtarmenn í frönskum stjórn- málum slógu skjaldborg um Domin- ique Strauss-Kahn og á meðal þeirra var hægriflokkur Nicolas Sarkozy, for- seta Frakklands. Dominique Strauss- Kahn getur meðal annars þakkað Sar- kozy stöðu sína sem framkvæmdastjóra sjóðsins. Fjölmargir sósíalistar lýstu yfir stuðningi við Strauss-Kahn, og er hann af mörgum þeirra álitinn mögulegur forsetaframbjóðandi, sé horft til fram- tíðar. Fjöldi fréttaskýrenda í Frakklandi setti spurningarmerki við tímasetningu þessa fárviðris sem skollið hefur á Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum. Sumir leiddu líkur að því að upplýsingum um rann- sóknina, sem framkvæmd er að undir- lagi tuttugu og fjögurra manna stjórn- ar sjóðsins með aðstoð frá Rússum og Bandaríkjamönnum, hafi verið lekið af af ásetningi til að „slá hann út af lag- inu“. Frakkar út af sporinu Þetta hliðarspor Dominique Strauss- Kahn hefur ekki aðeins stefnt í hættu hans eigin ferli heldur einnig angrað forseta Frakklands, Sarkozy, sem ætl- aði Frökkum stóran hlut í því að koma á nýrri efnahagsskipan í heiminum. Þegar Sarkozy sótti George W. Bush Bandaríkjaforseta heim um helgina kynnti hann, fyrir hönd Evrópusam- bandsins, sýn sína á efnahagsskipan framtíðarinnar, en sú mynd gengur í bága við óskir Bandaríkjamanna. Sarkozy brást reiður við því að mál- efni Strauss-Kahns væru til umfjöllunar í bandarísku dagblaði, því þó Sarkozy og einhverjir innanbúðarmenn í París hefðu vitneskju um þau hafði ekki ver- ið ástæða til að ætla að þeim yrði slegið upp í fjölmiðlum. Sarkozy var Strauss-Kahn sárreið- ur fyrir að hafa varpað fyrir róða eig- in ferli og möguleikanum til að hjálpa Frakklandi á alþjóðavettvangi, með því að flækja sér í óæskilegt samband utan hjónabands. Móðursýki púrítana Franskir fjölmiðlar eru þekktir fyr- ir að láta einkalíf ráðamanna sig litlu varða, sem er í hróplegri andstöðu við þá bandarísku. Bandamenn Strauss- Kahns og nokkrir fréttaskýrendur hafa vísað þessu máli hans á bug og segja að um sé að ræða móðursýki sem rekja megi til púrítanskra bandarískra stofnana. Claude Askolovitch, ritstjóri franska dagblaðsins Le Journal du Di- manche, sagði: „Ástarævintýrið kann að vera fáránlegt í samanburði við ör- lög jarðar, en það snertir hjarta menn- ingar bandarísku ríkisstjórnarinnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.“ Auk ástarævintýrisins hafa einn- ig vaknað upp spurningar um hvort Strauss-Kahn hafi beitt áhrifum sín- um þegar Nagy yfirgaf stofnunina og haft fingurna í að hún fékk gott starf í Þróunarbanka Evrópu í Lundún- um. Strauss-Kahn hefur neitað hvoru tveggja. Hvað sem því líður er óhætt að segja að ástarævintýrið hefur dreg- ið dilk á eftir sér og hvað sem öll- um stuðning heima fyrir líður er ljóst að Strauss-Kahn gekk í bága við þær ströngu hegðunarreglur sem á að hafa í heiðri í alþjóðlegum stofnunum. Bresk stjórnvöld hyggjast auka enn frekar á eftirlit af sinni hálfu með borgurum sínum. Hvergi í heiminum er hlutfall eftirlitsmyndavéla miðað við fjölda borgara hærra en þar, og í bígerð er að hverjum sem kaupir far- síma þar í landi verði gert að skrá per- sónuupplýsingar um sig í þar til gerð- an gagnagrunn. Kaupendur farsíma munu þurfa að framvísa vegabréfi eða viðurkenndum skilríkjum öðrum þegar kaupun fara fram. Baráttumenn fyrir persónurétt- indum óttast að ef þessi áform ganga eftir sé þar um að ræða síðustu aðgerð stjórnvalda til að koma á laggirnar eft- irlitssamfélagi. Gagnagrunnur yfir eigendur allra sjötíu og fimm milljóna farsímanna í Bretlandi yrði hluti af mun stærri gagngrunni sem notaður er í barátt- unni við hryðjuverk og glæpi. Breska dagblaðið Times hefur eft- ir innanbúðarmanni í breska þinginu að embættismenn hafi þegar komið að máli við stjórnendur símafélags- ins Vodafone, sem og annarra síma- félaga, og viðrað hugmyndir um að fá gefið upp nafn og heimilisfang allra sem kaupa farsíma. Með gagnagrunninum er ætlunin að fylgjast með eigendum um fjöru- tíu milljóna frelsis-farsíma. Þeir eru keyptir af þeim sem ekki vilja gefa upp persónuupplýsingar og eru vinsælir á meðal glæpa- og hryðjuverkamanna vegna þeirrar nafnleyndar sem þeir njóta þannig gagnvart yfirvöldum. En að sjálfsögðu kýs fjöldi löghlýðinna borgara þessa farsíma fram yfir þá skráðu. Óskráðir farsímar í Bretlandi eru meira en helmingur allra farsíma í landinu og lögreglunni og leyniþjón- ustunni er takmarkað gagn af upplýs- ingum um skráða síma, ekki síst í ljósi þess að ósennilegt verður að teljast að þeir sem hyggja á hryðjuverk noti þá þegar annar kostur er fyrir hendi. Ekki ríkir sátt meðal þingmanna vegna áformanna og sumir telja þau blátt áfram brjóti í bága við lög lands- ins. Vegabréf til að kaupa síma Kleinur, flatkökur speltflatkökur skonsur, vínarbrauð laufabrauð snúðar Sólkjarnarúgbrauð Maltbrauð Normalbrauð Speltrúgbrauð Orkukubbur Ömmubakstur ehf sími 554-1588 Breskt vegabréf Verður jafnvel nauð- synlegt að framvísa slíku við farsíma- kaup. Framhjáhald veikir stöðu Frakka Nicolas Sarkozy Frakk- landsforseti er ekki eins glaðbeittur nú, enda telur hann að Strauss-kahn hafi kastað á glæ góðu tækifæri til að hjálpa Frakklandi á alþjóðavettvangi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.