Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2008, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2008, Blaðsíða 15
þriðjudagur 21. október 2008 15Umræða Óheftur kapítalismi gleypir sjálfan sig, vildi Karl Marx meina, og í sjálfu sér getur verið eitthvað til í því. Þó má ekki gleyma að opna kapítalíska kerfið, eins og við þekkjum á Vest- urlöndum, hefur haft vinninginn yfir forsjárhyggju og mikinn ríkisbú- skap. Eftir að aðalbankastjóri Lands- bankans sáluga lýsti því yfir að kapít- alisminn væri dauður hugsaði mað- ur hvað hann ætti við með því. Hann kom með nokkur dæmi, sem satt best að segja voru ákaflega barnaleg og illa hugsuð. Einhver hefði búist við meiru. Hann gerir sér ekki grein fyrir því að það sem hann lenti í og bankinn hans er akkúrat kapítalismi í sínu tærasta formi. „If you can´t pay, your toys will be taken away.“ Jacob Weisberg, höfundur bók- arinnar „The Bush Tragedy“ og rit- stjóri Slate.com, veltir því fyrir sér í Newsweek nýlega hvað við getum kallað þessa nýju tegund kapítal- isma sem gengin er í garð, og hann talar jafnframt um nokkrar tegundir kapítalisma. Weisberg tekur nokkur dæmi, og ég vil taka það fram að ég er ekki endilega sammála Weisberg um allt, en engu að síður er gaman að velta þessu fyrir sér. Fyrirtækjaismi: Hagfræði fyrr- um fasistastjórnar Ítalíu. Mussol- ini sagði að þessi tegund væri sam- runi fyrirtækja og ríkisvalds. Í þessu kerfi eru fyrirtækin þjóðnýtt í þágu stjórnvalda. Þetta minnir óneitan- lega á kommúnisma, en þó ekki. Við finnum mörg afbrigði af þess- ari gerð í heiminum í dag. Þetta er hægt að kalla ýmsum öðrum nöfn- um, svo sem einkavinakapítalismi, auðvaldsstjórnarkapítalismi olíu- ríkjanna, þjóðríkiskapítalismi, eins og víða í Afríku. Í Rússlandi Pútíns höfum við enn eina tegund, valdboðskapítalisma. Frakkar og Þjóðverjar kalla breskan og amerískan kapítalisma frjálsan markaðskapítalisma eða anglo-sax- on kapítalisma. Þeir kalla evrópskan kapítalisma blandaðan, eða félags- legan kapítalisma. Bill Gates ætlar síðan að bjarga þriðja heiminum með skapandi kapítalisma. Kannski kemur út úr þessari heimskrísu enn ein tegund, reglugerðarkapítalismi eða björgun- arvestiskapítalismi. Samkvæmt viðtölum við Lands- bankastjórann fyrrverandi finnst mér færast að kalla okkar sér-ís- lenska kapítalisma: djúpfrystan kapítalisma. Hvernig myndirðu lýsa þér í nokkrum orðum? „Ég myndi lýsa mér sem hraustum og lífsglöðum náunga sem finnst gaman að stunda íþróttir.“ Hvað drífur þig áfram? „bara viljinn.“ Hvaðan ertu? „Frá reykjavík. Fyrst átti ég heima í Ártúnsholtinu en flutti í breiðholtið þegar ég byrjaði í sjöunda bekk.“ Uppáhaldsbók? „Ég á enga uppáhaldsbók, ekki enn alla vega.“ Uppáhaldsbíómynd? „ekki heldur.“ Hvað hugsaðirðu fyrst þegar þú áttaðir þig á hvað var að gerast? „eiginlega eina sem ég hugsaði um var að koma litla bróður í burtu svo hann yrði ekki hræddur. en ég trúði þessu ekki fyrst. Svo þegar ég opnaði útidyrnar fattaði ég hvað var að gerast. Mamma vakti þann litla og klæddi hann og svo þegar ég ákvað að klifra niður tók ég hann með mér.“ Varstu hræddur? „Nei, alls ekki. Ég held að ég hafi bara verið í adrenalínkikki. Hræðslan kom heldur ekki eftir á. Ég var aðallega reiður yfir því að þetta hafi líklega verið íkveikja.“ Varstu eldfljótur niður þakrennuna? „já, ég myndi segja það.“ Klifraðirðu mikið í barn- æsku? „Nei, ég var mest bara fitubolla þegar ég var lítill. Svo hef ég bara klifrað í köðlum í leikfimitímum í skólanum. Sú æfing hefur örugglega komið sér vel.“ Gætirðu hugsað þér að starfa sem slökkviliðsmaður þegar þú verður eldri? „já, ég gæti mjög vel hugsað mér það. afi er fyrrverandi slökkviliðsmaður þannig að maður er með það í blóðinu. Ég held að maður fái líka mikið út úr því starfi, að hjálpa öðru fólki.“ Karl Marx á Íslandi GUðmUndUr FranKlín Jónsson kaupsýslumaður skrifar Eftir að aðalbankastjóri Landsbankans sáluga lýsti því yfir að kapít- alisminn væri dauður hugsaði maður hvað hann ætti við með því.“ ÆFinGin sKapar meistarann „þetta er vísun í smá hæðni um það hvernig skóflustungur hafa verið teknar víðsvegar um landið án þess að búið sé að taka nokkrar ákvarðanir. til dæmis í reykjanesbæ,“ segir segir elísabet jökulsdóttir sem vígði glænýtt Skóflustunguhorn við alþingi í gær. Hornið er ætlað alþingismönnum og verðandi ráðherrum sem vilja þjóð sinni allt það besta. mYnd dV / róbert reYnisson Ætti að boða til alþingiskosninga? „já, alveg tvímælalaust, eins og ástandið er í dag þurfum við endilega að komast inn í evrópusambandið og taka upp evruna.“ omar awad, 66 Ára SöluMaður HjÁ MjólkurSaMSöluNNi „já, mér finnst það. Ég treysti engum af þessum mönnum sem eru þarna í stjórninni núna.“ raGnar Jónsson, 49 Ára blikkSMiður „Mér finnst það bara vera vitleysa. Við ættum frekar að koma jafnvægi á hlutina áður en það væri gert. Ég myndi halda að það væri best.“ daVíð sÆmUndsson, 27 Ára biFVÉlaVirki „já, ég held að það sé tímabært að kjósa aftur.“ siGUrrós einarsdóttir, 48 Ára þjóNuStuFulltrúi Dómstóll götunnar berGUr VilHJálmsson drýgði hetjudáð þegar hann klifraði niður rennu af svölum heimilis síns, með bróður sinn í fanginu, þegar eldur varð laus í húsinu. Klifrið í leiKfimi Kom sér vel „Ég er ragnari alveg sammála.“ GerðUr Gestsdóttir, 87 Ára ellilíFeyriSþegi kjallari mynDin maður Dagsins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.