Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 01.02.1903, Page 212
368
þegar þau eigi hafa farið kringum landið á leið'inni frá útlöndnm, eins og að undanförnu,
talin í Reykjavík meðal skipa frá útlöndum, en eigi í Vestmannaeyjum, þótt þau kunni að
hafa komið þar snöggvast við, til að skila af sjer pósti o. s. frv.
Skip þau, sem skyrslur lögreglustjóra telja fiskiskip, eða komin af fiskiveiðum, eru
ekki talin með og heldur ekki herskip nje lystiskip.
Fastar verzlanir.
Innlendar eru þœr verzlanir taldar, sem eign eru þeirra manna, sem búsettir eru
hjer á landi, en hinar útlendar.
Skýrslurnar um aðfluttar og útfluttar vörur cru, eins og að undanförnu, samdar
eptir skýrslum kaupmanna og verzlunarstjóra eöa annara vörumóttakanda, og sem gefnar hafa
verið samkvæmt því, er fyrir er mælt í lögum um hagfræðisskýrslur frá 8. nóvbr. 1895, og
í því formi, sem fyrirskipað er með brjefi landshöfðingjans yfir íslandi, dags. 2. oktbr. 1895
(Stj.tíð. 1895, B. bls. 233).
Hjer á eptir er sett stutt yfirlit yfir allar tollskyldar vörur, er fluttar hafa verið
til landsins árið 1901 og útfluttar hafa verið það ár, bæði eptir tollreikningunum og verzlun-
arskýrslunum.