Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Blaðsíða 64
n Stórtenórinn Kristján Jóhannsson var í viðtali í morgunútvarpi Rásar tvö í gærmorgun. Undir lokin var hann spurður hvort hann hefði einhver ráð handa Íslendingum á þessum krepputímum. Kristján var þá ófeiminn við að greina frá því að sjálfur hefði hann tapað talsvert miklum peningum. Hann hafði þó þær ráðleggingar til þjóðarinnar að bregða ekki of mikið út af vananum og halda áfram að fara í leikhús og á tónleika. Sjálfur ætlar hann að eyða jólunum í heimili sínu á Ítalíu en ekki í kreppunni á Íslandi. Alveg ástæðulaust að roðna á brjóstunum í kreppuæsingi! Fréttaskot 512 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar. „Ég lýsi vantrausti mínu og vanþókn- un á því að Óskar Bergsson gegni formennsku í borgarráði Reykjavík- ur,“ segir Ólafur F. Magnússon, fyrr- verandi borgarstjóri, í bókun sinni sem hann lagði fyrir borgarráð í gær. En þar vandar hann Óskari og meirihlutanum ekki kveðjurnar og segist aldrei fyrr hafa kynnst öðr- um eins aðdróttunum í sinn garð. Aðdróttunum sem fari langt út fyrir velsæmismörk að hans mati. Ólafur segir Óskar hafa neitað að taka bókunina á dagskrá með þeim ummælum að „Borgarráð er ekki ruslakista fyrir andlegt rusl úr þér“. „Líklega hafa önnur eins ummæli aldrei verið viðhöfð í sögu borgar- ráðs og eru langt út fyrir það sem ég hef kynnst á löngum ferli í borg- arstjórn og borgarráði, jafnvel af hálfu Óskars Bergssonar, sem setur hvert metið á fætur öðru þessa dag- ana,“ segir Ólafur F. í yfirlýsingu sem hann sá sig knúinn til þess að senda út í gær vegna ummælanna. Það hefur lengi andað köldu á milli Óskars og Ólafs en þegar haft var samband við Óskar til þess að bera undir hann ummælin náðist ekki í hann. Kristján með Kreppuráð Klikkaður í Cocoa Puffs! ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S N A T 34 27 9 09 /2 00 6 Borgarfulltrúi viðhafði grjóthörð ummæli: Andlegt rusl ÓlAfs f. n Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefanda, telur æskilegt að bæta við flokki fyrir barnabækur innan Íslensku bókmenntaverðlaunanna í fyllingu tímans. Þetta kemur fram í pistli sem Kristján skrifar á bloggsíðu sína í gær þar sem hann furðar sig á viðbrögðum fólks við tilnefningunum til verðlaunanna sem kunngjörð voru í vikunni. „Man einhver til þess að tilnefningar til Edduverðlauna veki blaðadeilur? Ráðast leiklistargagnrýnendur að Grímuverðlaununum og heimta að þau verði ýmist lögð niður, að þau verði algerlega stokkuð upp eða kalli þau „samkvæmisleik“?“ spyr Kristján og svarar svo fyrir sína parta að hann minnist þess ekki. Vill bArnA- bÓKAfloKK n Poppsérfræðingurinn Dr. Gunni stendur fyrir kosningu um bestu plötur ársins á heimasíðu sinni this.is/drgunni. Seinni part föstudags stóð toppbaráttan milli Emilíönu Torrini og Sigur Rósar en úrslit verða kynnt á laugardag. Emilíana er með 262 atkvæði en Sigur Rós 231. Plötur beggja aðila hafa fengið frábæra dóma í miðlum er- lendis. Á eftir Em- ilíönu og Sigur Rós komu svo nýliðarnir í FM Belfast með 168 atkvæði en um tæp- lega 2.000 manns höfðu þá kosið. berst Við sigur rÓs Ólafur F. Magnússon mótmælir hörðum orðum borgarfulltrúa um andlegt rusl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.