Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Blaðsíða 56
föstudagur 5. desember 200856 Tónlist Fleetwood Mac á túr goðsagnakennda hljómsveitin fleetwood mac hefur tilkynnt um fyrsta tónleikatúr sinn í fimm ár. Í þetta skiptið verður þetta svokallaður „greatest hits“-túr eða allt það besta sem sveitin hefur sent frá sér á löngum og farsælum ferli. fyrstu tónleikarnir fara fram fyrsta mars í Pittsburgh en enn sem komið er hefur eingöngu verið tilkynnt um tónleika í bandaríkjunum og Kanada. umsjón: Krista hall, krista@dv.is Kristinn Gunnar Blöndal sendir frá sér sína fyrstu sólóskífu undir listamannsnafninu Bob Justman í dag. Hann segir alla plötuna vera hjartasorg og lögin vera samin beint frá hjartanu. FÓlK er VeSeN SKÖTUHLA‹BOR‹ Á fiORLÁKSMESSU Bjó›um einnig upp á sali til útleigu fyrir 15 til 300 manns: Fundahöld, árshátí›ir, afmæli, ættarmót, fyrirtækjamóttökur, starfsmannahóf, florrablót, giftingaveislur. Vesturgata 2 Sími 552 3030. Fax 561 7758 GSM 840-2566 www.restaurantreykjavik.is restaurant@restaurantreykjavik.is ÁSAMT JÓLAHLA‹BOR‹I PANTA‹U Í SÍMA 552 3030 Kristinn Gunnar Blöndal hóf tón- listarferil sinn einungis þrettán ára í dauðarokkshljómsveitinni Solit- ery og hefur síðan þá verið virkur þátttakandi í íslenskri tónlistarsenu. Meðal annars hefur hann spilað á orgel í Botnleðju, þeytt skífum á skemmtistöðum borgarinnar undir plötusnúðanafninu KGB og spilað á alls kyns hljóðfæri með hinum ýmsu hljómsveitum. Í dag sendir hann frá sér sína fyrstu sólóplötu, Happiness & Woe undir listamannsnafninu Bob Justman. „Það eru þrjú lög á plötunni sem eru alveg orðin tíu ára gömul. Ég byrjaði að semja þetta sem ég er að gefa út núna þegar ég bjó í London. Ég þorði bara aldrei að gera neitt meira í þessu. Ég hugsaði einhvern veginn alltaf með mér hvað ég væri að vilja upp á dekk og hvað ég héldi að ég gæti eitthvað sungið. Langmest af tímanum mínum síðustu ár hef- ur farið í að manna mig upp í það að syngja,“ segir Kristinn. Þreyttur á að vera í hljómsveit „Ég var búinn að vera í hljómsveitum svo lengi og var orðinn þreyttur á því. Fólk er vesen. Einhvern veginn varð því pælingin hjá mér að gera þessa plötu bara einn. Ég samdi hvert ein- asta snitti á henni fyrir utan einhvern performans sem hljóðfæraleikararn- ir komu með inn í þetta til að lita lög- in aðeins,“ segir Kristinn sem upp- haflega tók plötuna upp sjálfur, einn með sjálfum sér. „Svo vildi ég hafa aðeins meiri life-fíling í þessu og tók plötuna upp aftur með hljómsveit. Flís spil- ar flesta grunnana, Amiina spilar strengina, Orri trommari í Sigur Rós spilar í einu lagi, Siggi Guðmunds í Hjálmum í öðru lagi og svo syng ég einn ástardúett með Ragnheiði Gröndal.“ Ástarplata með öllu tilheyrandi Sjálfur segir Kristinn plötuna ekki vera partíplötu heldur frekar plötu sem maður hlusti bara á fyrir sjálf- an sig. „Öll platan er hjartasorg. Það virðist hafa verið rosalega rauður þráður í því sem ég geri að það verð- ur einhvern veginn hálfsorglegt alltaf. Ég veit ekki af hverju það gerist. Lögin á plötunni eru eins og sögur úr mínu lífi,“ segir hann. Kristinn segist hafa verið ákveð- inn í því að vera ekki með nein- ar myndlíkingar í textum sínum. „Ég vildi semja eitthvað sem kæmi beint frá hjartanu eins hættu- legt og það er. Maður er að taka ákveðinn séns með því að standa svona berskjaldaður. Ég hugsaði með mér að ef þetta ætti að vera eitthvað sem skipti einhverju máli fannst mér þetta verða að vera ein- lægt. Þetta er í rauninni bara ást- arplata með öllu sem því fylgir en það virðist samt sem ástin falli frekar í aðra áttina en hina svo það verður meiri sorg sem kemur út úr því en gleði.“ Happiness & Woe kemur í allar betri hljómplötuverslanir í dag og hyggst Kristinn halda útgáfutón- leika eftir áramót. Hægt er að kynna sér Bob Justman betur á myspace- síðunni: Myspace.com/bobjust- man. krista@dv.is Bob Justman gefur út sína fyrstu sólóplötu í dag. „Ég vildi semja eitthvað sem kæmi beint frá hjartanu eins hættulegt og það er.“ Mynd LiLJa Birgisdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.