Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Qupperneq 14
FÖSTUdagUr 24. OKTÓBEr 200814 Helgarblað
Magnúsi Þorsteinssyni, til Rúss-
lands. Þeir hugðust freista gæfunn-
ar í ríki sem var í lamasessi eftir að
Sovétríkin féllu. Við fallið sköpuðust
fjölmörg tækifæri sem feðgarnir létu
svo sannarlega ekki framhjá sér fara.
Björgólfur eldri á að hafa haft sam-
band við ræðismann Íslands í Rúss-
landi á þeim tíma, Ingimar Hauk
Ingimarsson, og rætt við hann um
að stofna átöppunarverksmiðju þar
í landi. Úr varð að þeir hófu rekstur
á Balcan Bottling Company. Miklar
deilur spruttu upp á meðal hluthafa
í fyrirtækinu. Aðallega vegna þess
að átöppunarbúnaður sem feðgarn-
ir lofuðu barst seint og þegar hann
kom reyndist hann ónothæfur. Í
kjölfarið sökuðu hluthafar þá feðga
um að reyna sölsa undir sig fyrir-
tækið og vefengdu eignarhaldið.
Eftir þrjú ár fyrir rétti lauk málinu
með þeirri niðurstöðu að Ingimar
hefði verið óheimilt að selja félög-
unum fyrirtækið.
Kokkteill í áldósum
Frumraun feðganna var mis-
heppnuð en þeir gáfust ekki upp.
Þeir stofnuðu brugghúsið Bravo og
þá fyrst fór boltinn að rúlla. Brugg-
hús Björgólfs framleiddi til að byrja
með áfenga gosdrykkinn Alcop-
ops, sem var kokkteill seld-
ur í áldósum. Drykkurinn
mæltist vel fyrir en árið 1998
græddu þeir tuttugu millj-
ónir á drykknum. Björgólf-
ur Thor varð stórhuga. Fyr-
irtækið bruggaði bjórinn
Botchkarov en markhópur-
inn var rússneska millistétt-
in. Björgólfur Thor réðst þá í
heljarinnar markaðsherferð
þar sem fyrirtækið bauð tíu
þúsund gestum í miðborg
Pétursborgar í risateiti. Því
fylgdi öflug auglýsingaher-
ferð og viðbrögðin létu ekki á
sér standa; bjórinn sló í gegn.
Loksins var allt farið að ganga
Björgólfi Thor í hag. Að auki fóru
risafjárfestar að veita honum at-
hygli, þar á meðal Deutsche Bank,
einn stærsti banki Evrópu.
Mafían og Pétursborg
En það voru ekki allir sammála
því hvernig feðgarnir högnuðust í
Rússlandi. Blaðamaðurinn Ian Griff-
iths skrifaði umdeilda grein í blaðið
The Guardian þar sem hann skrifaði
að útrás feðganna væri byggð á rúss-
neskum mafíupeningum. Ástæð-
an var einföld að Ians mati, það var
undarlegt hvernig brugghús þeirra
feðga komust á toppinn. Í grein-
inni var ritað að tveir aðrir forstjórar
brugghúsa í Pétursborg, sem voru
í samkeppni við Björgólf Thor, hafi
ekki verið jafnheppnir og þeir feðg-
ar. Einn þeirra fannst látinn í eld-
húsinu heima hjá sér. Hann hafði
verið skotinn. Annar forstjóri var
skotinn margsinnis fyrir utan Merc-
edes-bifreið sína. Að lokum brann
þriðja brugghúsið til kaldra kola og
grunur lék á um íkveikju. Í greininni
segir að rússneska mafían hafi haft
mikinn áhuga á brugghúsunum.
Að auki var Pétursborg álitin
mafíuborg, þar gerðist ekk-
ert án vitundar og vilja rúss-
nesku mafíunnar.
Snúið úr útlegð
Eftir óhöpp forstjóra
samkeppnisaðilanna
var Bravo skyndi-
lega orðin leið-
andi í blóðugum
bruggheimum
Rússlands.
Á þremur
árum var
Bravo
sú
bruggverksmiðja sem var í örustum
vexti í landinu. Gríðarlegur vöxtur
veksmiðjunnar og gott gengi vakti
athygli bjórrisans Heinekens. Árið
2002 gerði alþjóðlega bjórfyrirtæk-
ið tilboð í brugghús Björgólfsfeðg-
anna. Tilboðið hljómaði upp á fjög-
ur hundruð milljónir dollara. Á því
gengi sem var þá reyndust þetta
vera þrjátíu og fimm milljarðar
króna. Sjálfur hagnaðist Björgólfur
um hundrað og tíu milljónir doll-
ara. Heineken sagði við það tæki-
færi að ein af ástæðunum fyrir því
að Heineken vildi kaupa fyrirtæk-
ið væri vegna þess að það væri ekki
tengt mafíunni í Rússlandi.
Feðgarnir tóku tilboðinu. Nú var
kominn tími til þess að snúa úr sjálf-
skipaðri útlegð frá Íslandi. Þeir áttu
harma að hefna.
Hefndin kortlögð
Feðgarnir komu eins og storm-
sveipur til Íslands og keyptu Lands-
bankann á tólf milljarða króna. Þeg-
ar bankinn var einkavæddur átti
Samson-hópur feðganna næsthæsta
tilboðið í bankann. Engu að síður
fengu þeir bankann. Þeir náðu 45
prósenta eignarhaldi í honum og
fyrsti hornsteinninn að hefnd-
inni var lagður. Menn lyftu
augabrúnum, Haf-
skipsmálið var
enn í fersku
minni.
Meðferðin sem Björgólfur eldri fékk
var greypt í huga sonar hans. Svo
virðist sem allar hans gjörðir hafi
mótast af þeirri hörmulegu lífs-
reynslu að sjá föður sinn hlekkjað-
an, niðurlægðan og lokum dæmdan.
Sjálfur hefur Björgólfur margsinnis
sagt að hann sé ekki drifinn af pen-
ingahyggju, heldur þrá eftir virð-
ingu.
Kolkrabbinn upprættur
Björgólfur Thor hófst handa.
Fyrirtækið Pharmaco, sem var eign
þeirra feðga, var sameinað lyfjafyr-
irtækinu Delta og að lokum nefnt
Actavis. Björgólfur, ásamt viðskipta-
félögum sínum, fór að kaupa hluti í
Eimskip, félaginu sem knésetti föð-
ur hans; holdgerving kolkrabba
Sjálfstæðisflokksins. Þeir greiddu
talsverðar fjárhæðir fyrir níu pró-
senta hlutafé í Eimskip. Á sama tíma
keypti Landsbankinn önnur nítján
prósent í félaginu. Enginn í valda-
klíku Sjálfstæðisflokksins gerði sér
grein fyrir áætlunum feðganna.
Skyndilega, sex mánuðum síð-
ar, kom í ljós að Sjálfstæðisflokk-
urinn hafði misst tökin á félaginu,
fjöreggi flokksins í áratugi, í hendur
feðganna. Björgólfur Thor var orð-
inn stjórnarformaður stærsta skipa-
félags Íslands. Í kjölfarið breyttu
feðgarnir Eimskip í fjárfestingafé-
lag. Hefndin var sæt og feðgarnir
náðu henni fram með sínum leið-
um. Í dag riðar Eimskip
til falls vegna risa-
skulda sem
félagið
hef-
„Hann var fullur af orku
og húmor og vissi ná-
kvæmlega hvað hann
vildi.“
Afmæli aldarinnar Vinir og ættingjar Björgólfs
mæta í Leifsstöð, alls óafvitandi um að þeir væru
á leiðinni til Jamaíka í afmæli aldarinnar þar sem
rapparinn heimsfrægi 50 Cent hélt uppi fjörinu.
Glæsilíf í háloftunum Björgólfur á einkaþotu
sem metin er á milljarð króna og ber skjaldar-
merki hans. Merkið er nýstárleg útgáfa af
Þórshamrinum úr norrænu goðafræðinni.
Björgólfur Thor
horfir fram á erfiða
tíma í viðskiptalíf-
inu á meðan kona
hans til margra ára,
Kristín Ólafsdótt-
ir, ber annað barn
þeirra undir belti.