Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Side 17
FÖSTUdagUr 24. OKTÓBEr 2008 17Fréttir
Frændur og Fjendur
Reiðubúnir Rússar
Þegar í ljós kom að Bandaríkja-
menn ætluðu ekki að hjálpa Íslend-
ingum kom hjálparhönd úr óvæntri
átt. Seðlabankinn greindi frá því að
morgni 7. október að Rússar hefðu
ákveðið að veita Íslendingum 680
milljarða króna lán. Það var síðan
dregið að einhverju leyti til baka,
enda var lánið langt frá því að vera
í höfn. Íslensk sendinefnd fór utan
og hefur rætt við Rússa undanfarna
daga. Margir hafa sett spurninga-
merki við það hvaða ástæður liggja
að baki velvild Rússa í okkar garð.
Þeir eru nú sagðir vilja bíða eftir nið-
urstöðu viðræðna Íslendinga við Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn.
Norðmenn hjálpfúsir
Norðmenn hafa frá upphafi lýst
því yfir að þeir muni styðja við Íslend-
inga í efnahagskreppunni, þrátt fyr-
ir að hafa í fyrradag kært Glitni fyrir
fjárdrátt. Velferðarráðherra Noregs,
Liv Signe Navarsete, sagði við norska
ríkisútvarpið í gær að Ísland væri
frændþjóð í kreppu og að Norðmenn
vildu sýna okkur stuðning. Sendi-
nefnd á vegum Norðmanna átti að
koma til Íslands í fyrradag en henni
er falið að ræða með hvaða hætti
Norðmenn geti stutt Íslendinga.
Með í för er Svíi. Á vef norska ríkis-
útvarpsins er bent á að Norðmenn
hafi þegar lánað okkur 1,7 milljarða
norskra króna en þar er verið að tala
um gjaldeyrisskiptasamninga við
seðlabankana á Norðurlöndum sem
Ísland nýtti að hluta til í síðustu viku.
Norðmenn hafa ýmist nefnt lána-
fyrirgreiðslur eða sérfræðiaðstoð.
Boltinn sé hins vegar hjá íslenskum
stjórnvöldum.
Hamingjusamir Hollendingar
Fleiri þjóðir hafa stigið fram á
sjónarsviðið undanfarnar vikur. Ís-
lendingar hafa til að mynda náð sam-
komulagi við Hollendinga um lausn á
málum þarlendra innistæðueigenda
á Icesave-reikningum Landsbank-
ans. Hollendingar veita Íslendingum
lán til að standa undir þeim greiðsl-
um sem við munum inna af hendi
til þeirra. Sú upphæð er rúmlega 3,1
milljarður króna. Bæði Árni Mathie-
sen fjármálaráðherra og kollegi hans
Wouter J. Bos segjast ánægðir með
þá niðurstöðu.
Japanir eru önnur þjóð sem hugs-
anlega kemur að björgunaraðgerð-
um hér á Íslandi. Reuters sagði að
Japanir hefðu lagt fram tillögu um að
bjóða Íslendingum lánalínu vegna
vandans. Össur Skarphéðinsson iðn-
aðarráðherra sagði svo á fundi Sam-
fylkingarinnar um helgina að Japanir
væru líklegir til að leggja til fé, ef og
þegar samkomulagi hafi verið komið
á við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Fjár-
málaráðherra Japans sagðist á blaða-
mannafundi ekki kannast við þetta.
Hjálpa en gera grín
Danir hafa einnig sagt að þeir
muni ekki horfa á Íslendinga sökkva
í hafið. Anders Fogh Rasmussen, for-
sætisráðherra Dana, sagði 15. októ-
ber að þeir myndu gera það sem í
þeirra valdi stæði til að styðja við
bakið á Íslendingum í þeirri kreppu
sem nú væri í landinu. Hann sagði
enn fremur að norrænu löndin
myndu gera það sem þau gætu til að
styðja okkur.
Á hinn bóginn gerði Extra blad-
et stólpagrín að Íslendingum þeg-
ar Íslendingar voru hvað aumast-
ir. Danskur blaðamaður stóð á götu
úti með dós og safnaði peningum til
hjálpar Íslendingum.
Þýskir í sárum
Þjóðverjar hafa einnig verið
nefndir í umræðu síðustu daga. Í
fyrradag bárust af því fréttir að þýski
bankinn Bayern Landesbank hafi
óskað eftir fjárstuðningi frá þýska
ríkinu. Bankinn er sagður óska eft-
ir 5,4 milljörðum evra í aðstoð. 1,5
milljarður af upphæðinni er rakinn
til lána til íslenskra banka.
Frakkar eru enn ein þjóðin sem
Íslendingar hafa rætt við
síðustu vikur. Ingibjörg
Sólrún Gísladótt-
ir utanríkisráðherra
ræddi við kollega
sinn í frönsku rík-
isstjórninni Bern-
ard Kouchner um
helgina. Fram kom
að Kouchner hafi
undirstrikað vin-
áttu Frakka og sam-
stöðu í þeirri erfiðu
stöðu sem Ísland er
í núna. Ráðherr-
arnir stefna að
því að hittast
eins fljótt
og auðið
er.
Vinir í raun
Alls er óvíst hvaðan Íslendingar
munu fá lán. Menn virðast þó nokk-
uð sammála um að fyrsta skrefið sé
að semja við Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn. Eftir slíkt samkomulag virðast
Norðmenn, Rússar og jafnvel Japanir
reiðubúnir að rétta fram hjálpar-
hönd. Ljóst er að um gríð-
arlegar upphæðir er
að ræða. Máltæk-
ið segir að sá sé
vinur sem í raun
reynist. Á það
mun reyna á
næstu vikum
og mánuð-
um.
Hér má sjá Hvaða þjóðir
Hafa komið að málum
eftir Hrunið á Íslandi.
BRetlaNd
Settu okkur á
lista með
hryðjuverka-
þjóðum.
daNmöRk
danir vilja hjálpa
en geta ekki stillt
sig um að gera
grín að okkur.
HollaNd
Hollendingar náðu
fljótt og vel að semja
við Íslendinga.
JapaNiR
Tvennum sögum fer af
vilja Japana til
lánafyrirgreiðslu.BaNdaRíkiN -
Kanarnir voru þeir
fyrstu sem sneru við
okkur bakinu.
NoReguR
Frændur okkar
Norðmenn vilja hjálpa
Íslendingum.
SVíÞJóð
Svíar eiga fulltrúa í
sendinefnd Norð-
manna hér á landi.
RúSSaR
rússar réttu
fram óvænta
hjálparhönd
þegar öll sund
voru lokuð.
ÞýSkalaNd
Þýskur banki
situr í súpunni
vegna lána til
Íslendinga.
allir af vilja gerðir Norðmenn virðast
ætla að hjálpa litlu frændum sínum.
Bandaríkja-
menn Sýndu
Íslendingum
fingurinn.
kastaðist í kekki geir
hefur látið athuga
grundvöll fyrir kæru á
hendur Bretum.