Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Side 23
FÖSTUdagUr 24. OKTÓBEr 2008 23Umræða
Hinn langþráði draumur margra
okkar hefur ræst, draumurinn um
að komast á kortið, draumurinn um
að eftir okkur sé tekið, að við séum
áberandi í samfélagi þjóðanna,
að við séum menn með mönnum
og kunnum að míga standandi,
að hlandbuna okkar nái lengra en
annarra, að litla eyjan í Norðurhöf-
um verði heimsfræg um aldir alda.
Við höfum nært þennan draum
okkar og varðveitt hann og krútt-
að hann og kelað hann og við höf-
um verið á barmi heimsfrægðar og
við höfum þakkað útrásarherrun-
um fyrir að færa okkur næstum al-
veg inn í miðjan drauminn. Við höf-
um líka lotið þeim vegna velgengni
þeirra og visku og hugrekkis þeirra
og djörfungar og við höfum mært
þá og hyllt þá í ræðu og riti og við
höfum prísað okkur sæl fyrir að
hafa í sífellu kosið ríkisstjórnirnar
sem gerðu þeim þetta allt svo létt
og mögulegt og hjálpuðu þeim eftir
fremsta megni.
Nema hvað, nú hefur sem sé hinn
langþráði draumur okkar ræst og í
dag erum við heimsfrægar mann-
eskjur - en þegar það hefur nú loks-
ins gerst sýnum við á okkur verri
hliðina og viljum vera allt öðruvísi
fræg en við erum orðin.
Við vildum sem sé alls ekki frægð-
ina sem við fengum; við vildum alls
ekki láta henda okkur út úr gælu-
dýarbúðum í Skotlandi, úr leigu-
húsnæði í Þýskalandi, af börum í
Noregi, úr búðum í Danmörku, við
vildum ekki að hrækt væri á okkur á
veitingastöðum í London, að klippt
væri á kortin okkar á Spáni, að nafn-
ið á landinu okkar væri notað sem
hugtak yfir illvígan sjúkdóm, að við
værum kölluð heimskingjar, að við
værum plássuð meðal hryðjuverka-
manna, að við værum þjófar og
ræningjar og svikarar og okkur sýnd
lítilsvirðing alls staðar í hvívetna.
Þetta vildum við alls ekki.
Við vildum bara dansa með og
dilla okkur og verða venjulega fræg,
eðlilega fræg, fallega fræg, gáfulega
fræg, fínt fræg, ríkt fræg, sætt fræg,
góð fræg. Við vildum verða fræg en
alls ekki svona fræg.
Málið er einfalt: jarðvegurinn var
fyrir hendi og við vorum plötuð af
því að við vorum með ofbirtu í aug-
unum og sjálfsmynd okkar var léleg,
við létum blekkjast, við hlustuðum
ekki á viðvörunarorð, við heyrðum
ekkert nema það sem stjórnmála-
mennirnir sem við kusum báru fyr-
ir okkur og vildu að við heyrðum;
við sáum ekki svikin og prettina og
við létum það viðgangast að hinn
hégómlegi draumur okkar breytt-
ist í einu hendingskasti í andhverfu
sína. Og nú er næsta víst að hann éti
okkur upp til agna.
Nema auðvitað að við bregðumst
öðruvísi við en ætlast er til, hættum
að kóa, heimtum að á okkur sé hlust-
að og að ekki sé dílað með líf okkar
og framtíð í afkimum og krefjumst
þess að sitjandi stjórnvöld víki og
sjónhverfingamennirnir sem unnu
í skjóli þeirra axli ábyrgð á þeim
voðaverkum sem þeir hafa unnið
þjóð sinni með því meðal annars að
borga sjálfir sínar eigin skuldir.
Þegar við höfum gert þetta skul-
um við líta til annarra drauma.
Hver er konan? „Ásta Kristmanns-
dóttir.“
Hvar ertu uppalin? „Í Keflavík.“
Hvað drífur þig áfram? „Tólf spora
kerfi aa-samtakannna þó sérstak-
lega síðasta sporið. að hjálpa
öðrum.“
Af hverju ertu stoltust? „Edrú-
mennskunni.“
Hvaða bók er á náttborðinu
þínu? „aa-bókin.“
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? „Lax er besti matur sem ég
fæ.“
Hvert er uppáhaldshúsverkið
þitt? „Ég hef gaman af því að vaska
upp, það er svo róandi.“
Hvernig leggst nýja starfið í þig?
„Það leggst mjög vel í mig og ég
hlakka mikið til að takast á við það.
Ég held að þetta verði einstaklega
gefandi.“
Hvað varstu að gera áður? „Ég
hef mikið unnið í þjónustustörfum
síðustu ár.“
Eigið þið von á mörgum
vistmönnum um mánaðamótin?
„Við höfum pláss fyrir fimmtíu manns
og vonumst til að fylla húsið.“
Hvernig líst fólki á húsið? „Þeim
sem hingað hafa komið líst mjög vel
á húsið. Þetta á eftir að verða frábær
stökkpallur fyrir marga. Fólk þarf ekki
að eiga neitt þegar það kemur til
okkar. Við erum með sængur, kodda,
leirtau og allt það nauðsynlegasta.
Minnst getur fólk dvalist hér í þrjá
mánuði og mest í þrjú ár.“
Draumurinn „að giftast unnusta
mínum.“
Með ofbirtu í augunum
Von Trapp-börnin Skráning í áheyrnarprufur vegna uppsetningar Borgarleikhússins á Söngvaseið fór fram úr björtustu vonum en um fjögur þúsund börn á aldrinum átta til
átján ára skráðu sig í Borgarleikhúsinu á miðvikudag. Fjórtán þeirra verða valin til að fara með hlutverk sjö barna Von Trapp í sýningunni. Hver þau verða kemur í ljós í lok
nóvember. MynD SigTryggur Ari
Hvernig verða næstu mánuðir?
„Mér líst ekkert allt of vel á þá, það
hættir við atvinnuleysi og ég er mjög
svartsýn.“
ÁgúSTínA ÓlAfSDÓTTir
60 Ára KarTÖFLUSÖLUKOna
„Ég held þeir verði mjög erfiðir, það
verður verðbólga og hugsanlega
atvinnuleysi.“
HElgA HAnnESDÓTTir
66 Ára LæKnir
„Ég vona að þjóðin hafi vit á því að fara
slappa af og fari að versla rétt og sleppi
öllum öfgum eins og síðustu ár.“
Sigrún MArgréT SigMArSDÓTTir
73 Ára HarðFiSKSSÖLUKOna
„Þetta verður rosalegt en ég er þó
bjartsýn.“
HulDA nÓADÓTTir
52 Ára aFgrEiðSLUKOna
Í LæKnaSETrinU
Dómstóll götunnar
1. nóvember tekur áfangaheimilið
Svanurinn til starfa. Heimilið er
hugsað fyrir fólk sem er að koma úr
fangelsi, áfengismeðferð og jafnvel af
spítala og þarf aðstoð við að komast
inn í samfélagið á nýjan leik.
ÁSTA KriSTMAnnSDÓTTir
er forstöðumaður heimilisins.
Vonumst til
að fylla húsið
„Þeir verða bara góðir og ég er mjög
bjartsýnn.“
gylfi SigurðSSon,
66 Ára LEigUBÍLSTjÓri
kjallari
mynDin
VigDíS
gríMSDÓTTir
rithöfundur skrifar
„Við vildum bara dansa
með og dilla okkur og verða
venjulega fræg, eðlilega
fræg, fallega fræg, gáfulega
fræg, fínt fræg, ríkt fræg,
sætt fræg, góð fræg.“
maður Dagsins