Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Síða 28
föstudagur 24. OKtÓBEr 2008XX Helgarblað DV
„Það er til ógrynni af dagbók-
um með hinum ýmsu spakmælum
en þau eru yfirleytt eftir fólk sem
er komið undir græna torfu,“ segir
Kría Birgisdóttir þegar hún er beð-
in um að segja frá því hvernig hug-
myndin að dagbókinni Konur eiga
orðið allan ársins hring varð til er
blaðamaður DV kíkti í heimsókn.
Kría er bókmenntafræðingur að
mennt og starfar hjá bókaforlaginu
Sölku. „Salka er mikil kvennaútgáfa
og þegar við gefum út bækur leggj-
um við mikið upp úr því að hlusta
á þarfir lesenda okkar og vera í
góðu sambandi við þá,“ segir Kría.
Það var einmitt það sem Kría gerði
til þess að láta bókina Konur eiga
orðið allan ársins hring verða að
veruleika.“ Ég setti mig í samband
við fullt af góðum konum, sendi e-
mail og lét það berast að við værum
að fara af stað með gerð bókarinn-
ar. Ég óskaði eftir fallegum spak-
mælum, setningum, tilvitnunum
og fleiri góðum hugmyndum.“ Við-
brögðin létu ekki á sér standa og
hafði Kría varla undan að taka við
hinum ýmsu setningum og falleg-
um orðum frá konum á öllum aldri
úr öllum stéttum þjóðfélagsins. Í
bókinni eru einnig uppskriftir, ráð
og hugmyndir að skemmtilegri af-
þreyingu.
Kría stendur ekki ein á bak við
bókina góðu því listakonan Myrra
Leifsdóttir sér um hönnun, stíl og
útlit bókarinnar sem og annað.
„Myrra á heiðurinn af öllum þeim
glæsilegu listaverkum sem í bók-
inni eru, hún er algjör snillingur.
Hún sér alltaf hvernig hægt er að
gera hlutina fallegri.“
Kría leyfir blaðamanni að skoða
brot úr bókinni sem er einmitt á
leið í prentsmiðjuna þennan sama
dag. Kría ljómar þegar hún segir
frá bókinni og hversu margar frá-
bærar konur eigi þátt í henni. „Sú
yngsta sem á setningu í bókinni
fyrir næsta ár er átta ára gömul og
sú elsta er hundrað ára.“
Þar sem síðasta bók seldist upp
á örfáum dögum stefna þær á að
prenta næstu bók í stærra upplagi
svo að fleiri konur geti notið henn-
ar. Bókin er bleik að þessu sinni og
með eindæmum falleg. „Það ættu
án efa allar konur að skipuleggja
næsta ár með hjálp þessarar glæsi-
legu bókar og njóta spakmælanna,
góðu ráðanna og listarinnar sem
hún inniheldur,“ segir Kría að lok-
um.
Konan
Hafðu það gott
Laugardaginn 1. nóv. munu þær sirrý fjölmiðlakona
og Bjargey aðalsteinsdóttir íþróttafræðingur standa
fyrir glæsilegum fyrilestri fyrir konur. dagskráin hefst
klukkan 10:00 og lýkur klukkan 13:00. fyrilestrar, tónlist,
dans, happdrætti og ýmis upplífgandi verkefni fyrir lík-
ama og sál eru meðal þess sem á dagskrá verður. fyrstu
50 konurnar sem skrá sig á www.sirry.is fá glæsilega
gjafakörfu, viku í baðstofu og heilsurækt World Class,
kaffi frá Kaffitári og margt fleira. umsjÓn: KOLBrÚn pÁLÍna hELgadÓttIr kolbrun@dv.is
Hvað borðar þú í
morgunmat?
„Í morgunmat fæ ég mér ristað
brauð með osti og sultu, vatns-
glas, vítamín og góðan kaffi-
bolla.“
uppáhaldsdrykkurinn
þinn?
„Ískaldur bjór.“
Hvar líður þér best?
„Mér líður langbest heima með
fólkinu mínu.“
Hvernig heldur þú
þér í formi?
„Ég held mér í formi með því að
mæta reglulega í ræktina, sem
og á sviðinu. Þar fæ ég aðeins
öðruvísi útrás en í tækjasaln-
um.“
Hvaða snyrtivörur notar
þú dagsdaglega?
„Ég nota mest Lancôme-snyrti-
vörur,“
Hvar kaupir þú helst föt?
„Ég kaupi helst föt í Kronkron.“
Hvað gerir þú þegar þú
vilt dekra við sjálfa þig?
„Ég dekra við sjálfa mig með því
að bjóða góðu fólki heim í mat
og kveiki á kertum.“
Hvert er þitt helsta
fegurðarráð?
„Að hugsa fallega til náungans
og drekka vatn.“
Hver er þín fyrirmynd?
„Janis Joplin.“
Bryndís Ásmundsdóttir,
söng- og leikkona
Hugsar fallega
til náungans
K
on
a v
iku
nn
ar
Dagbókin Konur
eiga orðið allan árs-
ins hring kom út í
fyrsta skiptið í fyrra.
Bókin fékk frábærar
viðtökur og seldist
upp á nokkrum dög-
um. Nú er verið að
leggja lokahönd á
bók næsta árs sem
kemur út um miðjan
næsta mánuð.
Konur eiga orðið
Hugmyndasmiðirnir Bók-
menntafræðingurinn Kría
Birgisdóttir og Listakonan myrra
Lefisdóttir eiga heiðurinn á
dagbókinni Konur eiga orðið
allan ársins hring.
Hlúðu að líkama og sál
Ashtanga vinyasa yoga ~ Djúpslökun ~ Vinyasa yogaflæði ~ Yoga nidra ~ Hatha yoga ~ BlessStress www.yogashala.is
Sími 553 0203
Engjateig 5, 2. hæð
nýja bókin Bókin
fyrir árið 2009 er
bleik og falleg.
skrattaskýrsla
Yngsta konan sem
skrifar í bókina er
aðeins átta ára
gömul.