Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Side 32
Hefðir þú spurt mig fyrir tut-tugu og fimm árum hefði ég ekki haft hugmynd um það, ég lét aðra um að
stjórna mér, dæma mig og hafa áhrif
á mína líðan. Í dag hef ég sem bet-
ur fer fengið að kynnast sjálfum mér
aðeins betur,“ segir Hermann Gunn-
arsson þegar hann er beðinn um að
segja örlítið frá því hver hann er.
Aðeins nítján ára var Hemmi
kominn í landsliðið í knattspyrnu
sem og í handbolta. Hann fór
snemma að vera á milli tannanna á
fólki vegna áhugamála sinna eins og
hann sjálfur orðar það. „Þegar þér
gengur vel færðu tíu á móti þér, þeg-
ar þú tekur skrefið lengra og gengur
enn betur færðu hundrað á móti þér.
Þetta kunni ég einfaldlega ekki á og
átti í töluverðum erfiðleikum með
að sætta mig við. Þegar ég fékk hrós
sveiflaðist ég upp í skýin og þegar ég
heyrði einhverjar leiðindasögur af
sjálfum mér hrapaði ég niður þrátt
fyrir að ekki væri til í þeim sannleiks-
korn. Árið 1984 fannst mér því tími
til kominn að fara í sjálfsskoðun og
kynnast þessum strák aðeins betur.“
Fínasti strákur
„Ég kafaði alla leið inn í smástrák-
inn Hemma til þess að byrja mína
sjálfsskoðun og komst fljótlega að því
að Hemmi var bara fínasti strákur.“
Hemmi hafði lifað hröðu lífi
sem innihélt meðal annars mikl-
ar skemmtanir og áfengisdrykkju.
Hann segir tilfinninguna því hafa
verið ljúfsára þegar hann leit til baka
yfir líf sitt. Hemmi fór rólega af stað
og vann sína vinnu samviskusam-
lega. „Mér fannst rosalega spenn-
andi að fá að kynnast stráknum sem
allir töldu sig þekkja en enginn raun-
verulega þekkti. Ég leit því á þetta
verkefni sem mikla og skemmtilega
áskorun.“
Fljótlega kom hann þó að stórri
hindrun, feimni. „Ég hef alltaf ver-
ið hryllilega feiminn,“ segir hann og
viðurkennir að það komi flestum
mjög á óvart. „Ég er til dæmis feim-
inn við þig núna,“ segir Hermann
og bendir á blaðamann. Svo slæmt
var þetta um tíma að Hemmi treysti
sér einn ekki í bíó. „Eins og gefur að
skilja varð ég að taka á þessu.“
Hemmi fór því meðvitað í gegn-
um hinar ýmsu prófraunir og náði í
kjölfarið góðum árangri. „Það erfið-
asta sem ég gerði var án efa að fara
einn í Þjóðleikhúsið eins og ég gerði
eitt árið. Ég sat einn í miðjum saln-
um, fannst eins og allir væru að horfa
á mig. Stóð einn í hléi með kókglas-
ið mitt og spjallaði varla við nokkurn
mann. Þegar sýningunni lauk og ég
gekk út upplifði ég mikla sigurtilfinn-
ingu. Þetta var mikið afrek fyrir mig
því ég taldi mig alltaf hafa verið mikla
hópsál en er í raun mikill einfari.“
Vildi höFnun
Það voru fleiri tilfinningar sem
Hemmi þurfti að vinna í, samanber
höfnun. „Ég taldi mig aldrei hafa
fengið höfnun.“ Kvöld eitt á Þórskaffi
eftir að hafa tekið þátt í skemmtun á
þeim ágæta stað fór Hemmi mark-
visst bláedrú á ballið til þess eins að
fá höfnun. „Ég gekk upp að stúlku
sem var á ballinu með sínum manni
og bauð henni upp í dans. Stúlkan af-
þakkaði dansinn mjög pent og benti
mér góðlátlega á að það væri ör-
ugglega nóg af öðrum stúlkum sem
vildu stíga sporið með mér á dans-
gólfinu.“ Hemmi taldi sig nú loksins
hafa fengið höfnun og fannst hún
ekkert sár. „Að kvöldinu loknu varð
mér hins vegar hugsað til þess að ég
hafði neitað nokkrum stúlkum um
dans og hafnað þeim. Niðurstaðan
var því sú að Hemmi vildi ekki vera
með öllum konum og það vildu ekki
allar konur vera með Hemma,“ segir
Hemmi og glottir út í annað. Síðar á
lífsleiðinni kynntist Hemmi þeirri til-
finningu sem alvöru höfnun fylgir og
segir hana ekki hafa farið eins vel í sig
eins og á ballinu góða.
tilFinningalega
lokuð kynslóð
„Það verður því miður bara að
viðurkennast að mín kynslóð á ekk-
ert sérstaklega auðvelt með að tjá til-
finningar sínar. Það var algengt hér
áður fyrr og er líklega enn að fólk tal-
aði um að það ætti ekki maka sinn og
börn heldur sé með þau að láni,“ seg-
FÖSTUdagUr 24. OKTÓBEr 200832 Helgarblað
„Ég spurði vini mína
Hvort þeir HÉldu að
Ég væri í einHvers
konar afneitun eftir
Hjartaáfallið. Hvort
það gæti virkilega
verið að mÉr liði allt-
af svona vel, Hvort
nokkur maður ætti
það skilið. Ég átti bara
erfitt með að trúa
þeirri breytingu sem
á mÉr Hafði orðið.“