Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Page 52
Kínverskir tölvunotendur eru
brjálaðir út í Microsoft-fyrirtækið
þessa dagana eftir að í ljós kom
þann 20. þessa mánaðar að fyr-
irtækið hafði uppfært kínverska
útgáfu forrits til að berjast gegn
ólöglegum hugbúnaði en sala
slíks hugbúnaðar er mjög algeng
í Kína og áhyggjur Microsoft
skiljanlegar þar sem stýrikerfi og
forrit fyrirtækisins eru ráðandi á
hugbúnaðarmarkaði Kínverja.
Undanfarið hafa bloggsíður
og umræðuvefir í Kína fyllst af
kvörtunum almennings sem tel-
ur fyrirtækið ráðskast með frið-
helgi einstaklingsins og einhverj-
ir hafa gengið svo langt að kæra
fyrirtækið til stjórnvalda vegna
þessarar aðfarar.
Forritið sem Kínverjar eru
æfir út af (Windows Genu-
ine Advantage anti-piracy pro-
gramme) og er hluti af stýrikerf-
inu, fer yfir hugbúnað á tölvu
viðkomandi og metur hvort
hugbúnaðurinn sé löglegur. Ef
svo er ekki verður bakgrunn-
ur skjáborðs tölvunnar svart-
ur á klukkutíma fresti og stöðug
skilaboð um ólöglegan hugbún-
að birtast á skjánum. Einhverj-
ir hafa líka orðið fyrir því að Off-
ice-ritvinnslupakkinn sé gerður
óvirkur. Fyrri útgáfa forritsins
gerði eiganda tölvunnar einfald-
lega vart við með skilaboðum.
Stærsti hakkarinn
Kvartanir kínverks almennings
felast helst í því að Microsoft hafi
ekkert leyfi til að ráðskast með
vélbúnað landsmanna án þeirra
leyfis. Lögfræðingur einn að
nafni Dong Zhengwei frá Peking
hefur sent inn formlega kvörtun
til kínverska innanríkisráðuneyt-
isins og kallar Microsoft „stærsta
hakkarann í Kína“ þar sem það
hafi hvorki leyfi viðkomandi ein-
staklinga né lögsögu innan Kína
fyrir slíka framkvæmd. Aðgerð-
ir fyrirtækisins ættu frekar að
beinast gegn seljendum ólöglegs
hugbúnaðar og þá í samstarfi við
kínversk stjórnvöld.
Microsoft hefur svarað Kín-
verjum á þann veg að notk-
un ólöglegs hugbúnaðar kosti
Bandaríkin tugi þúsunda starfa
og milljarða dollara og segist ein-
faldlega vera að hjálpa þeim sem
viti ekki að þeir séu að nota ólög-
legan hugbúnað. palli@dv.is
Hátt hlutfall ólöglegs hugbúnaðar í Kína veldur því að margir Kínverjar fá það nú
óþvegið frá Microsoft-fyrirtækinu. Óviðunandi afskiptasemi, segja sumir.
Motorola
Með android
Farsímafyrirtækið Motorola er að
hanna nýjan síma byggðan utan
um Android-hugbúnað Google.
Heyrst hefur að nýi síminn verði
sérstaklega hannaður með
samskiptasíður í huga, líkt og
Facebook og MySpace. Talið er að
á næstu misserum verði stór-
aukning í notkun farsíma og
lófatölva hjá yngra fólki þegar
það tengir sig inn á samskiptasíð-
ur og Motorola vonast til að með
sérhæfðum síma nái fyrirtækið
aukinni sölu meðal þessa hóps.
Fyrirtækið Bioware hélt opinbera kynningu
á leiknum Star Wars: The Old Republic á
þriðjudaginn. Um er að ræða gríðarlega
stóran netleik, eða svokallaðan MMORPG-
leik. Leikir eins og World of Warcraft og Eve
Online falla einnig í þennan flokk. Leikurinn
kemur aðeins út á PC en það er ljóst að
með tilkomu hans munu milljónir manna
um allan heim upplifa Star Wars-ævintýrið
á nýjan hátt. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
MMORPG-leikur er byggður á Star Wars en
sá fyrsti kom út árið 2003 og hét Star Wars:
Galaxies. Saga Old Repuplic gerist einum
3600 árum á undan sögu Star Wars-
myndanna. Spilendur munu annaðhvort
vera karakterar sem tilheyra Galactic
Republic eða Sith Empire. Töluverður
persónuleikamunur verður þar á.
Forsvarsmenn Bioware segja leikinn þann
langstærsta sem þeir hafa unnið að. Aðrir
hafi verið stórir en þessi sé risastór. Þá tala
þeir um að nákvæmari persónusköpun
hafi ekki sést í Star Wars-leikjum.
Milljónir Manna
spila star Wars
FÖSTUdAGUR 24. OKTÓBER 200852 Helgarblað DV
Tækni
UMSjÓn: PÁLL SVAnSSOn palli@dv.is
KánTrí í rocK BAnd
Leikurinn Rock Band 2 kemur út um
helgina ytra. Þó svo að nafn leiksins
gefi ekki til kynna mikla tengingu við
kántrítónlist hefur það verið gefið út að
frá og með desember verði notendum
leiksins fært að hala niður kántrílögum.
Þó nokkur lög verða í boði og geta því
kántríaðdáendur gripið í rafmagns-
hljóðfærin og leikið með.
Wordpress
í útgáfu 2.7
Viðamiklar endurbætur standa
nú til á Wordpress-bloggkerfinu
og segja forsvarsmenn fyrirtæk-
isins að þetta verði mestu
breytingar síðan útgáfa 2.5 leit
dagsins ljós. áætlað er að
almenningur fái nýju útgáfuna í
hendur þann 10. nóvember
næstkomandi. Wordpress-kerfið
er frítt og eitt algengasta
bloggkerfið sem notað er í dag.
Gerð hafa verið hundruð ef ekki
þúsundir viðbóta sem tengja má
við kerfið og aðlaga það þannig
þörfum hvers og eins.
pro evolution
skákar fifa
Pro Evolution Soccer 09 sem er
nýkominn út er nú í 1. sæti yfir
mest seldu leiki í Bretlandi. Þetta
hlýtur að vera sérstaklega sætt
fyrir leikjaframleiðandan Konami
þar sem leikurinn sem var í 1.
sæti fyrir var enginn annar en
aðalkeppinauturinn, FIFA 09 frá
EA sports. Salan á FIFA hefur
dregist saman um helming í
Bretlandi eftir að Pro kom út.
Mikil samkeppni hefur verið milli
þessara leikja og Pro sífellt að
sækja í sig veðrið.
Jedi eða Sith? Það er spurningin.
Kínverjar æfir
út í Microsoft
SVArTur BAKGrunnur
Stöðugar tilkynningar frá
Microsoft birtast síðan í neðra
hægra horni skjásins.