Lögmannablaðið - 01.06.2004, Qupperneq 18
18
Aðalfundur LögmannafélagsÍslands 2004 var haldinn
föstudaginn 26. mars s.l. Á dag-
skrá fundarins voru venjuleg
aðalfundarstörf samkvæmt sam-
þykktum félagsins. Fundarstjóri
á aðalfundinum var Jóhannes
Rúnar Jóhannsson hrl. og fund-
arritari Guðmundur Ingvi Sig-
urðsson hdl.
Skýrsla stjórnar og árs-
reikningur.
Gunnar Jónsson formaður hóf
ræðu sína á að biðja fundargesti
um að rísa úr sætum og votta
þeim Árna Guðjónssyni hrl. og
Þorbirni Árnasyni hdl. virðingu
sína en þeir féllu frá á liðnu ári. Formaður flutti
síðan skýrslu stjórnar og vísaði m.a. í prentaða
ársskýrslu sem send var félagsmönnum fyrir fund-
inn. Lýsti hann sérstakri ánægju með rekstur
félagsins sem skilaði hagnaði annað árið í röð.
Gunnar gerði því næst stuttlega grein fyrir vinnu
félagsins varðandi „Access to Justice“ sem
Jóhannes Karl Sveinsson hrl. kynnti síðar á fund-
inum. Þá vék Gunnar að þeim hugmyndum sem
komið hefðu fram á síðasta ári í tengslum við
skylduendurmenntun lögmanna en sérstök nefnd
var skipuð til að vinna að tillögum um hana. Þá
minntist formaðurinn á nýstofnað Félag kvenna í
lögmennsku og fagnaði væntanlegri innkomu þess
í félagsdeild LMFÍ. Gunnar fór því næst nokkrum
orðum um frumvarp til laga um breytingu á lögum
um lögmenn, sem nú lægi fyrir Alþingi. Gerði hann
grein fyrir inntaki umsagnar laganefndar félagsins,
kynningu þess fyrir dómsmálaráðherra og allsherj-
arnefnd Alþingis. Loks vék formaður að nýföllnum
úrskurði samkeppnisráðs, þar sem LMFÍ var talið
hafa gerst brotlegt við samkeppnislög fyrir gerð
kostnaðargrunns og sektað um 3,5 milljónir króna.
Gerði formaður grein fyrir helstu
málavöxtum og tilefni kostnað-
argrunnsins. Hann lýsti jafnframt
undrun sinni og vonbrigðum
með úrskurðinn og fjallaði í
stuttu máli um þá möguleika sem
væru í stöðunni.
Jóhannes Karl Sveinsson hrl.
tók næstur til máls og kynnti nið-
urstöðu vinnu stjórnar í tengslum
við “Access to Justice” innan
stjórnsýslunnar, þ.e.a.s. hvort
ágreiningsmálum sem varða
stjórnsýslu hins opinbera og því
álitaefni hvort lögfræðikostnaður
málsaðila – og ómöguleiki á því
að fá hann bættan – takmarkaði
aðgang að ,,réttlæti” og væri því
í andstöðu við hugmyndir um
raunverulegt jafnræði aðila við málsmeðferð. Fór
Jóhannes yfir helstu reglur sem gilda um gjafsókn
fyrir dómstólum sem hann taldi skila hlutverki
sínu. Vandamálið væri sá kostnaður sem skapaðist
við það þegar einstaklingar þyrftu að gæta hags-
muna sinna gagnvart hinum ýmsu stjórnsýslu-
nefndum ríkisins. Erfitt væri fyrir borgarann að
sleppa skaðlaus frá málarekstri innan stjórn-
sýslunnar í flókum málum þar sem sérfræðiað-
stoðar væri þörf. Taldi Jóhannes að nokkrar leiðir
væru færar til að bæta úr þessu. Í fyrsta lagi kæmi
til greina að veita viðkomandi úrskurðaraðila
úrskurðarvald um kostnað með tilheyrandi breyt-
ingum á einstökum lögum. Í öðru lagi mætti hugsa
sér að stofnuð yrði einhvers konar ,,miðlæg” með-
ferð á kostnaðarmálum, þar sem lagðir væru fram
reikningar til ákvörðunar, og í þriðja lagi kæmi til
greina að bæta inn almennu ákvæði í stjórnsýslulög
sem heimilaði að ákvarða kærendum kostnað af því
að halda uppi kærum sem ná fram að ganga. Taldi
Jóhannes þriðju leiðina heppilegasta en það yrði
hlutverk næstu stjórnar að kynna og setja fram nán-
ari hugmyndir.
2 / 2 0 0 4
AÐALFUNDUR
LÖGMANNAFÉLAGS ÍSLANDS
Gunnar Jónsson hrl., formaður LMFÍ.