Lögmannablaðið - 01.06.2004, Page 20
vísaði því næst til
nýlegrar greinar
sinnar í Lögmanna-
blaðinu þar sem hún
vakti athygli á útreið
dómnefndar á þeim
lögmönnum sem
sóttu um stöðu hér-
aðsdómara. Taldi
Dögg þar vegið að
virðingu lögmanns-
starfsins og skoraði
hún á fulltrúa lög-
manna í dómnefnd-
inni að útskýra sjón-
armið nefndarinnar.
Taldi Dögg ekkert
gegnsæi og samræmi
í reglum nefndar-
innar og væri ástæða
fyrir nýja stjórn að setja á fót nefnd til að kanna
þessi störf dómnefndar. Næst tók til máls Gestur
Jónsson hrl. og vék hann að þeirri umræðu sem
áður hafði farið fram á fundinum í tengslum við
úrskurð samkeppnisráðs. Benti Gestur á að málið
varðaði svo mikla grundvallarhagsmuni að athuga
þyrfti mjög alvarlega hvort láta ætti túlkanir
úrskurðarins standa. Taldi Gestur þá vinnu, sem fór
fram af hálfu félagsins, hafa verið málefnalega þótt
hægt væri að túlka á annan hátt. Því næst tók Lára
V. Júlíusdóttir hrl. til máls og svaraði ræðu Daggar.
Gerði hún stuttlega grein fyrir þeim verklags-
reglum sem lægju fyrir nefndinni og benti á að hún
hefði, sem nefndarmaður, starfað eftir bestu sam-
visku. Hún væri þó sammála Dögg um að skýrari
reglur ættu að liggja fyrir og fagnaði umræðu um
þetta mál. Magnús Haukur Magnússon hrl. tók
undir ræðu Gests Jónssonar og sagði að lögmenn
ættu ekki að vera hræddir við sannleikann. Lýsti
Magnús sig mjög ósáttan við nálgun samkeppnisyf-
irvalda á sektarfjárhæðinni. Næstur tók til máls
Heimir Örn Herbertsson hdl. og ræddi um hug-
myndir um skylduendurmenntun lögmanna sem
hann sagðist alfarið vera á móti, m.a. vegna þess að
slíkar reglur veittu falskt öryggi. Vildi hann frekar
sjá einkarétt lögmanna afnuminn. Að loknum
umræðum tók Gunnar Jónsson formaður til máls og
upplýsti að stjórn félagsins myndi taka vel ígrund-
aða ákvörðun um framhald úrskurðar samkeppnis-
ráðs.
Aðalfundur félagsdeildar Lögmanna-
félags Íslands.
Í framhaldi af aðalfundi Lögmannafélagsins var
haldinn aðalfundur félagsdeildar LMFÍ, samkvæmt
auglýstri dagskrá. Á dagskrá fundarins voru venju-
leg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félags-
ins, auk tillögu um breytingu á 3. gr. reglna um
félagsdeild LMFÍ, sem gerði aðild sérgreinafélaga
og hagsmunafélaga að félagsdeildinni mögulega.
Var sú tillaga samþykkt samhljóða. Vala Valtýs-
dóttir hdl. kvaddi sér hljóðs og óskaði skýringa á
stöðu Námssjóðs innan félagsins vegna rekstrar og
eigna. Framkvæmdastjóri skýrði út að Námssjóður-
inn væri sér rekstrareining en félli þó undir starf-
semi félagsdeildar. Afskriftir fastafjármuna bóka-
safnsins kæmu þó fram í rekstri skyldubundna hlut-
ans, þar sem ákveðið hefði verið að sá hluti legði
bókasafninu til aðstöðu og búnað. Fundarstjóri
frestaði því næst fundi vegna fyrirliggjandi beiði
Félags kvenna í lögmennsku um inngöngu í félags-
deild og yrði boðað til framhaldsfundar síðar.
20 2 / 2 0 0 4
F.v. Lára V. Júlíusdóttir hrl., Gunnar Viðar hdl., Inga Björg Hjaltadóttir hdl.
og Margrét Gunnlaugsdóttir hdl.