Lögmannablaðið - 01.06.2004, Síða 21
21L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð
Nú stendur yfir undirbúningurfyrir námsferð LMFÍ sem farin
verður í haust. Stefnt er að því að
halda til Rómar og dvelja þar dag-
ana 6.-10. október. Ferðin er kynnt
annars staðar í blaðinu en félags-
menn hafa nú þegar fengið senda
auglýsingu með tölvupósti. Skrán-
ing hefur farið mjög vel af stað en
þar sem takmarkaður sætafjöldi er í
boði borgar sig að bóka sæti sem
fyrst!
Góð aðsókn á námskeið vorannar:
35% lögmanna á námskeiðum!
Nú er nýlokið námskeiðum vorannar og ekki
er annað hægt að segja en að vel hafi gengið.
Alls sóttu 230 lögmenn námskeiðin ellefu sem
haldin voru. Það er eins og 35% lögmanna hafi
sótt námskeið á vorönn en auðvitað er stór
hópur búinn að fara á tvö til þrjú námskeið.
Góða aðsókn má fyrst og fremst þakka að LMFÍ
hélt skaðabótaforritsnámskeið ásamt Samtökum
íslenskra tryggingafélaga, SÍT, og tölvufyrir-
tækinu Vigor sem hannaði forritið. Um 60 lög-
menn sóttu það námskeið en svipaður fjöldi
sótti námskeið um galla í fasteignakaupum sem
Viðar Már Matthíasson prófessor við HÍ kenndi.
Önnur námskeið vorannar voru enskunámskeið,
grillnámskeið, námskeið um nýmæli í barna-
lögum og barnaverndarlögum (einnig haldið á
Akureyri), námskeið í skipulags- og bygginga-
löggjöfinni, verksamningum og sérkenni þeirra
auk námskeiðs um störf verjenda og réttargæsl-
umanna. Tvö námskeið voru felld niður vegna
lítillar þátttöku en það voru námskeiðin lög-
menn og fjölmiðlar og samspil atvinnu- og
einkalífs. Þau verða vonandi aftur auglýst í
haust með von um meiri þátttöku. LMFÍ hefur
samið við Tölvunám.is um sérstakan afslátt
fyrir félagið á námskeiðum þess. Námskeiðin
eru á netinu og eru bráðsniðug. Nemendur
kaupa aðgang að kennsluforritum á
netinu í eitt ár og geta á þeim tíma
sótt þá þekkingu sem þeir vilja.
Boðið er upp á námskeið í word,
excel, powerpoint og outlook.
Heimasíða LMFÍ
Þeir lögmenn sem hafa hug á að
sækja námskeið erlendis geta nálg-
ast upplýsingar um þau á heimasíðu
LMFÍ, undir liðnum „Athyglisverðar heima-
síður“. Félaginu berast fjöldi auglýsinga um
námskeið og ráðstefnur fyrir lögfræðinga um
heim allan sem eru settar á heimasíðuna jafn-
harðan.
Heimsóknum á LÖGMANNALISTANN fer
sífellt fjölgandi en í mars sl. var nýtt met slegið
þegar þær urðu 6235. Meiri hluti þessara heim-
sókna eru frá þeim sem eru að leita sér að lög-
manni og þeir lögmenn sem eru ekki skráðir
með málaflokka á heimasíðunni ættu að gera
það sem fyrst. Nýlega var listinn þýddur yfir á
fimm ný tungumál en áður var hann á ensku og
dönsku auk íslensku. Nýju tungumálin eru
þýska, spænska, pólska, tælenska og serbneska.
Hluti af heimasíðu félagsins er læstur
almenningi en lögmenn eiga að hafa notenda-
nafn og lykilorð til að komast inn á hana. Lykil-
orðin hafa þótt flókin en nú geta lögmenn haft
samband við undirritaða til að breyta um lykil-
orð.
Hlaup – golf – fótbolti
Félagsmálin eru í góðum gír, búið er að
skipuleggja golfmót sumarsins, árin sem fót-
boltamót hafa verið haldin hjá félaginu eru
orðin 10 og nú er stefnt að nýjung með haustinu,
að halda skemmtiskokk LMFÍ. Sá hópur sem
stundar hlaup fer sífellt stækkandi en stefnt er
að því að allir félagar og fjölskyldur þeirra geti
tekið þátt í þessum atburði.
Fréttir frá félagsdeild
Eyrún Ingadóttir