Lögmannablaðið - 01.06.2004, Qupperneq 28
28
una sem nam rúmum 2000 gyllinum þar sem arð-
greiðslan var frá erlendu félagi en ekki innlendu.
Samkvæmt forúrskurði Evrópudómstólsins braut
slík niðurstaða ákvæði samningsins um frjálst
flæði fjármagns milli aðildarríkja.
Norska málinu hefur verið áfrýjað til næsta
dómstigs en fyrir liggur sambærilegt mál hjá
Frosting Lagmannsrett þar sem aðalmeðferð er á
dagskrá nú í vor. Það liggur fyrir að norsk stjórn-
völd munu óska eftir ráðgefandi áliti EFTA dóm-
stólsins um hvort umrædd skattaákvæði teljist
brot á EES-samningnum. Því máli sem ég hef
reifað hér að framan verður því frestað þar til það
álit liggur fyrir.
II Getur norski dómurinn haft áhrif á
íslenskan rétt?
Þar sem Ísland er aðili að EES-samningnum,
eins og Noregur, gæti niðurstaða ráðgefandi álits í
samræmi við niðurstöðu norska dómsins haft
óbein áhrif hér á landi. Ætla má að slík niðurstaða
yrði til þess að skattaðilar stefndu málum inn til
að fá sömu eða samskonar niðurstöðu. Einnig
mætti hugsa sér að íslensk stjórnvöld teldu sér rétt
að leggja til breytingar á skattalögum í þá átt að
eyða umræddri mismunun eftir búsetu.
Í 1. gr. laga nr. 21/1994 um öflun álits EFTA
dómstólsins er að finna heimild fyrir íslenska
dómstóla til að óska ráðgefandi álits. Bæði hér-
aðsdómur og Hæstiréttur geta óskað eftir ráðgef-
andi áliti hvort sem er að kröfu aðila máls eða
dómari telur þess þörf án kröfu.
III Er mismunur á skattalegri meðferð
arðs eftir búsetu brot á EES- samn-
ingnum ?
Hver er mismunur á skattalegri meðferð á
greiðslu arðs til félaga skráðra hér á landi og
félaga með heimilisfesti utan Íslands? Móttekinn
arður er frádráttarbær hér á landi þannig að ekki er
um skattlagningu að ræða þó að vísu sé 10%
afdráttarskattur af greiddum arði sem er endur-
kræfur í álagningu. Hins vegar er meginreglan sú
að afdráttarskattur af arði greiddum erlendum
félögum er 15%, sbr. 2. tölul. 70. gr. laga nr.
90/2003, um tekjuskatt of eignarskatt, sbr. A-liður
2. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra
gjalda. Þess má þó geta að ef tvísköttunarsamn-
ingur er fyrir hendi þá getur afdráttarskatturinn
verið frá 0 og upp í 15%. Vegna þessa má álykta
að þessi meðferð brjóti í bága við ákvæði EES-
samningsins um frjálst flæði fjármagns milli
aðildarríkja, sbr. 40. gr. samningsins.
IV Hefur tekjuskattslögum verið breytt
til að fullnægja samningsskuldbindingum
Íslands á grundvelli EES-samningsins?
Á sínum tíma voru sett inn í tekjuskattslög
ákvæði um skattaafslátt til handa einstaklingum
sem fjárfestu í hlutabréfum í íslenskum félögum,
sbr. 1. tölul. B-liðs 1. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003.
Í byrjun árs 2000 var lagt fram á Alþingi frumvarp
til breytinga á ýmsum ákvæðum tekjuskattslaga. Í
meðförum þingsins, þ.e. með nefndaráliti meiri-
hluta efnahags- og viðskiptanefndar var lagt til að
hlutafélög þurfi ekki að vera skráð á Verðbréfa-
þingi Íslands heldur í kauphöll á evrópska efna-
hagssvæðinu til að uppfylla skilyrði um skattaaf-
slátt. Skýring þessa var sú að breytingin væri
nauðsynleg til að fullnægja samnings-skuldbind-
ingum Íslands á grundvelli EES-samningsins.
Ekki eru frekari skýringar á því hvaða samnings-
skuldbindingar er átt við en gera má ráð fyrir að
þingmenn hafi haft í huga ákvæði samningsins um
frjálst flæði fjármagns milli aðildarlanda.
Því er skemmst frá að segja að umrædd breyt-
ingartillaga frá meirihluta efnahags- og viðskipta-
nefndar var samþykkt.
V Lokaorð
Að lokum skal tekið fram að norska fjármála-
ráðuneytið afhenti norska þinginu skýrslu þann
26. mars sl. þar sem lagt er til að félög verði und-
anþegin skatti af arði og söluhagnaði hlutafjár.
Í skýrslunni er lagt til að meðhöndlun fjárfest-
inga verði eins að því er varðar fjárfestingu
norskra borgara innan EES og annarra borgara
EES landanna. Því muni undanþágan vegna arðs
og söluhagnaðar eiga við óháð því hvort um er að
ræða hlutafjáreign í norsku félagi eða öðru félagi
innan EES. Til samræmis er lagt til að afdráttar-
skattur af arði verði lagður niður þegar félög
innan EES eiga í hlut.
Samkvæmt því sem hér hefur verið rakið er
ljóst að kanna verður sérstaklega við rekstur mála
er varða skattlagningu milli landa innan EES
hvort geti verið um brot á samningnum að ræða,
sér í lagi er varðar ákvæði hans um frjálsa fjár-
magnsflutninga.
2 / 2 0 0 4