Vísbending - 04.05.2015, Qupperneq 2
2 V Í S B E N D I N G • 1 8 . T B L . 2 0 1 5
Fjölgun ferðamanna og fjárfesting
í hótelum
Mynd 1: Sprenging í fjölda ferða manna
frá árinu 2011
Ferðaþjónustan hefur vaxið gríðarmikið á undanförnum árum. Frá árinu 2013 hefur hún skapað
meiri gjaldeyristekjur en nokkur önn
ur atvinnugrein í landinu. Ekkert bendir
til annars en að svo verði áfram á næstu
árum og að þjóðhagslegt vægi ferða
þjónustunnar eigi enn eftir að aukast.
Stöðug fjölgun ferðamanna leiðir til
aukinna umsvifa í fjölmörgum greinum,
bæði innan og utan beinnar ferðaþjón
ustu. Af auknum umsvifum utan beinnar
ferðaþjónustu má nefna fjölgun veitinga
húsa og ferðamannaverslana í miðborg
Reykjavíkur, auk þess sem stóran hluta
af aukinni bílasölu undanfarin ár má
rekja til mikillar fjölgunar bílaleigubíla.
Í þessari grein er skoðað hvaða áhrif þessi
mikli vöxtur hefur haft á hótelmarkaðinn
og sjónum beint að Reykjavík.
Sprenging!
Á mynd 1 sést fjölgun erlendra ferða-
manna frá árinu 2000, en á því ári voru
þeir um 293 þúsund. Þetta eru ferðamenn
í Leifsstöð og því vantar tölur um þá
sem koma með Norrænu og um farþega
skemmtiferðaskipa. Eins og sjá má á mynd
1 hefur fjölgunin verið mismikil frá ári til
árs, en ríflega 8% á ári að meðaltali yfir
þetta tímabil. Mesta athygli vekur mikil og
viðvarandi fjölgun frá og með árinu 2011,
um eða yfir 20% á ári sem vart er hægt að
kalla annað en sprengingu.
Erl endir ferðamenn voru í fyrsta sinn
fleiri en 500 þúsund á árinu 2011, en á
árinu 2014 voru þeir 970 þúsund talsins.
Margt bendir til þess að í ár verði þeir fleiri
en 1.200 þúsund. Þessi öra fjölgun kallar
á fjárfestingar, bæði hjá einkaaðilum og
því opinberra. Einkaaðilar fjárfesta í hót-
elum og gistiheimilum, hverskyns afþrey-
ingu, hópferðabílum, bílaleigubílum,
söluskálum, verslunum og veitingastöð-
um. Af hálfu opinberra aðila kallar fjölg-
unin einkum á fjárfestingu í innviðum á
sviði samgangna, í vegakerfi, bílastæðum,
göngustígum og margskonar þjónustu við
fjölsótta ferðamannastaði, auk fjárfestingar
á Keflavíkurflugvelli sem hleypur á millj-
arðatugum á næstu árum og áratugum.
Alþjóðleg þróun
Ferðaþjónusta er mjög vaxandi atvinnu-
grein í heiminum. Reikna má með því að
um 1.200 milljónir manna ferðist milli
landa á þessu ári og þeim hefur fjölgað
um 500 milljónir á 15 árum, úr tæplega
700 milljónum árið 2000. Búist er við að
árlegur vöxtur til ársins 2030 verði á bil-
inu 3 – 4%. Um einn af hverjum þúsund
ferðamönnum, sem ferðast milli landa á
þessu ári, leggur því leið sína til Íslands.
Ýmsir þættir valda því að ferða-
þjónustan hér á landi hefur vaxið mun
hraðar en á heimsvísu og margt bendir til
sú þróun haldi áfram á næstu árum. Ekk-
ert bendir til annars þótt auðvitað verði að
taka spám með fyrirvara. Spurningin er
fremur sú hversu ör fjölgunin verður en
hvort hún verður.
Tvær milljónir eftir sjö ár?
Á mynd 2 er sett fram ágiskun um fjölda
ferðamanna hér á landi á næstu árum
og þá gert ráð fyrir að fjölgunin verði
15% á næsta ári og frá og með árinu
2017 verði árleg fjölgun ferðamanna
8% en sem fyrr segir bendir allt til þess
að vöxturinn á Íslandi verði meiri en að
meðaltali í heiminum. Gangi þetta eftir
verða erlendir ferðamenn 1,5 milljón á
árinu 2017 og 2 milljónir árið 2021.
Mynd 3 sýnir fjölda herbergja í
hótelum í Reykjavík frá árinu 2000.
Um er að ræða heilsárshótel en ekki
gisti heimili, hostel eða sambærilega
gistingu. Eins og sjá má hefur hótel
herbergjum í borginni fjölgað töluvert
á þessu tímabili, en þau voru um 1.500
talsins árið 2000, um 2.700 í árslok
2010 og í árslok 2015 verða þau um
4.000. Í árslok 2015 verður staðan sú að
um þriðjungur hótelherbergja í borginni
hefur verið tekinn í notkun á undan
förnum fimm árum og helmingurinn á
undanförnum tíu árum. Mörgum hefur
þótt nóg um þær framkvæmdir við ný
og eldri hótel sem ráðist hefur verið í
á liðnum árum, en fjölgun hótela hefur
hins vegar engan veginn náð að fylgja
eftir þeirri fjölgun erlendra ferðamanna
sem við höfum orðið vitni að. Fjölgun
in hefur skapað mjög óvenjulegar að
stæður á hótelmarkaði í Reykjavík og
að hluta til á íbúðamarkaði í nálægð
Kvosarinnar.
Frá árinu 2000 hefur meðalnýting
hótelherbergja í Reykjavík verið um
64%, sem er sambærileg nýting við það
sem gengur og gerist í mörgum Evrópu
löndum. Ársnýting hótelherbergja er
talin í jafnvægi á bilinu 6570% og
óvenjulegt er að hún sé langt utan þess
bils í langan tíma. Eins og sjá má á mynd
4 hefur hlutfallsleg fjölgun ferðamanna
umfram fjölgun hótelherbergja orðið til
að bæta nýtinguna, en hún fór úr 64%
árið 2011 í 74% árið 2012 og 77% árið
2013. Nýtingin var síðan 84% á árinu
2014, sem er gríðarlega hátt hlutfall og
langt umfram það sem eðlilegt má telja.
Þess má því vænta að afkoma í hótel
Davíð Björnsson
Forstöðumaður á fyrirtækja
sviði Landsbankans hf.
Mannvirkjafjármögnun og
ferðaþjónusta
Heimild:Keflavíkurflugvöllur