Fréttablaðið - 19.11.2014, Side 2

Fréttablaðið - 19.11.2014, Side 2
19. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Guðlaug, er þetta heilbrigt ástand? „Allavega finnst þeim sjúklega gaman í vinnu.“ Um átta af hverjum tíu starfsmönnum BHM hafa unnið í veikindum eða með veikt barn. Guðlaug Kristjánsdóttir er formaður BHM. VINNUMÁL Frestað var til dagsins í dag samningafundi tónlistar- skólakennara sem stóð hjá Ríkis- sáttasemjara frá klukkan ellefu til fjögur í gær. Tónlistarskólakenn- arar lögðu niður störf 22. október síðastliðinn og verkfall þeirra er því að teygja sig inn í fimmtu viku. Kennarasamband Íslands (KÍ) stóð í gær fyrir samstöðufundi til stuðnings tónlistarkennurum. Með því segir Aðalheiður Steingríms- dóttir, varaformaður KÍ, hafnar aðgerðir til stuðnings félögum KÍ í verkfalli. Kennarar í Mennta- skólanum á Akureyri og Verk- menntaskólanum lögðu niður störf klukkan tvö í gær til að sýna tón- listarkennurum stuðning í verki. Aðalheiður segir KÍ hafa sent út áskorun til forystufólks félaga um land allt um að styðja tón- listar kennara. Hún segir hins vegar ekkert hægt að spá um frek- ari aðgerðir annarra hópa innan HÍ dragist verkfall tón listar- skólakennara enn á langinn. Hún sagði þó ljóst að það myndi ekki verða „látið kjurt liggja“. Í ályktun samstöðufundar KÍ í Hörpu í gær var samþykkt ályktun þar sem segir: „Mál er að linni. Við krefj- umst þess að samið verði strax við tónlistarkennara svo að þeir geti snúið aftur til sinna mikil vægu starfa.“ Á fundinum talaði fjöldi ræðumanna og tónlistarfólks. „Fjögurra vikna verkfall! Nú er nóg komið, við viljum samninga strax,“ sagði Þórður Árni Hjalte- sted, formaður KÍ, á fundinum. - óká Kennarasamband Íslands stóð fyrir samstöðufundi til stuðnings tónlistarskólakennurum: Lengra verkfall ekki látið kjurt liggja Á BARÁTTUFUNDI KÍ Í HÖRPU Fjöldi listamanna auk ræðumanna stigu á svið í Norðurljósasalnum síðdegis í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN STJÓRNSÝSLA Reynir Jónsson, fram- kvæmdastjóri Strætó bs., varð sjálf- ur valdur að tjóni á bíl sem hann hafði til umráða og var í eigu fyrir- tækisins. Mikið hefur verið fjallað um bílakaup Reynis undanfarið en eftir að tjónið á jeppanum varð keypti Reynir 10 milljóna króna jeppa sem hann hefur nú skilað. Óhappið áðurnefnda varð með þeim hætti að vatn komst inn á vél bílsins, Grand Cheerokee-jeppa árgerð 2005, þegar Reynir var að keyra hann yfir Norðurá þar sem hann var í veiðiferð í júlí. „Bíllinn er að upplagi tjónabíll þegar hann er keyptur, þess vegna er það skráð í skráningarskírteinið að hann sé tjónaður. Það sem gerist síðan er að ég lendi aftur í tjóni sem ég veld sjálfur á bílnum. Ég fékk vatn inn á vélina. Ég keyrði út í á og olli því,“ segir Reynir. Þegar vatn komst inn á vélina stöðvaðist bíllinn og veiðifélagi Reynis sem var á öðrum jeppa hjálpaði honum að draga bílinn upp úr ánni. Aðspurður hvers vegna séu ekki til tjónaskýrslur vegna óhapps- ins segir Reynir það vera vegna þess að tjónið hafi ekki verið trygg- ingarhæft. „Þetta var utanvegarakstur og þar fyrir utan var bíllinn ekki í kaskó. Þó hann hefði verið í kaskó þá hefðu tryggingarnar ekki bætt tjónið. Þess vegna lagði ég þessar upplýsingar beint á borðið hér og þessu var aldrei leynt.“ Aðspurður segist Reynir hafa verið allsgáður þegar óhappið átti sér stað. „Ég var ekki undir áhrif- um áfengis. Ég var bara í veiðiferð og var að keyra yfir á.“ Farið hafi verið með bílinn á verk- stæði í Reykjavík og ljóst hafi verið í ágúst að það tæki því ekki að gera við hann þar sem það hefði kostað 1.300 til 1.500 þúsund. Því hafi bíll- inn verið seldur á partasölu fyrir 350 þúsund krónur. „Við ákváðum þá að reyna að fá eins mikið fyrir hann og hægt var í þessu ástandi sem hann var í og ég myndi taka á mig mismuninn sem var í kringum ein milljón króna.“ Reynir segist ekki enn hafa gert upp þessa milljón við Strætó því það eigi eftir að formgera með hvaða hætti það verði. Mikil ólga hefur verið innan Strætó og hefur DV meðal annars fjallað um óánægju meðal starfs- manna í garð Reynis. Hann gerir lítið úr því og segist ekki óttast um stöðu sína innan fyrirtækisins. „Ég fæ ekki alveg tengingu milli þess að fólk sé að nudda mér upp úr einhverjum bílakaupum og almennri óánægju starfsmanna. Ég les þetta frekar þannig að það eru einhverjir starfsmenn sem vilja koma á mig höggi. Það er allt í lagi, þá hafa þeir bara sínar aðferðir við það en ég hef ekki ástæðu til að ótt- ast um stöðu mína. Ég hef ekki gert neitt rangt,“ segir Reynir. Sem áður sagði skilaði Reynir bílnum á mánudag og segist sáttur við það. „Bíllinn sem slíkur hefur ekkert persónulegt gildi fyrir mig. Þetta er bara bíll. Það er auðvitað ekki þar með sagt að ég sé að afsala mér hlunnindunum.“ En sér Reynir eftir að hafa keypt svona dýran bíl? „Ég skil alveg þau sjónarmið sem eru uppi. Ég legg alveg skilning í þau og þess vegna skilaði ég bílnum þegar þetta kom upp,“ segir Reynir en stjórn Strætó bs. fór fram á að hann skilaði bílnum. Reynir hefur ekki fest kaup á nýjum bíl og segist ekki vera farinn að hugsa svo langt. Meðan hann er bíllaus tekur hann strætó í vinnuna. „Ég var að koma úr fríi á sunnu- dag, skilaði bílnum og tók strætó. Það er ófrágengið allt saman hvern- ig þetta verður. Ég er með bíla- hlunnindi en ef fyrirtækið vill fara með það í annan farveg þá er ég alveg opinn fyrir því en það er bara ófrágengið.“ viktoria@frettabladid.is Eyðilagði jeppann í laxveiði Framkvæmdastjóri Strætó ók jeppa sem hann hafði til umráða út í Norðurá í sumar og eyðilagði í honum vélina. Ekki þótti taka því að gera við jeppann sem var seldur. Reynir segist ætla að greiða tjónið sem nemur einni milljón króna. Hann hefur skilað 10 milljóna króna jeppa sem keyptur var eftir tjónið og tekur nú strætó. TEKUR NÚNA STRÆTÓ Reynir skilaði 10 milljóna króna bílnum á mánudag og tekur nú strætó til vinnu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ég hef ekki ástæðu til að óttast um stöðu mína. Ég hef ekki gert neitt rangt. Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. SKIPULAGSMÁL „Ljóst er að til- gangslaust er að þræta um gildis- tíma lóðarleigusamnings,“ segir í bréfi lögmanns Björgunar þar sem harðlega er mótmælt ákvörð- un Faxaflóahafna um að segja upp lóðarleigusamningi Björgunar í Sævarhöfða. Björgun segist vilja 50 þúsund fermetra lóð í Sunda- höfn í staðinn. „Björgun mun ekki víkja af lóð þeirri sem fyrirtækið hefur nú til umráða nema fram- tíðarlausn finnist í staðsetningar- málum fyrirtækisins.“ - gar Björgun mótmælir uppsögn: Neita að víkja úr Sævarhöfða Í SÆVARHÖFÐA Deilt er um lóðar- samning. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ORKUMÁL Ríkisstjórnin mun leggja til að rúmum níutíu milljón- um króna til viðbótar verði varið í niðurgreiðslur til húshitunar. Er það gert til að bregðast við fyrir- huguðum hækkunum á kostnaði við rafhitun húsnæðis. Alls er því áætlað að rúmlega einn og hálfur milljarður renni í málaflokkinn. Einn af hverjum tíu íbúum lands- ins hefur ekki kost á því að hita híbýli sín með jarðvarma. - joe Hækkun á rafmagnsverði: Niðurgreiða hitunina meira LEIÐRÉTT Kamilla Ingibergsdóttir hefur hafið störf hjá hljómsveitinni Of Monsters and Men en þó ekki sem framkvæmda- og kynningarstjóri eins og kom fram í Fréttablaðinu á laugardag og mánudag. STJÓRNSÝSLA Gísli Freyr Valdórs- son, fyrrverandi aðstoðarmaður innanríkisráðherra, viðurkennir að hafa rætt við Sigríði Björk Guð- jónsdóttur, fyrrverandi lögreglu- stjóra á Suðurnesjum og núverandi lögreglustjóra höfuðborgarsvæð- isins, um málefni hælisleitandans Tony Omos daginn sem fréttir byggðar á lekanum voru birtar. Áður hafði hann neitað því. „Ég átti tvö símtöl við Sigríði þennan dag og í öðru þeirra ræddum við Omos,“ segir Gísli Freyr. Hann hafi spurt út í rannsóknina, hvernig hún stæði og hvenær henni ætti að ljúka. Það hafi verið lítið um svör og að hann hafi aldrei rætt við lögreglu- stjórann áður en hann lak minnisblaðinu úr ráðu- neytinu. Hann bætir því við að auðvitað séu þetta hlutir sem hann hefði betur látið ógert líkt og annað sem tengist hans þætti í þessu máli. Sigríður Björk sendi frá sér yfirlýsingu í gær vegna málsins en þar segir hún meðal annars að ekkert í samskiptum þeirra hafi gefið til kynna að Gísli Freyr hefði lekið upplýsingunum. Hún hafi fengið veður af málinu í kjölfar fjölmiðlaumfjöllun- ar um það. Sigríður hefur óskað eftir upplýsingum um umrædd símtöl úr gögnum Ríkissaksóknara. - joe Gísli Freyr ræddi tvisvar við lögreglustjóra Suðurnesja í kjölfar lekans: Hringdi tvisvar í lögreglustjóra FYRRVERANDI AÐSTOÐARMAÐUR Gísli Freyr ræddi við lög- reglustjóra í kjölfar lekans. FRÉTTABLAÐIÐ/GUNNAR SIGRÍÐUR BJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.