Fréttablaðið - 19.11.2014, Síða 4

Fréttablaðið - 19.11.2014, Síða 4
19. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4 92 þúsund færri varphæsni voru á Íslandi árið 2012 en árið 1982. Á þessu tímabili fækkaði hænsnun- um úr 292 þúsundum í 200 þúsund fugla. Heimild: Hagstofa Íslands. VIÐSKIPTI Rekstur Sjóvár- Almennra trygginga hf. skilaði 210 milljóna króna hagnaði á þriðja ársfjórðungi miðað við 851 millj- ón á sama tímabili í fyrra. Hagnaður Sjóvár á fyrstu níu mánuðum ársins hefur því dreg- ist saman úr tæpum 1,7 milljörð- um árið 2013 í 415 milljónir í ár. „Enn sem komið er merkjum við ekki aukna tjónatíðni almennt, þótt reikna megi með slíkri þróun á næstu misserum,“ segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvar. - hg Hagnaðist um 210 milljónir: Afkoma Sjóvár verri en í fyrra DÓMSMÁL Ákæruvaldið í Aserta- málinu lagði fram gögn við aðal- meðferð málsins í Héraðsdómi Reykjaness í gær sem benda til þess að tveir ákærðu í mál- inu hafi sett upp njósnabúnað í tölvum viðskiptavina sinna. Það eru þeir Gísli Reynisson og Karl Löve Jóhannsson en því neita þeir báðir. Verjendur hinna ákærðu sögðu þessi gögn ekki hluta sakar- efna og að þau væru eingöngu lögð fram til að sverta mannorð skjólstæðinga. Dómari féllst á það og var málið ekki rætt frekar. - skh Ákærðu í Asertamálinu: Njósnuðu um viðskiptavinina KJARAMÁL Samninganefndir lækna og ríkisins funduðu árang- urslaust í gær í húsakynnum Ríkissáttasemjara. Fundurinn hófst klukkan fjögur og stóð í rúmar tvær klukkustundir. Næsti fundur hefur verið boðaður á föstudag. Verkfall lækna og skurðlækna hefur nú staðið yfir í rúmar þrjár vikur og ekki sér fyrir endann á því. Fjölda aðgerða hefur verið slegið á frest, biðlistar lengjast og aðrir myndast þar sem engir voru fyrir. - joe Næsti fundur á föstudaginn: Árangurslaus deilufundur STJÓRNMÁL Þann 20. nóvember næstkomandi á Barnasáttmáli Sam- einuðu þjóðanna 25 ára afmæli. Af því tilefni hittu sex ungmenni, á aldrinum fjórtán til átján ára, ríkisstjórnina og ræddu um málefni er varða sáttmálann og málefni barna. Hópinn skipuðu Bjartur Thorlacius, Brynhildur Kristín Ásgeirsdótt- ir, Kristján Helgason, Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, Lilja Reykdal Snorradóttir og Sara Mansour. - joe Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna verður brátt 25 ára: Funduðu með ríkisstjórninni FUNDARMENN Ungmennin ræddu meðal annars menntamál, velferðarmál og eineltismál við ríkisstjórnina. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FÓLK Það tekur tímann sinn að finna skútuna sem fjölskyldan býr í, einfaldlega af því að blaða- manni dettur ekki í hug að fimm manna fjölskylda geti búið í svo lítilli skútu og horfir því fram hjá henni. Hjónin Natasha og Jay Thomp- son González birtast svo glaðleg á dekkinu og bjóða blaðamanni inn. Gólfflöturinn í skútunni er í mesta lagi þrjátíu fermetrar en rýmið er ótrúlega vel nýtt. Börn- in þrjú kúra í einu rúminu, eldri stelpurnar eru nýkomnar úr skól- anum en sú yngsta er heima hjá foreldrum sínum yfir daginn. Fjölskyldan hefur ferðast um heiminn í sex ár og sú yngsta fæddist um borð þegar þau höfðu vetursetu á eyjunni Martiník. Fjórða barnið er væntanlegt um miðjan mars og mun Jay þá taka á móti barninu í skútunni, eins og því síðasta. „Þetta barn verður fætt á Íslandi,“ segir Natasha brosandi en ætlunin er að vera á Íslandi fram á næsta sumar. Jay, sem er frá Bandaríkj- unum, ferðaðist um heiminn á skútu og kynntist Natöshu, ein- stæðri tveggja barna móður, á Kosta Ríka. „Og hún hoppaði um borð,“ segir Jay sem ættleiddi eldri dæt- urnar tvær. Síðan hefur fjölskyld- an verið á sjó, þó aðallega í Suður- og Mið-Ameríku. En af hverju veturseta á Íslandi? „Við eigum íslenskan vin og heilluðumst af landinu í gegn- um hann. Við höfum heldur ekki orðið fyrir vonbrigðum,“ segir Natasha. „Stelpurnar eru byrj- aðar í Austur bæjarskóla og þær ganga sjálfar í skólann héðan, það er bara hálftíma gangur.“ Luna, sem er átta ára, grípur fram í og segir að það sé gaman í íslenskum skóla og hún kunni að telja upp í tíu á íslensku. Sem hún gerir svo með glæsibrag. Skútulífið er lífsstíll þar sem samvera fjölskyldunnar er í hávegum höfð og börnin fá að kynnast heiminum af eigin raun „Við ætlum að vera á flakki þar til stelpurnar verða táning- ar en þá munum við koma okkur einhvers staðar fyrir,“ segir Natasha. En hvernig hafa þau ráð á þessu? „Ég tek vinnutarnir inn á milli og er núna til dæmis að leita mér að vinnu á Íslandi,“ segir Jay. „Svo lifum við mjög sparlega, veiðum fisk í matinn og nóg er af honum hér.“ erlabjorg@frettabladid.is Fjórða barnið fæðist við Reykjavíkurhöfn Fimm manna erlend fjölskylda býr í lítilli skútu rétt neðan við Kaffivagninn og ætlar að hafa vetursetu í Reykjavík. Sjötti fjölskyldumeðlimurinn er væntanlegur í mars og ætlar móðirin að fæða barnið í skútunni og faðirinn mun taka á móti því. Stelpurnar eru byrjaðar í Austurbæjarskóla og þær ganga sjálfar í skólann héðan. INNI Í SKÚTUNNI Fjölskyldan les mikið, teiknar og spjallar saman. Hún er afar sam- hent og hjálpast að við verkefni daglega lífsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ➜ Ítarlegra viðtal við fjölskylduna er að finna á Vísi. AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Hluti af öruggri vetrarumferð ATVINNUMÁL Ekki verður mögulegt fyrir VIRK starfsendurhæfingar- sjóð að taka við öllum einstakling- um sem þurfa á þjónustunni að halda, ef ríkið greiðir ekki með þeim einstaklingum. Þetta er mat forsvarsmanna starfsendurhæf- ingar sjóðsins. VIRK starfsendurhæfingarsjóð- ur bendir á lög og samninga þess efnis að ríkissjóður hafi ætlað að koma að fjármögnun starfsendur- hæfingarsjóðsins til að tryggja eitt samfellt kerfi í starfsendurhæf- ingu. Fjármagn hefur ekki komið í sjóðinn frá ríkinu. Af þessum sökum telur sjóðurinn sig ekki geta tekið við öllum einstaklingum. Í umsögn stjórnar VIRK til efna- hags- og viðskiptanefndar Alþing- is gagnrýnir stjórnin vinnubrögð ríkis valdsins og skorar á stjórn- völd að standa við gerða samninga til þess að geta haldið úti starfsemi fyrir alla landsmenn. Fram hefur komið að ábati af starfsemi VIRK sé um 10 milljarðar á ári, ef marka má skýrslu Talnakönnunar ehf. - sa Eitt samfellt starfsendurhæfingarkerfi í hættu ef ríkið greiðir ekki í verkefnið: Ríkið standi við lög og samninga VIRK STARFSENDURHÆFING Ábatinn af starfinu talinn 10 milljarðar á ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá LITLAR BREYTINGAR Áfram milt og fínt veður víða um land. Suðaustanáttin verður áfram ríkjandi með bjartviðri fyrir norðan en dálítil væta með köflum um sunnanvert landið. 6° 8 m/s 7° 10 m/s 9° 9 m/s 10° 10 m/s 10° 10 m/s 8-13 m/s V-til, annars hægari. 5-10 m/s. Gildistími korta er um hádegi 1° 17° 4° 11° 16° 5° 9° 7° 7° 23° 11° 21° 21° 21° 13° 5° 7° 9° 8° 7 m/s 6° 7 m/s 7° 8 m/s 5° 6 m/s 6° 10 m/s 2° 13 m/s 9° 9° 6° 6° 7° 7° 6° 6° 5° 5° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur FÖSTUDAGUR Á MORGUN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.