Fréttablaðið - 19.11.2014, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 19.11.2014, Blaðsíða 12
19. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 12 Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Gjafakort Borgarleikhússins Gefðu töfrandi stundir í jólapakkann. Kortið er í fallegum umbúðum, gildir á sýningu að eigin vali og rennur aldrei út. skemm tistaðu rStærs ti í heimi! Tölum aðeins um okkur Nova var valið markaðsfyrirtæki ársins 2014 á Markaðsverðlaunum ÍMARK og auðvitað erum við að springa úr ánægju með það. Opinn fundur ÍMARK og MBA náms við HÍ verður haldinn í hátíðarsal Háskóla Íslands fimmtudaginn 20. nóvember frá kl. 12-13. Markaðsfyrirtæki ársins 2014 Fjallað verður um markaðsstefnu Nova og skyggnst baksviðs á stærsta skemmtistað í heimi. Fundarstjóri er Þórhallur Guðlaugsson, dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir! ÍSRAEL Fjórir ísraelskir gyðingar létu lífið í samkunduhúsi í Jerú- salem í gærmorgun, þegar tveir Palestínumenn réðust þangað inn vopnaðir byssu og hnífum. Árásar- mennirnir tveir féllu síðan í skot- bardaga við lögregluna. Hörð átök brutust út síðar um daginn milli Palestínumanna og ísraelskra lögreglumanna, bæði í Jerúsalem og einnig í borginni Ramallah á Vesturbakkanum. Þetta er mannskæðasta árás- in sem Palestínumenn hafa gert í Jerúsalem árum saman. Hinir látnu voru allir með tvö- faldan ríkisborgararétt. Þrír þeirra voru bandarískir ríkisborg- arar en sá fjórði breskur ríkis- borgari auk þess að vera Ísraelar. Benjamín Netanjahú, forsætis- ráðherra Ísraels, sagði nauðsyn- legt að hefna frekar fyrir árás- ina og lét strax það boð út ganga að jafna skyldi hús árásarmann- anna við jörðu. Sama skyldi gert við heimili nokkurra annarra Pal- estínumanna sem gert hafa árásir nýverið. Vaxandi spenna hefur verið í Jerúsalem undanfarnar vikur, og má rekja hana ekki síst til langvar- andi ólgu meðal Palestínumanna vegna stórtækrar landtöku Ísraela í byggðum Palestínumanna. Deilur um helga staði í austurhluta Jerú- salemborgar hafa svo magnað upp spennuna. Netanjahú kennir æsingatali og undirróðri leiðtoga Palestínu- manna um árásirnar. Mahmúd Abbas, forseti Palestínu, fordæmdi hins vegar árásina á samkundu- húsið í gær. Árásarmennirnir voru báðir búsettir í austurhluta Jerúsalem- borgar. Samtök herskárra Palest- ínumanna, sem nefnast Abu Ali Mustafa-herdeildirnar, lýstu svo yfir ábyrgð á árásinni. gudsteinn@frettabladid.is Átök í kjölfar árásar Hörð átök brutust út í Jerúsalem og Ramallah í gær milli Palestínumanna og ísraelskra lögreglumanna. Fyrr um daginn höfðu tveir Palestínumenn myrt fjóra Ísraela í samkunduhúsi. Þeir féllu síðan báðir fyrir skotum lögreglunnar. Á VETT- VANGI Ísraeli á bæn meðan björgunarfólk hreinsar vett- vang árásar- innar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.