Fréttablaðið - 19.11.2014, Qupperneq 17
www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 19. nóvember 2014 | 32. tölublað | 10. árgangur
Meginástæða lystarleysis
einstaklinga á hlutabréfa-
markaði er sú að traust
þeirra á markaðnum er í sögulegu lág-
marki. ➜ SÍÐA 12
STJÓRNAR -
MAÐURINN
@stjornarmadur
F Y R S TA
F L O K K S
Þ JÓNUSTA
Sjónmælingar í Optical Studio
Tímapantanir í síma:
Optical Studio í Smáralind, 5288500
Optical Studio í Keflavík, 4213811
Optical Studio í Leifsstöð, 4250500
Bæta þjónustu á leigumarkaði
Almenna leigufélagið hefur tekið yfir eignir Leigu-
félags Íslands. Félagið, sem nú hefur yfir
tæplega 400 eignum að ráða á höfuð-
borgarsvæðinu, býður nú langtíma-
leigu, sólarhringsþjónustu í neyðartil-
vikum og möguleika á tilfærslu í nýja
íbúð breytist fjölskylduaðstæður.
Breytingarnar, segir María Björk
Einarsdóttir, framkvæmdastjóri
Almenna leigufélagsins, ekki hafa
önnur áhrif á leigjendur Leigu-
félags Íslands en að þjónusta við
þá aukist. ➜ SÍÐA 4
Myndform ræðir við Netfl ix
Myndform hefur átt í viðræðum við Netflix um
sölu á ýmsu myndefni sem kvikmyndafyrirtækið á
sýningarrétt á hér á landi. Viðræðurnar hafa stað-
ið yfir síðan í ágúst.
„Það er verið að vinna í þessu á fullu en þetta er
flókið mál. Við eigum rétt til að sýna mjög mikið
af efni hér á landi en það er misjafnt út á hvað
þau réttindi ganga,“ segir Magnús Gunnarsson hjá
Myndformi. ➜ SÍÐA 2
TVÖ ÞÚSUND
STÖRF HJÁ
FIMM STÆRSTU
ÚTGERÐUNUM
➜ Fimm stærstu útgerðirnar
högnuðust um fi mmtán millj-
arða á síðasta ári
➜ Félögin greiddu eigendum
sínum tæpa sjö milljarða í arð
➜ Fimmta stærsta félagið með 91
prósent eiginfjárhlutfall
SÍÐA 4
Vann hjá GlaxoSmithKline
Guðrún M. Ásgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Lipid
Pharmaceuticals (LP), vinnur nú að hluta-
fjáraukningu sprotafyrirtækisins. Fyrir-
tækið hefur þróað lyf til meðhöndlun-
ar á hægðatregðu og gert er ráð fyrir
að það verði komið á markað innan
þriggja ára.
„Við ætlum nú að tala við fjár-
festa og safna fjármagni svo við
getum unnið að fyrirliggjandi
verkefnum,“ segir Guðrún.
➜ SÍÐA 8